Bæjarins besta


Bæjarins besta - 17.12.1990, Síða 27

Bæjarins besta - 17.12.1990, Síða 27
BÆJARINS BESTA 27 Rætt við Þröst Leó Gunnarsson leikara frá Bíldudal s EG hef alltaf verið voðalega feiminn og flughræddur.“ segir Þröstur. Hann minnir á indíána, kolsvart sítt hárið liggur meðfram andliti hans og húðin er dökk. Hann er grannvaxinn, meðalmaður á hæð, með brún augu og brosir með öllu andlitinu. Þröstur Leó Gunnarsson er 29 ára gamall, fæddur 29. apríl 1961 á Bíldudal. Þar sleit hann barnskónum sem púki, stal harðfisk með strákunum og gramsaði á ruslahaugunum daginn út og daginn inn í leit að fjársjóði. Hann er þriðji í röðinni af sex systkinum. Foreldrar hans eru Vilborg Kristín Jónsdóttir og Gunnar Valdimarsson, kaupmaður og bóndi í frístundum. Þröstur Leó fór til Reykjavíkur að loknu skyldunámi og datt það snjallræði í hug að sækja um inngöngu í Leiklistarskóla íslands. sem hann revndar vissi ekki að væri til fvrr en þá. Hann útskrifaðist með glans fjórum árum síðar. Hann hefur verið í sambúð með írisi Guðmundsdóttur frá því þstu voru unglingsr, Þau eiga 8 ára gamla dóttur, sem heitir Silja Lind. Hans fvrsta verkefni var kvikmyndin „Eins og skepnan deyr“ eftir Hilmar Oddsson. Síðan fékk Þröstur hvert hlutverkið af öðru og á hann nú að baki fjöldan allan af leikritum sem náð hafa miklum vinsældum. En það er erfitt að lifa á leiklistinni, sérstaklega fyrir mann eins og Þröst, því heimþráin klípur í hann í tíma og ótíma. Hann er ekta sveitamaður. Hann ákvað að hvíla sig á leiklistinni og flytja vestur á Bíldudal með fjölskyldu sína. Þar er hann í beitingu og líkar vel, og íris vinnur á verslun foreldra hans og á skrifstofu Fiskvinnslunnar. Við skulum byrja á því að skyggnast aftur í tímann og draga fram púkann í Þresti Leó Gunnarssyni. Hvernig var að alast upp á Bíldudal? „Það var æðislega gaman. Það var svo mikið fjör og alltaf eitthvað að gerast, eins og er í svona sjávarplássum. Við strákarnir vorum inn í öllum skúrum og hjöllum, þekktum hvern krók og kima. Allt var svo ævintýra- legt í þá daga, en núna hefur þetta breyst mikið. Það er búið að rífa gömlu skúrana og hjallana, sem var okkar aðalathvarf í æsku. Allt er orðið svo breytt, steyptar götur og kominn miklu meiri menningarbragur á þorpið núna.“ Hetjumar á Arnarhóli „Þegar ég rifja upp þessar gömlu minningar get ég ekki annað er hlegið að þessu öllu saman. Það er gott að eiga góðar minningar sem seint gleymast. Ég man eftir því sem púki, að eftir skólann á daginn fórum við allir með skólatöskurnar heim og síð- an beint út að leika og við gengum allir lausir langt fram á kvöld, stundum til eitt og tvö eftir miðnætti, 10 ára guttar. Við áttum kastala upp í hlíð sem hét Arnarhóll. Kastalinn var hlaðinn úr grjóti með spýtuþaki, meiri- háttar kastali. Þar lékum við okkur í skylmingaleik alla daga. Það voru fleiri kastalar þarna á svæðinu og oft mikið stríð í gangi. Við gerðum árás, hlupum með spýtusverð og skildi, öskrandi eins og hetjur. Svo þegar hópurinn mættist var lamið í allar áttir og hetjurn- ar sem voru fremstar í flokki hlupu grenjandi heim“ segir Þröstur og hlær feimnislega. „Þetta var nú allur hetju- skapurinn. Ég fór uppeftir í sumar til að líta á rústirnar svona til gamans. Jú, þarna var gamli góði kastalinn minn, en mikið var hann lítill og skrítinn. Þetta var allt svo miklu stærra og voldugra þegar maður var lítill strák- ur.“ Stálum harðfiski „Við gerðum at í gömlu kerlingunum og stálum harð- fiski úr hjöllunum. Að stela • Á þessarl mynd má sjá Þröst Leó í aðalhlutverki Hamlets Danaprins. Þröstur seglr að einmitt í þessu atriðl, þegar hann strýkur af sverðlnu og er að fara að segja - Að vera eða vera ekki - þá sló klukkan níu og öl tölvuúrin fóru að pípa út í sal. „Þetta var eins og tónleikar, mjög neyðarlegt.“ Það er engin beitingar lykt af HamleÉ

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.