Bæjarins besta


Bæjarins besta - 17.12.1990, Blaðsíða 32

Bæjarins besta - 17.12.1990, Blaðsíða 32
32 BÆJARINS BESTA frægi Elvis Presley er við- fangsefnið í stórri bók, sem Fjölvaútgáfan hefur nýlega gefið út. Þar lýsir eiginkona hans Priscilla samlífinu við hann og rekur á ótrúlega hreinskilinn hátt margt í einkalífi hans. Þar kemur vel fram, hvað líf frægra stjarna getur oft orðið erfitt, en gleðistundirnar voru þó líka margar og Presley, sem þá vissi ekki aura sinna tal, gjafmildur úr hófi fram, þar sem hann gaf vinum sínum oft heilu bílana. Priscilla var kornung telpa, aðeins 14 ára, þegar hún fyrst kynntist Elvis, er hann gengdi herþjónustu í Þýskalandi. Þar urðu þau ástfangin og kom upp óvenjulegt samband milli þeirra þar sem Presley vildi varðveita hreinleika hennar og ferska ást og gekk svo í mörg ár, þar til þau loksins giftu sig. Bókin kallast „Elsku El- vis“ og í henni er lýsing á líf- inu í Graceland og Los Ang- eles. Frásagnir af skemmtunum og ferðalögum og dvölum í Las Vegas. Þai er því lýst, hvernig hinar lé- legu kvikmyndir Elvis voru að gera út af við hann, þang- að til hann losnaði undan samningum við kvikmynda- félagið og blómstraði þá á ný sem vinsælasti dægurlaga- söngvarinn, viðurkenndur Rokk-kóngur Bandaríkj- anna. íslandsbók Fjölva „ÍSLAND ER NAFN ÞITT“, kallast stór ljós- myndabók um ísland, sem Fjölvaútgáfan hefur gefið út. Höfundur eru hinn frægi ljósmyndari Erich Spiegel- halter og Sigurður A. Magn- ússon rithöfundur. Á sama tíma eru gefnar úr sérstakar útgáfur af bókinni á ensku, frönsku og þýsku. Spiegelhalter er einn kunnasti listræni ljósmyndari Þýskalands. Fjölvaútgáfan fékk hann í samstarfi við Herder- útgáfuna í Freiburg til að koma og ferðast um landið og er bókin og 80 lit- myndir hans, flest heilsíðu- myndir, árangur þess starfs. Sigurður A. Magnússon skrifar svo við hlið ljósmynd- anna um sambúð þjóðarinn- ar við landið, út frá ýmsum sjónarhornum. Þannig yrkja þeir tveir rithöfundurinn og ljósmyndarinn sannkallaðan ástaróð um landið, enda heillaðist Spiefelhalter af landinu og hinum furðulegu leikjum litanna í ljósi og skugga, sem hér er öðruvísi, en hann hafði áður kynnst. FYRSTA íslenska óperu- handbókin er komin út. Hún kallast „Söngvagleði“'og út- gefandinn er Fjölvi. Hún er í sama formi og Tónagjöfin um sígild tónskáld, sem kom út fyrir ári hjá sama forlagi. Nýja óperuhandbókin er samin af Þorsteini Thoraren- sen, en með ráðgjöf frá Pet- er Gammond og með sam- starfi við Salamander útgáfuna í London sem hefur aðstoðað við hönnun og út- vegun á fjölda ljósmynda. I Söngvagleði er sagt frá 111 óperutónskáldum og rakin söguþráður í 280 ólík- um óperum. Sem dæmi mán nefna, að þar eru raktar allar óperur Wagners og flestar þær óperur sem skipta máli eftir Verdí, Puccini, Don- izetti, Bellini. Hún spannar yfir öll tímabil, jafnt Handel, Mozart, Weber, Offenbach, yfir rússnesku og tékknesku tónskáldin og einnig fjölda nútímaópera, jafnt Britten og Shostakovich. Sjafnaryndi ÖRN OG ÖRLYGUR hefur sent frá sér bókina „Sjafnaryndi - unaður ástar- lífsins skýrður í máli.“ Sjafn- Sjafrnr- yndi t naútíi' aryndi er einstæð bók um samskipti kynjanna. Höf- undar fjalla um hina ýmsu þætti kynlífsins af reynslu og þekkingu. Hún er fyrsta handbókin um kynlífið sem veitir fullorðnu ólki hagnýtar upplýsingar um ástarbrögð. Víst eru ýmsar stellingabæk-' ur á boðstólum en þær veita næsta litlar upplýsingar um gjöfult kynlíf. Ennfremur fást bækur um hina líffræði- legu hlið getnaðar sem koma að notum í skólastofum en ekki í svefnherberginu. Sjafnaryndi er þörf fyrir þroskað fólk. Hún fjallar í máli og myndum um hin ýmsu tilbrigði ástarleikja. Bókin er kjörin fyrir þá sem vilja gera gott kynlíf enn fjölbreyttara og unaðsríkara. Rokksaga íslands BÓKAÚTGÁFAN For- lagið hefur sent frá sér bók- ina „Rokksaga íslands - frá Sigga Johnnie til Sykurmol- anna“ eftir Gest Guðmunds- son. Þar fjallar hann um rokktónlist og æskumenn- ingu á íslandi 1955 til 1990. I bók sinni fjallar Gestur Guðmundsson um stefnur og strauma í íslenskri rokktón- list, hljómsveitir og einstaka tónlistarmenn, söngtexta, skemmtanalíf og hljóm- plötugerð. Bókin styðst við margra ára heimildasöfnun: Ritaðar heimildir, hljóm- plötur og ekki síst samræður við fjölda fólks sem hefur lif- að og hrærst í rokktónlist undanfarna áratugi. í bók- inni eru um 300 ljósmyndir og ítarlegar skrár yfir hljóm- sveitir og plötuútgáfu.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.