Bæjarins besta - 17.12.1990, Page 34
34 BÆJARINS BESTA
Stangaveiðin 1990
FRÓÐI HF. hefur gefið út
ókina „Stangaveiðin 1990“
eftir Guðmund Guðjónsson
og Gunnar Bender. Höfund-
arnir eru báðir vel þekktir
meðal stangaveiðimanna
fyrir skrif sín um stanga-
veiði, en þeir skrifa veiði-
fréttir fyrir Morgunblaðið og
DV og hafa að auki báðir
skrifað bækur um stanga-
veiði.
f þessari árbók stanga-
veiðimanna gefst áhuga-
mönnum gott tækifæri' til
þess að fá á einum stað
glöggt yfirlit yfir það sem
gerðist á árinu og er ekki að
efa að aftur og aftur verður
gripið til þessarar bókar þeg-
ar veiðisumarið og afla-
brögðin 1990 ber á góma.
Fjölmargar ljósmyndir eru
í bókinni frá veiðisumrinu
1990 og gefa þær henni aukið
gildi.
Ítalía ’90
SIGMUNDUR Ó. Stein-
arsson íþróttafréttamaður
hefur skrifað sögu heims-
meistarakeppninnar í knatt-
spyrnu er nefnist „Ítalía ’90 -
60 ára saga HM í knatt-
spyrnu.“ Bókin er fimmta
bók höfundar en Fróði hf.
gefur bókina út.
í bókinni rekur Sigmund-
ur sögu þessarar einstöku
keppni frá upphafi en fyrsta
Heimsmeistarakeppnin var
haldin í Uruguay árið 1930.
ítarlegust er umfjöllunin um
keppnina í Mexícó 1986 og á
Ítalíu, sen haldin var í sumar
og öllum er í fersku minni.
Sérstakir kaflar fjalla um
þátttöku og frammistöðu ís-
lenska landsliðsins í heims-
meistarakeppninni.
Mannraunir
FRÓÐI HF. hefur gefið út
bókina „Mannraunir" eftir
Sighvat Blöndahl, er hefur
að geyma sannar frásagnir af
mannraunum sem nokkrir
íslendingar hafa ratað í.
Höfundur bókarinnar hef-
ur lengi verið félagi í Flug-
björgunarsveitinni í Reykja-
vík og tekið þátt í
björguanrstörfum, auk þess
sem hann hefur um árabil
lagt fyrir sig fjallgöngur bæði
hér heima og erlendis.
Sighvatur segir í bókinni
frá eigin reynslu eins og t.d.
þegar hann kom fyrstur að
flaki lítillar flugvélar á Ei-
ríksjökli og tók þátt í björg-
un tveggja manna sem í vél-
inni voru. Hann segir einnig
frá flugslysi á Mosfellsheiði
sem sannarlega fór betur en
á horfðist og þegar manni
var bjargað úr jökulsprungu
á Vatanjökli. Pá segir Sig-
hvatur frá eftirminnilegum
fjallgöngum, m.a. á Mount
McKinley, hæsta fjall Norð-
ur-Ameríku, og hinn ill-
ræmda Eigertind í Ölpunum.
Böndin bresta
FRÓÐI HF. hefur gefið út
skáldsöguna „Böndin bresta
- sagan af Helga frænda“ eft-
ir Arnmund Backman. Þetta
er önnur skáldsaga Arn-
mundar en fyrsta bók hans,
„Hermann“ sem kom út á
síðasta ári, vakti verðskuld-
aða athygli og fékk góða
dóma bæði gagnrýnenda og
lesenda.
Frásagnargleði, húmor og
leiftrandi næmi á mannleg-
um tilfinningum einkennir
sögur Arnmundar og þótt
undirtónninn sé alvarlegur
er alltaf stutt í gleðina,
Gassastaðahláturinn, sem
gengur eins og rauður þráð-
ur í gegnum söguna.
Stjörnumerkin
IÐUNN hefur gefið út
bókina „Stjörnumerkin“ eft-
ir Gunnlaug Guðmundsson.
Hver maður á sér mörg
stjörnumerki. í þessari bók
er fjallað um öll merkin, um
tilfinningar, hugsun, ást,
vinnu og framkomu í öllum
merkjunum. f bókinni er því
til dæmis svarað hvernig sé
að vera Rísandi Sporðdreki,
hvað það þýðir að hafa Ven-
us í Bogamanni o.s.frv.
Fjallað er um afstöður
milli pláneta, húsin, að lesa
úr stjörnukortum og um eðli
mannlýsinga. Fjallað er um
lifandi stjörnuspeki, um
stjörnumerkin þín og einnig
um þekkta íslendinga s.s.
Björk Guðmundsdóttur,
Bryndísi Schram, Bubba
Morthens, Davíð Oddsson,
Eddu Björgvinsdóttur, Ei-
anr Kárason og marga fleiri.
Lifandi bók sem fjallar um
þig, manninn og mannlífið.
••
Oldin okkar erlendis
1951-1960
IÐUNN hefur gefið út
bókina „Öldin okkar erlend-
is, minnisverð tíðindi 1951-
1960“. Bókin er fyrsta bindið
í nýjum flokki þessara vin-
sælu bóka, sem geyma lif-
andi og aðgengilega sögu
fortíðar og samtíðar í máli
og myndum. Sagt er frá stór-
atburðum og spaugilegum
atvikum, mönnum og mál-
efnum um heim allan.
f þessu bindi greinir m.a.
frá Kóreustríðinu og kalda
stríðinu, rokkplágunni og
húla-hopp æðinu, kosning-
um og kynþátttaóeirðum,
hnefaleikum og tískusýning-
um, Elvis og Pelé. Spútnik-
um og kjarnorkusprenging-
um, frægum mönnum og
furðufuglum svo lítið dæmi
sé tekið.
Væringinn mikli
IÐUNN hefur gefið út
bókina „Væringinn mikli -
ævi og örlög Einars Bene-
diktssonar" eftir Gils Guð-
mundsson. Bókin segir frá
ævi og örlögum Einars Bene-
diktssonar. Hún fjallar um
einn merkilegasta og stór-
brotnasta mann sem fæðst
hefur á þessu landi. Fáir ís-
lendingar hafa barist af meiri
eldmóði fyrir hugsjónum sín-
um og fáir flogið hærra á
vængjum skáldskapar og
andagiftar en Einar Bene-
diktsson. Ljóð hans lifa með
þjóðinni, djúpvitur sannleik-
ur, áköf barátta, snilld sem á
fáa sína líka. Athöfnin fylgdi
orði, og lífshlaup hans var
ferð um breiðgötur og ein-
stigi heimsins gæða.
Gils Guðmundsson rekur
hér ævintýralegan æviferil
skáldsins og framkvæmda-
mannsins og veitir innsýn í
verk hans og óvenjulega at-
hafnasemi.
Grín og gamanmál
ÖRN OG ÖRLYGUR
hafa sent frá sér bókina
„Grín og gamanmál“ sem
Guðjón Ingi Eiríksson safn-
aði saman. Hér er á ferðinni
léttmeti fyrir alla, fræsku-
laust gaman jafnt fyrir létt-
lynda sem þunglynda. Þessi
gamanmál henta öllum ald-
urshópum enda spyr fyndni
ekki að aldri, og ekki hvað
síst upprennandi kynslóð
sem safnandi hefur átt mikl-
ar samvistir við, sem kennari
og íþróttaþjálfari, en þá
verður margt að gleðiefni.
Safnandi segir í formála
m.a.: „Þeir brandarar, sem á
eftir koma, eru án kláms,
kynþáttafordóma og hlut-
deildar sveltandi fólks í
Eþíópíu, en því miður hafa
alltof margar skopsögur
gengið út á að niðurlægja
fólk, sem á um sárt að binda.
Ennfremur eru engir Hafn-
arfjarðarbrandarar í bók-
inni, enda flestir þeirra
löngu úreltir og tími til kom-
inn að leggja þeim.“
Baráttusaga
ÚT ER komin hjá Vöku-
Helgafelli bókin „Baráttu-
saga Guðmundar J. Guð-
mundssonar" eftir Ómar
Valdimarsson. Bókin er
hressilegt og hreinskiptið
uppgjör við menn og málefni
þar sem sönn frásagnargleði
tvinnast saman. Bókin er
sjálfstætt framhald bókar-
innar „Jakinn í blíðu og
stríðu“, sem kom út á síðasta
ári og varð meðal helstu
sölubóka ársins.
Guðmundur varpar hér
ljósi á fjölda samferðar-
manna og margvíslega at-
burði frá stormasömum ferli
sínum á vettvangi verkalýðs-
baráttu og stjórnmála. Hann
talar tæpitungulaust um
viðkilnað sinn við Alþýðu-
bandalagið, hremmingar sín-
ar í Hafskipsmálinu, uppá-
komur á Alþingi og málefni
verkalýðshreyfingarinnar.
Baráttuhiti Jakans leynir sér
ekki, málstaðurinn er alltaf
efstur á baugi, bætt kjör
þeirra sem minna mega sín í
samfélaginu.