Bæjarins besta - 13.02.1991, Qupperneq 3
BÆJARINSBESIA
3
■ |itjj
• Foreldrar fjölmenntu og tóku þátt í blótinu með börnum
sínum.
• Fjöldi barna tók þátt í Þorrablótinu og hafði gaman af.
ísafjörður:
Þorrablót
leikskólabarna
AÐ ERU fleiri en full-
orðna fólkið sem blóta
Þorra nú til dags því síðast-
liðinn föstudag var haldið
veglegt þorrablót í leikskól-
anum Eyrarskjóli á ísafirði
og var meðalaldur þátttak-
enda ekki hár. Snæddur var
íslenskur þorramatur úr
trogum og var ekki annað að
sjá en að börnunum líkaði
vel þessi þjóðlegi matur.
Flestir fengu sér svið og
hangikjöt, nokkrir súran
mat, fáir hákarl en harðfisk-
urinn var auðsjánlega vin-
sælastur. Þorrablót þessara
yngstu bæjarbúa ísafjarðar
var haldið með samvinnu
stjórnenda skólans og for-
eldra og þótti takast hið
besta. Ljósmyndari blaðsins
leit við á þorrablótinu og tók
þá meðfylgjandi myndir.
-s.
RATSJÁRSTOFNUN
Laugavegi 116 - Pósthólf 5374 • 125 Reykjavík
Deildarstjóri
Starfið:
Umsjón og viðhald á húsnæði, vélum og tækjum í Ratsjár-
stöð. Meðal tækja má nefna varaaflstöðvar, hita- og loft-
ræstikerfi, bifreiðar og vinnuvélar. Sjá þarf um að allur bún-
aður sé alltaf í fullkomnu lagi, flutninga, snjómokstur, við-
hald á húsnæði, ræstingu, viðhald umhverfis, birgðahald
o.m.fl.
Um er að ræða starf á Ratsjárstöðinni á Bolafjalli, og er
krafist búsetu í nærliggjandi byggðarlögum.
Kröfur:
Deildarstjóri þarf að vera fjölhæfur einstaklingur sem sjálf-
stætt getur tekist á við mörg ólík verkefni og leyst þau.
Leitað er að einstaklingi með nægilega reynslu og mennt-
un í meðferðog viðhaldi véla, rafbúnaði, járnsmíðiog annar-
ri viðhaldsvinnu. Reynsla af mannahaldi er æskileg og um-
sækjandi þarf að hafa góða framkomu og gott vald á ensku.
Umsækjandi þarf að standast inntökupróf þar sem tekið
verður tillit til enskukunnáttu, líkamsburðar, framkomu og
persónuleika.
Krafist er 4. stigs vélstjóramenntunar, véliðnfræði eða
sambærilegrar menntunar. Umsækjendur verða metnir
með tilliti til menntunar og starfsreynslu samanfagt. Um-
sækjandi skal hafa bílpróf.
Umsóknir skulu vera skriflegar og skal þeim skilað ásamt
sakavottorði á skrifstofu Ratsjárstofnunar, Laugavegi 116,
Pósthólf 5374, 125 Reykjavík fyrir kl. 17 þ. 25. febrúar nk.
Fyrirspurnum verðurekki svarað í síma.