Bæjarins besta - 27.02.1991, Blaðsíða 8
8
BÆJARINS BESIA
SMÁ AUGLÝSINGAR
Til leigu eða sölu Lítið einbýlishús til leigu eða sölu. Upplýsingar í 0 7446.
Húsnæði í boði Til leigu er 3ja herb. íbúð á mjög góðum stað á ísafirði. Fyrirframgreiðsla. Upplýs- ingarí0 91-37756.
Hornsófi Til sölu er Ijósgrár hornsófi m. rúmi í (frá Línunni). Hægt að þvo áklæðið. Upp- Iýsingarí0 8172ákvöldin.
Barnavörur Til sölu eru lítið notuð, vel með farin útskorin vagga með áklæði og dýnu, einnig Maxi Cosy ungbarnabíl- stóll, kringlótt göngugrind með borði, Peggy Ftunner barnabílstóll og Silver Cross barnavagn m. kúpt- um stálbotni, grálilla á lit, notaður af einu barni. Upp- Iýsingarí0 8172ákvöldin.
Skíðavörur Óska eftir 180-190 sm gönguskíðum og skóm nr. 39. Upplýsingar í 0 3261 eða 8224 eftir kl. 17.
MMC Pajero Til sölu er MMC Pajero, stuttur. Skipti á ódýrari komatilgreina. Upplýsingar í 0 4164.
Mazda Til sölu er Mazda 626 - 2000, '81. Góður bíll. Upp- lýsingar gefur Veigar í 0 3181 ádaginn.
Ýmislegt Til sölu er á „prúttverði" 6 skópör (stærð 14 og 16), 4 pils á grannar konur og nokkrar blússur. Upplýsing- ar í 0 3484.
Húsnæði óskast Óskum eftir 3-4ra herb. ibúð til leigu á ísafirði eða i Hnífsdal. Uppl. í 0 4173.
íbúð til sölu Til sölu er íbúðin að Vitastíg 21 n.h. Bolungarvík. Verð kr. 1.300.000.- Áhvílandi 136.000. Laus strax. Uppl. í 0 7437 eða 7580.
Lada Sport Til sölu er Lada Sport ’89,5. gíra, ekinn 15.000 km. Skipti á ódýrari. Upplýsing- ar í 0 3654.
Mazda 626 Til sölu er Mazda 626 ’83 í mjög góðu standi, ekinn aðeins 66.000 km. Verð 350.000.- Skipti á ódýrari. Upplýsingar í 0 7537.
’65 árgangur Mætum öll á hótelið fimmtu- daginn 28. feb. nk. kl. 21.
’57 árgangur Hittumst i kaffistofu ísvers laugard. 2. mars. kl. 17.
Húsmæðraskólinn ÓSK.
isafjörður:
Grunnskólakennarar
skora á bæjaryfirvöld
— aö ganga ekki á rétt Grunnskólans,
framhaldsskólans og almennings í bænum með
því að leggja af þá aðstöðu sem verið hefur
fyrir hendi í Húsmæðraskólanum, og afhenda
Tónlistarskólanum allt húsið til afnota
Kennarafundur
við Grunnskólann á
ísafirði haldinn 19. febrúar
1991 samþykkir að skora á
bæjarstjórn að ganga ekki á
rétt Grunnskólans, fram-
haldsskólans og almennings í
bænum með því að leggja af
þá aðstöðu sem verið hefur
fyrir hendi í Húsmæðraskól-
anum, og afhenda Tónlistar-
skólanum allt húsið til af-
nota. Önnur aðstaða er t.d.
ekki fyrir hendi í bænum til
að kenna heimilisfræði,
vefnað og leirmunagerð.
Vil teljum að Húsmæðra-
skólinn sé mjög vel fallinn til
kennslu í list- og verk-
greinum. Við bendum á að
teikningar þær sem gerðar
voru 1985 við sameiningu
Barna- og Gagnfræðaskóla
verði hafðar til hliðsjónar
þegar bætt verður úr því að-
stöðuleysi sem skólarnir búa
við í dag í kennslu þessara
greina. Nú er það yfirlýst
stefna menntamálaráðherra
að auka kennslu í list og
verkgreinum í skólum lands-
ins, því teljum við freklega
gengið á rétt skólanna á Isa-
firði verði þessi aðstaða af-
lögð.
Nýting grunnskólans á
húsnæði Húsmæðraskólans
hefur á þessu skólaári verið
sú að allir árgangar skólans
utan þrír hafa fengið þar
kennslu í heimilisfræði. En
lögum samkvæmt eiga allir
nemendur skólans að njóta
þeirrar kennslu, en sökum
kennaraskorts hefur það
ekki tekist. Tímamagn það
sem skólinn hefur úr að spila
miðað við nemendafjölda í
þessari grein kallar á tvö eld-
hús. Á þessu skólaári hefur
einnig aðstaða sú sem er til
leirmunagerðar í Hús-
mæðraskólanum verið nýtt
af Grunnskólanum eins og
hægt er. Næsta skólaár 1991-
92 verður boðið upp á vefn-
að sem val í lO.bekk. Vef-
stofan er mjög vel búin til
kennslu í vefnaði og er ein sú
síðasta sinnar tegundar á
landinu og yrði mikill missir
af henni fyrir skólanna og
íbúa bæjarins. Vefnaðar-
kennari er við skólann. Nú-
verandi ástand í kennslu list-
og verkgreina í Grunnskól-
anum á ísafirði er í alla staði
óviðunandi. Hannyrðir eru
kenndar í tveimur aðskildum
stofum sem eru mjög þröng-
ar til þessarar kennslu.
Smíðakennsla er í ófullnægj-
andi bráðabirgðahúsnæði
og hefur verið það lengi. Að-
staða til myndlistarkennslu
er lítil sem engin.
Við vonum að leysa megi
húsnæðisvanda Tónlistar-
skólans á farsælli hátt en
þann að það komi niður á
lögbundnum kennslugrein-
um í Grunnskólanum.
F.h. kennara
Sigrún Guðmundsdóttir,
kennari.
Rannveig Hjaltadóttir,
kennari.
SMÁ AUGLÝSINGAR
Kökubasar Kökubasar verður haldinn i Sundlaug Bolungarvíkur lau. 2. mars á vegum knatt- spyrnudeildar U.M.F.B. og hefst hann kl. 13. Hvetjum allatil að mæta.
Toyota Cressida Til sölu er Toyota Cressida ’80, mjög gott eintak. Upp- lýsingar gefur Birkir í 0 7572 eða 3751.
Volvo 240 GL Til sölu er Volvo 240 GL ’87, beinskiptur. Upplýsingar í 0 3971.
Flugmódel Til sölu er fjarstýrð flugvél og ýmsir fylgihlutir. Uppl. gefur Haukur í 0 3165.
Subaru óskast Óska efti Subaru station '82, helst til niðurrifs. Upp- lýsingar í 0 4340 í hádeg- inu og á kvöldin.
Handavinna óskum eftir hálfunnri handa- vinnu gefins fyrir gott mál- efni. Upplýsingar í 0 7477. Línunefnd kvd. S.V.F.Í. Bol- ungarvík.
Ýmislegt Til sölu er skrifborð, eldhús- borð og hillur. Upplýsingar I 0 3564.
Kojur Til sölu eru kojur. Upplýs- ingar í 0 7477.
Mazda 626 Til sölu er Mazda 626 GLX ’87, sjálfskiptur m. rafm. í öllu, vökvastýri og álfelgur. Ekinn 50.000 km. Góður bíll. Upplýsingar í 0 4704.
Skfðavörur Óska eftir að kaupa svig- skfði 150 sm og gönguskíði 170sm. Uppl. í 0 4191.
Lada Sport Tilboð óskast i Lada Sport '88, skemmdan eftir um- ferðaróhapp. Upplýsingar í 0 4926 eftir kl. 20.
Húsnæði í boði Til leigu er 5 herb. raðhús í Holtahverfi. Uppl. og lykill að Miðtúni 37 í 0 3813.
Ofnar Til sölu eru 12 pottofnar og 10 húsasmiðjuofnar m. Danfoss hitastillum. Uppl, gefurJóif0 4415 og 3538.
Mazda 626 Til sölu er Mazda 626 ’81 m. 2000 vél. Góður bíll. Verð- hugmynd 110-140.000.- Upplýsingar í 0 7567.
Húsnæði óskast d Óska eftir Iftilli íbúð, helst einstaklingsíbúð til leigu. Uppl. í 0 4438 á kvöldin.