Morgunblaðið - 01.12.2020, Síða 1

Morgunblaðið - 01.12.2020, Síða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1. D E S E M B E R 2 0 2 0 Stofnað 1913  283. tölublað  108. árgangur  23 dagartil jóla Jóladagatalið er á jolamjolk.is STÓRMYNDUM FRESTAÐ VEGNA VEIRUNNAR ÓLÍKAR EYJUR Í SAMA HAFINU TVÍBENT ÁHRIF SAMFÉLAGS- MIÐLANNA DANÍEL HJÁLMTÝSSON 29 MEISTARAVERKEFNI 11EKKI ÖLL NÓTT ÚTI 14  Samkvæmt niðurstöðum þjóð- hagsreikninga dróst landsfram- leiðsla umtalsvert meira saman hér á landi en á evrusvæðinu á þriðja ársfjórðungi ársins 2020. Þannig nam samdrátturinn 10,4% að raun- gildi hér á landi, en var til saman- burðar um 4,4% á evrusvæðinu. Rekja má samdráttinn hér á landi að mestu til minni útflutnings en framlag hans til hagvaxtar var nei- kvætt um 20,3%. »12 Talsvert meiri sam- dráttur hér á landi Brauðtertur og brauðtertugerð, sumardagurinn fyrsti, ganga á Helgafell, harmonikkan, gömlu dansarnir og mæðradagsblóm Kvenfélags Húsavíkur eru meðal ís- lenskra hefða sem tilnefndar hafa verið sem lifandi hefðir á landsskrá Íslands. Hugsanlegt er að ein- hverjar af þessum hefðum rati inn á heimsskrá Menningarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (Unesco). Unnið er að tilnefningu laufa- brauðshefðarinnar og hefðbund- innar smíði súðbyrðinga þangað. Meðal annarra hefða sem al- menningur hefur tilnefnt og ratað hafa inn á landsskrána eru ættar- mót, saumaklúbbar, brúnaðar kart- öflur og að fara í berjamó. Íslensku jólasveinarnir eru einnig meðal hefðanna þar, sem og slátur og slát- urgerð. »10 Brauðterta og gamlir dansar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Brauðterta Ein góð fyrir erfi- drykkju eða fermingarveislu.  Lifandi hefðum safnað saman á landsskrá Íslands Erlend staða þjóðarbúsins var já-kvæð sem nam 969,4 milljörðum króna í lok október og hafði þá batn- að um ríflega 313 milljarða frá lokum annars ársfjórðungs. Tölurnar sýna eignir Íslendinga erlendis umfram skuldir. Hefur staðan aldrei verið betri en nú en aðeins er rúmur ára- tugur síðan staðan var neikvæð sem nam tæpum 11.400 milljörðum króna. Það var á þriðja ársfjórðungi 2009, þegar áhrif bankaáfallsins haustið 2008 lögðust hvað þyngst á efnahag landsins og gengi krónunnar. »12 Erlend staða þjóð- arinnar aldrei betri Aðventan er gengin í garð og í dag er 1. des- ember og jólamánuðurinn þar með hafinn. Rúmar þrjár vikur eru enn til jóla en víða um land er jólaskrautið þó löngu komið upp. Í þessu árferði hafa margir ákveðið að leggja meira á sig í skreytingum en áður og í Reyk- holti í Borgarfirði mátti í gær sjá þennan skrautlega og skemmtilega bíl sem lífgaði svo sannarlega upp á umhverfið. Stekkjastaur er væntanlegur til byggða hinn 12. desember og þá fer spenningurinn að magnast hjá yngri kynslóðinni. Morgunblaðið/Árni Sæberg Jólastemning í Reykholti Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Gert er ráð fyrir verulegum halla á rekstri sveitarfélaganna í nágrenni Reykjavíkur í fjárhagsáætlunum fyr- ir næsta ár. Sveitarstjórnir allra sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæð- inu utan Reykjavíkur eru með fjár- hagsáætlanir ársins 2021 til umræðu þessa dagana og búa sig undir áfram- haldandi fjárhagslegar þrengingar vegna veirufaraldursins. Ekkert þeirra gerir þó tillögu um að útsvarsálagning hækki á næsta ári og leggja meirihlutar í bæjarfélögun- um til að útsvarsprósenta verði óbreytt á milli ára. Í fjárhagsáætlun Kópavogs er gert ráð fyrir 575 milljóna kr. rekstrar- halla á samstæðu sveitarfélagsins. Í Hafnarfirði er áætlaður halli á A- og B-hluta áætlaður 1.221 milljón kr. Í Garðabæ er gert ráð fyrir 499 millj- óna kr. halla á A-hluta bæjarsjóðs en að samstæðureikningurinn verði nei- kvæður um 71 milljón kr. Í Mosfells- bæ er gert ráð fyrir 567 milljóna króna halla á rekstri sveitarfélagsins og á Seltjarnarnesi er gert ráð fyrir að rekstrarniðurstaða samstæðu- reiknings verði neikvæð um 136 millj- ónir kr. Gangi þetta eftir gæti sam- anlagður halli sveitarfélaganna fimm orðið allt að þrír milljarðar kr. Fordæmalaus halli á Akureyri Leggja á fjárhagsáætlun Reykja- víkurborgar fyrir árið 2021 fram til fyrri umræðu á fundi borgarstjórnar í dag. Fjárhagsáætlanir eru komnar mislangt á veg í sveitarfélögum víða um land. Fjárhagsáætlun Akureyrar- bæjar var lögð fram í bæjarráði í seinustu viku. Aldrei áður hefur verið gert ráð fyrir viðlíka rekstrarhalla og á næsta ári en hann er áætlaður ríf- lega einn milljarður króna að því er fram kemur í kynningu en rekja megi 500 millj. kr. til halla á málaflokki fatl- aðra. Lagt sé upp með hóflega hækk- un á gjaldskrám, alla jafna um 2,5%, og að fasteignaskatts- og útsvars- prósentur verði óbreyttar. Hallarekstur og þrengingar  Umræður um fjárhagsáætlanir sveitarfélaga komnar í fullan gang  Sveitar- stjórnir á höfuðborgarsvæði og Akureyri leggja til óbreytt útsvar á næsta ári MÞungur róður í kórónukreppu »6

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.