Morgunblaðið - 01.12.2020, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 01.12.2020, Qupperneq 16
Ljósmyndari/Ókunnur Bjarni R Jonsson forstjóri (til vinstri) og Ingólfur Pét- ursson verslunarstjóri (til hægri). Myndin er tekin við opnun verslunarinnar að Skúlagötu árið 1965 Þriðji september 1965 var stór dagur hjá Bjarna R. Jóns- syni, forstjóra G J Fossberg vélaversl- unar, og starfs- mönnum hans. Þann dag var verslunin flutt úr kjallaranum á Vesturgötu 3 í stór- hýsi að Skúlagötu 63 sem Fossberg hafði reist yfir starfsemina. Stórhýsið stendur enn en telst víst standa nú við Bríetartún 13 vegna nafna- breytinga á götum í hverfinu. Gunnlaugur Jónsson Fossberg vélstjóri (1891-1949) hafði stofnað fyrirtækið árið 1927 en hafði árið 1930 ráðið 25 ára mann, nýútskrif- aðan úr Verslunarskólanum, sem skrifstofustjóra fyrirtækisins. Þetta var Bjarni R. Jónsson (1905-1996). Eftir ótímabært andlát Gunnlaugs árið 1949 tók Bjarni formlega við forstjórastarfinu og stjórnaði fyrir- tækinu til ársins 1989 og hélt áfram að koma til starfa eftir það í nokkur ár. Starfsaldurinn var því rúm 60 ár. Bjarni hafði lagt metnað sinn í nýbygginguna. Jósef Reynis arki- tekt teiknaði húsið og Bjarni pant- aði meira og minna allt í húsið frá útlöndum. Allt gler í gluggana var t.d. flutt inn frá Belgíu, lögð var vinna í glæsilega flísa- lögn undir verslunar- gluggunum og í stétt- ina fyrir framan inngangana var greypt merki fyrirtækisins eins og enn má sjá. Loksins var G J Foss- berg komið í eigið húsnæði og þvílíkur munur. Ef einhver hefði nú hvíslað því að Bjarna þennan septemberdag að timburhúsið á Vesturgötunni þar sem fyrirtækið hafði verið rekið við þrengsli í 30 ár myndi standa langt fram á 21. öld og jafnvel lengur, en stórhýsið sem hann var búinn að reisa yrði hins vegar rifið eftir 55 ár, hefði hann auðvitað hlegið að slíkri vit- leysu. Og það hefðu reyndar allir gert. Mér er minnisstætt að Stefán Hermannsson þáverandi borgar- verkfræðingur sagði við mig á sín- um tíma að Fossberg-húsið bæri af öðrum húsum á þessum reit. Og það gerði það svo sannarlega. Efsta hæðin og hluti 2. hæðar voru leigð út og geta má þess að Kjartan Sveinsson byggingatækni- fræðingur rak teiknistofu sína þar árum saman og í þessari byggingu teiknaði hann öll sín hús. Utanríkisráðuneytið leigði einnig stóran hluta hússins undir varn- armálaskrifstofu sína í mörg ár og þar fóru öll opinber samskipti við varnarliðið fram. Einkaleyfastofan var þar einnig um tíma. En þótt þetta fallega hús væri teiknað fyrir rekstur vélaverslunar hafði það ákveðna galla. Erfitt var að koma stórum málmiðnaðarvélum eins og rennibekkjum og fræsi- vélum inn í verslunarrýmið. Verra var þó að vörugeymslan var í loft- lágum kjallara undir versluninni. Það fór því svo að verslunin var flutt í annað hentugra húsnæði árið 2000 og húsið selt. Undanfarin ár hefur hafist mjög stórkarlaleg uppbygging á þessum reit sem nú er kenndur við Höfða- torg. Þetta er kynnt á þann veg að Höfðatorg sé umgjörð um fjöl- breytt mannlíf og margvíslega þjónustu. Öll starfsemi þar miðist við að skapa „hlýlegan miðbæj- arkjarna sem þjónar íbúum, starfs- fólki, nágrönnum, gestum og gang- andi“. Þarna hafa hins vegar verið reistar kuldalegar risavaxnar bygg- ingar í andstöðu við umhverfið og nú er svo komið að einungis standa eftir tvö upphafleg hús á reitnum og er annað þeirra Fossberghúsið. Þessi hús standa nú eins og illa gerðir hlutir vegna nýbygginganna og búið er að sækja um niðurrif á þeim. Hvað Fossberghúsið snertir er ekki hægt að segja annað en að um eyðileggingu verðmæta verði að ræða og grátlegt að þessar stór- karlalegu og risavöxnu nýbygg- ingar beri eldri og fallegri bygg- ingar ofurliði í bókstaflegri merkingu. Mér skilst að þetta skipulag hafi verið samþykkt í valdatíð Vilhjálms Þ. Vilhjálms- sonar borgarstjóra. Ég verð að segja sem gamall Reykvíkingur að ég kann honum og öðrum sem hlut áttu að máli litlar þakkir fyrir. Þess má að lokum geta að Foss- berg-fyrirtækið er enn rekið með myndarbrag í Dugguvogi í Reykja- vík og er sennilega elsta starfandi verkfæraverslun landsins. Niðurrif á Höfðatorgi Eftir Einar Örn Thorlacius » Bjarni hafði lagt metnað sinn í ný- bygginguna. Jósef Reynis arkitekt teiknaði húsið og Bjarni pantaði meira og minna allt í húsið frá útlöndum. Einar Örn Thorlacius Höfundur er dóttursonur Gunnlaugs Jónssonar Fossberg og starfaði hjá Fossberg samfleytt 1983-2002. einarornth58@gmail.com Ljósmyndari/Ragnar Th. Sigurðsson 16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 2020 Ekki þarf að leita langt aftur til að finna þá tíma þar sem flestir ef ekki allir forystu- menn stjórnmálanna lögðu sameiginlega áherslu á að vernda hið stjórnskipulega frelsi. Þótt sú þjóðlega holl- usta hafi vissulega átt við flesta stjórnmála- menn mætti segja að forystumenn Sjálfstæð- isflokksins hafi öðrum fremur og sérstaklega á gullaldarskeiði flokksins lagt mikinn þunga á það frumhlutverk. Í ræðum, ritum og ekki síður efndum kemur þetta víðsvegar fram enda er hið stjórnskipulega frelsi aflvaki sjálfstæð- isstefnunnar. Þangað sækir Sjálfstæðisflokk- urinn nafn sitt, flokks- hollustu og traust. Mætti segja að strax við stofnun hafi gullaldarskeið flokksins hafist og staðið í þrjá aldafjórðunga. Sigur eft- ir sigur með Ólafi Thors og Bjarna Benediktssyni í forystu, stórsigur Geirs Hallgrímssonar á landsvísu ár- ið 1974 (42,7%) og goðsagnakenndur sigur Davíðs Oddssonar árið 1990 hér í Reykjavík sem enn þann daginn í dag er óslegið met (60,4%). Þetta eru nokkur dæmi af mörgum en fleira var sameiginlegt en sigrarnir. Ávallt var borin fyllsta virðing fyrir upprun- anum og haldin var hollusta við grunngildin. Þótt Ísland væri við stofnun flokksins fullvalda samkvæmt sam- bandslögunum var það ekki stjórn- skipulega frjálst eins og Bjarni Bene- diktsson veik að frægri ræðu. Lög okkar öðluðust ekki stjórnskipulegt gildi fyrr en konungurinn í Kaup- mannahöfn staðfesti þau, við fórum ekki með okkar utanríkismál og hin danska þjóð hafði jafnan aðgang að auðæfum landsins á við okkur Íslend- inga. Var það almenn afstaða að slíku fyrirkomulagi myndi enginn una til lengdar. Varð því aðalstefnumál Sjálfstæðisflokksins við stofnun ná- kvæmlega það sem heiti hans gefur til kynna. Ekki einungis það heldur var það einnig meitlað í stein að þeg- ar þeim áfanga yrði náð yrði haldin eilífðar varðstaða þar um. Það reynd- ist vel. Veitti Bjarni Benediktsson þessu athygli þegar fjörutíu ára af- mæli flokksins var fagnað á lands- fundi árið 1969. Sagði Bjarni meðal annars: Reynslan segir, að á þessu fjörutíu ára bili hafi bezt tekizt, þegar ein- dregnast var fylgt hinni gagnorðu stofnstefnuskrá flokks okkar um frelsi og sjálfstæði þjóðar jafnt og einstaklinga með hagsmuni allra stétta fyrir augum. Hvorki hin ís- lenzka þjóð né einstakir Íslendingar fá haldið frelsi sínu og sjálfstæði nema allsherjarhagsmuna sé gætt. En frelsi og sjálfstæði er sá aflvaki, sem Íslendingum hefur bezt dugað. Ef við sjálf dugum þeirri háleitu hug- sjón mun Íslandi vel vegna, bæði í bráð og lengd.“ Í þessum orðum liggur viskan sem skapar sál Sjálfstæðisflokksins og hinn breiða stuðning sem flokkurinn hefur fengið. Á þessum gildum er hægt að sigra á ný. Þessum staðreyndum þarf að halda til haga og varðstöðuna um hið stjórnskipulega frelsi þarf að endur- vekja. Sérstaklega hjá hinni ungu kynslóð. Ekki einungis af því það er rétt heldur einnig af því að það er nú einu sinni svo að ef við, sem teljumst til yngri kynslóðar sjálfstæðismanna, viljum eiga einhverja von um að end- urheimta það sem ella kann að glat- ast er sérstaklega mikilvægt að við höldum á lofti á hvaða gildum flokk- urinn okkar var raunverulega stofn- aður enda eru það þau sem eiga hvað mest undir högg að sækja. Í því samhengi þarf að þora að ræða þróun samningsins um Evr- ópska efnahagssvæðið. Það kann að vera að það hafi talist hagstætt fyrir yfir aldarfjórðungi að semja við und- arfara þess Evrópusambands sem við þekkjum í dag. Þá voru mikilvæg- ustu málaflokkarnir ekki undir, samningsbundið var að Alþingi gæti hafnað innleiðingu á evrópsku reglu- verki. Einnig hafði ofríki sambands- ins ekki kunngerst. Ekki var hægt að gera sér í hugarlund þann alvarlega lýðræðishalla sem raun ber vitni í þessum páfagarði hinum nýja (Brussel) en frumforsenda lýðræð- isins er auðvitað að þegnarnir geti haft raunveruleg áhrif á gang mála með reglulegum kosningum. Það eru okkar mestu og mikilvægustu rétt- indi að við Íslendingar sjálfir og eng- ir aðrir ráðum skipan æðstu valdhafa löggjafar-, dóms- og framkvæmdar- valds. Lokaorð Sá hefur lítinn skilning á frelsinu; sem heldur því fram að sá húsbóndi sé frjáls sem nauðbeygður lýtur boð- valdi nágranna sinna eða þarf að sækjast eftir einhvers lags samþykki þeirra um ákvarðanir í eigin málum. Breytir engu hvort slíkur húsbóndi fái í mýflugumynd aðgang að flóknu samráðsferli um sína hagi. Slíkur húsbóndi er ekki sjálfstæður enda felst sjálfstæði hans í frelsi til sjálfs- ákvarðana. Þetta er ástæðan fyrir því að almennir sjálfstæðismenn vildu ekki innleiða regluverk Evr- ópusambandsins í orkumálum fyrir skömmu. Okkar hagir eru allt aðrir í þeim mikilvæga málaflokki og hin ís- lenska orkustefna reyndist af- skaplega farsæl fyrir land og þjóð. Sama má segja um sjávarútveg, landbúnað, jarðeignir og íslenskt eignarhald þar á. Hið stjórnskipulega frelsi Eftir Viðar Guðjohnsen Viðar Guðjohnsen »Mætti segja að strax við stofnun hafi gull- aldarskeið flokksins haf- ist og staðið í þrjá alda- fjórðunga. Höfundur er lyfjafræðingur og situr í stjórn Félags sjálfstæðismanna um fullveldismál.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.