Morgunblaðið - 01.12.2020, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 01.12.2020, Qupperneq 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 2020 Þú finnur fallegar og vandaðar jólagjafir hjá Eirvík Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is. Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-15 30 ára Bryndís Ýrr fæddist í Vesturbæ Reykjavíkur, en ólst upp á Sauðárkróki, en flutti aftur í bæinn 16 ára. Bryndís Ýrr er lögfræðingur og vinn- ur hjá Verði trygg- ingum. Helstu áhugamál Bryndísar eru golf, matargerð, ferðalög og almenn útivist. Maki: Haukur Harðarson, f. 1986, íþróttafréttamaður hjá Ríkissjónvarpinu. Börn: Arnar Páll, f. 2014 og Andrea Guðrún, f. 2020. Foreldrar: Þórunn Pétursdóttir, f.1964, innanhússráðgjafi og Páll Kolbeinsson, f. 1964, verkefnastjóri. Þau búa á Sel- tjarnarnesi. Bryndís Ýrr Pálsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Reyndu að hrista svolítið upp í hversdagsleikanum og gera eitthvað óvenjulegt í dag. Hvaða ánægju leitar þú? Hafðu ávallt í huga að leggja þig allan fram til að ná því. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú ert númer eitt núna. Hafðu ekki sektarkennd heldur safnaðu kröftum og vertu heill í því sem þú gerir. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Dagurinn í dag er tilvalinn til sköpunar og afþreyingar. Gefðu þér því góðan tíma til þess að kanna alla mála- vexti og líka til að velta þeim fyrir þér og taka ákvörðunina. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú hefur verið undir miklu álagi að undanförnu og átt því erfitt með að ein- beita þér. Eftir einn til tvo daga verður út- litið mun betra. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er orðið tímabært að þú hafir samband við vini þína þótt þeir hafi látið vera að hafa samband við þig. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Samskipti við nána vini og maka krefjast mikillar þolinmæði af þinni hálfu núna. Gerðu upp við þig hvað má missa sín í sambandinu og hvað er þess virði að halda í. 23. sept. - 22. okt.  Vog Að tjá tilfinningar sínar er ekki eins erfitt og þú heldur. Notaðu daginn til að koma reglu á hlutina hjá þér. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú þarft að finna farveg fyrir sköpunarþrá þína og verður að yfirstíga allar hindranir í þeim efnum. Bættu skipu- lagið hins vegar svo þú náir betri árangri. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú skalt umfram allt hefjast handa, þótt þér finnist erfitt að sjá fram á verkslok. Taktu samt lífinu með ró. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það er frábært að sýna sig og sjá aðra, en nú er ekki tíminn til að skemmta sér, heldur bretta upp ermarnar og vinna fyrir skuldunum. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú þarft þitt eigið rými. Reyndu að sigla milli skers og báru svo þú náir klakklaust landi. Láttu það eftir þér að vera þú sjálfur í góðra vina hópi. 19. feb. - 20. mars Fiskar Nú er rétti tíminn til þess að bera upp spurningu, sem hefur lengi verið að brjótast um í þér. metið lifnaðarhættina í þessum heimsálfum og munurinn var í einu orði sagt mikill.“ Mikil kaflaskipti urðu í lífi Hilm- ars árið 1972 þegar hann hætti í múrverki og hóf störf fyrir Sjálf- stæðisflokkinn. „Ég tók að mér stöðu framkvæmdastjóra verka- lýðsráðs Sjálfstæðisflokksins og starfaði við það þar til ég hætti eft- ir 28 ára starf og fór á eftirlaun. Á sama tíma fór ég að skipta mér af borgarmálum. Ég tók fyrst þátt í prófkjörum árið 1970. Í fyrstu var mér lítið ágengt. En 1982 var ég kjörinn borgarfulltrúi í borgar- stjórn Reykjavíkur. Ég sat á vegum borgarstjórnar í mörgum nefndum m.a. í bygginga- var við þesssi kaup í félaginu og kom það í Hilmars hlut að koma þessari tillögu í gegnum fundinn. „Það gekk á ýmsu á fundinum og ég var kallaður ýmsum nöfnum, t.d. að ég væri útsendari auðvalds- ins, og við værum að kasta pen- ingum út um gluggann. Ég held að enginn hugsi svona í dag.“ Land- svæðið á Öndverðarnesi var gæfu- spor fyrir félagið, enda mikil nátt- úruparadís fyrir félagsmenn, og í dag er þar 18 holu golfvöllur. Árið 1968 var Hilmar kosinn í miðstjórn ASÍ. „Ég ferðaðist þó nokkuð á vegum ASÍ meðal annars til Rússlands og Austur-Þýska- lands. Þar sem ég var búinn að fara til Bandaríkjanna gat ég vegið og H ilmar Guðlaugsson fæddist 2. desember 1930 í Reykjavík. „Eftir barnaskólann fór ég í Ingimars- skólann við Lindargötu og útskrif- aðist þaðan sem gagnfræðingur ár- ið 1948. Lærði svo múrverk og útskrifaðist úr Iðnskólanum í Reykjavík 1954, og var á samningi hjá afa mínum, Jóni Eiríkssyni. Árið 1958 var mér boðið til Banda- ríkjanna til að fullnema mig í flísa- og mósaíklögnum og ég fór í skóla í Fíladelfíu í þrjá mánuði.“ Hilmar segir að vinnan með Jóni afa sínum hafi verið honum mjög lærdóms- rík, en afi hans hafi lagt mikla áherslu á stundvísi og sá lærdómur hafi fylgt honum alla tíð. Hilmar giftist Jónu Steinsdóttur frá Vestmannaeyjum árið 1950 og áttu þau 68 góð ár saman og eignuðust þrjú börn. Hún féll frá fyrir tveim- ur árum. Hilmar hafði mikinn áhuga á samfélagsmálum og var virkur í fé- lagsmálum samhliða vinnunni. „Ég fór fljótt að skipta mér af félags- málum og var formaður Múrara- félags Reykjavíkur 1965-1973 og síðar fyrsti formaður nýstofnaðs Múrarasambands Íslands 1973- 1977. Á þessum árum var mikil pólitík í verkalýðsfélögunum, bar- átta milli vinstri- og hægrimanna. Stjórnarkosning fór fram á hverju ári í félaginu og var listi vinstri manna borinn fram á móti mér öll árin sem ég var formaður.“ Árið 1965 var Hilmari aftur boð- ið til Bandaríkjanna, nú á vegum AFL-CIO sem hafa svipað hlut- verk og ASÍ hér á landi, og hann var þrjá mánuði í Bandaríkjunum og ferðaðist mjög víða. „Þetta er sú áhugaverðasta og skemmtilegasta ferð sem ég hef farið í og hef ég farið í margar ferðir. Árið 1967 gekk ég í Odd- fellow-regluna og var það mikið heillaspor fyrir mig.“ Þann 1.maí 1968 keyptu Múrara- félag Reykjavíkur og Múrara- meistarafélag Reykjavíkur jörðina Öndverðanes í Grímsnesi sem voru 450 hektarar lands. Mikil andstaða nefnd Reykjavíkurborgar í 30 ár, þar af 12 ár sem formaður, í stjórn verkamannabústaða frá árinu 1971 og síðan í húsnæðisnefnd Reykja- víkur og sem formaður þeirrar nefndar í fjögur ár. Ég ferðaðist víða árin sem ég sat í borgarstjórn og minnisstæðust er ferð til Peking í Kína með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra. Það var alveg magnað að sjá Kínamúrinn og þessi ferð skildi mikið eftir sig.“ Auk þess að vinna ötullega í borgarmálunum var Hilmar mjög virkur í íþróttastarfi. Hann tók við starfi formanns Knattspyrnufé- lagsins Fram 1978 og var þar í átta ár. Þar var hann sæmdur gullmerki og silfurkrossi fyrir vel unnin störf. Hilmar Guðlaugsson múrari og fv. borgarfulltrúi í Reykjavík – 90 ára Öndverðarnes Fjórir ættliðir í golfi. Frá vinstri: Hanna Guðrún er yngst, síðan móðir hennar Kristín Leopoldína, og svo móðir hennar Stein- gerður og faðir hennar og ættfaðirinn Hilmar. Hægrisinnaður verkalýðsforingi Hjónin Hilmar og Jóna áttu 68 góð ár saman og eiga fjölda afkomenda. Til hamingju með daginn Dalabyggð Snær Kárason fæddist 9. janúar 2020 kl. 19.24. Hann vó 4.700 g og var 53 cm langur. Foreldrar hans eru Kári Gunnarsson og Berghildur Pálmadóttir. Nýr borgari 40 ára Runólfur Helgi ólst upp á Sel- tjarnarnesi og býr þar enn. Runólfur Helgi er rafvirki og vinnur hjá Héðni-Schindler- lyftum. Helstu áhuga- mál Runólfs Helga eru crossfit, frisbígolf og handbolti. Maki: Auður Björg Guðmundsdóttir, f. 1985, fatahönnuður og nemi í Háskóla Íslands á menntavísindasviði. Börn: Guðmundur Elí, f. 2011, Sig- urveig, f. 2014, og Ronja Karen, f. 2017. Foreldrar: Sigurveig Runólfsdóttir, f. 1961, hárgreiðslukona, rekur Perma hárgreiðslustofu, og Jónas Friðgeirsson, f. 1952, rafvirki. Þau búa á Seltjarn- arnesi. Runólfur Helgi Jónasson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.