Morgunblaðið - 01.12.2020, Síða 26
UNDANKEPPNI EM
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Íslenska kvennalandsliðið í knatt-
spyrnu gæti þurft að bíða fram í
febrúar á næsta ári til þess að fá úr
því skorið hvort liðið fari beint í
lokakeppni EM 2022 eða hvort það
þarf að fara í umspil.
Ísland mætir Ungverjalandi í
lokaleik sínum í F-riðli undan-
keppninnar á Szusza Ferenc-
vellinum í Búdapest í dag en ís-
lenska liðið tryggði sér annað sæti
riðilsins með 3:1-sigri gegn Slóvakíu
í Senec á fimmtudaginn síðasta.
Ísland á ennþá góða möguleika á
því að komast beint í lokakeppnina
sem fram fer á Englandi en þrjú lið,
með bestan árangur í öðru sæti síns
riðils, komast beint í lokakeppnina
líkt og þau lið sem enda í efsta sæti
síns riðils.
Undankeppnin samanstendur af
níu riðlum. Í tveimur riðlanna eru
sex lið en í hinum sjö eru liðin fimm.
Í riðlunum tveimur þar sem sex lið
leika gilda leikirnir gegn botnliði
riðilsins ekki, og hefur það umtals-
verð áhrif á heildarstigafjölda efstu
tveggja liðanna þegar upp er staðið.
Eins og staðan er í dag er Ísland
með annan besta árangur allra liða í
öðru sæti riðlakeppninnar. Íslenska
liðið er með 16 stig en liðið þarf án
alls vafa að vera með 19 stig til þess
að eiga möguleika á að komast beint
í lokakeppni EM.
Í fjórum öðrum riðlum eru liðin í
öðru sæti í svipaðri stöðu og Ísland
og það gæti vel farið svo að marka-
talan skæri úr um það að lokum
hvaða lið það verða sem fara beint í
lokakeppnina. Íslenska liðið er með
nítján mörk í plús eins og staðan er
í dag og verður með tuttugu mörk í
plús að lágmarki, ef liðið vinnur
Ungverjaland.
Flókin staða í riðlakeppninni
Í H-riðli er Sviss með 19 stig og
Belgía 18 en liðin mætast í Heverlee
í Belgíu í hreinum úrslitaleik um
efsta sæti riðilsins í kvöld. Allt
nema jafntefli yrði óskaúrslit fyrir
Ísland.
Í B-riðli mætast Danmörk og
Ítalía í Viborg í dag en Danir eru nú
þegar búnir að tryggja sér sæti í
lokakeppninni. Ítalir eru með 21
stig í öðru sæti riðilsins, 15 ef dreg-
in eru frá stigin sem liðið fékk gegn
botnliði Georgíu. Ítalir eiga tvo leiki
eftir og því ljóst að danskur sigur
myndi setja Ísland ofar Ítalíu.
Í E-riðli er staðan flóknust því
þar eru tvær umferðir óleiknar og
verða þær umferðir spilaðar í febr-
úar á næsta ári. Finnland, Portúgal
og Skotland berjast um sæti í loka-
keppninni en Finnland og Portúgal
standa best að vígi með 13 stig þeg-
ar þremur umferðum er ólokið.
Finnland og Portúgal eiga þó eftir
að mætast innbyrðis.
Staðan er því ansi flókin og fari
svo að Ísland vinni stóran sigur í
Búdapest getur liðið ekki leyft sér
að fagna sæti í lokakeppninni fyrr
en í fyrsta lagi í kvöld.
Fari svo að Ísland komist ekki
beint í lokakeppnina á liðið ennþá
góða möguleika á að komast á
fjórða Evrópumótið í röð en liðin
sex, sem hafna í öðru sæti en kom-
ast ekki beint á EM, fara í umspil
sín á milli um þrjú síðustu sætin.
Allt undir gegn Ungverjum
„Þessi leikur leggst mjög vel í
mig og allan hópinn,“ sagði Sara
Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði ís-
lenska liðsins, í samtali við Morgun-
blaðið í gær. „Við vitum allar upp á
hár hvað er undir í þessum leik en á
sama tíma er alls ekkert öruggt að
við séum komnar í lokakeppnina,
jafnvel þótt við vinnum á morgun.
Þetta snýst um að við klárum okkar
og vonandi fara svo hinir leikirnir
eins og við viljum að þeir fari.
Ég á von á mjög svipuðum leik og
gegn Slóvökunum. Það var sjokk að
lenda 1:0-undir í Slóvakíu en að
sama skapi var það kannski bara
fínt því núna gerum við okkur grein
fyrir því að við þurfum að vera á
fullu frá fyrstu mínútu gegn Ung-
verjalandi,“ sagði landsliðsfyrirlið-
inn sem á að baki 135 A-landsleiki.
Sara Björk segir að íslenska liðið
geti ekki leyft sér að vanmeta Ung-
verjana þrátt fyrir að Ísland hafi
unnið nokkuð sannfærandi 4:1-sigur
á Laugardalsvelli í fyrri leik liðanna
í lok ágúst 2019.
„Ég á von á hörkuleik enda eru
þær með fínt lið og fína leikmenn.
Við þurfum þess vegna að eiga
toppleik til þess að klára þær og við
getum ekki leyft okkur að slaka á
eða vanmeta þær á einhvern hátt
enda gríðarlega mikilvægur leikur
fyrir okkur.
Það er búið að fara vel yfir allt
sem skiptir máli, eins og til dæmis
markatöluna, en svo þurfum við líka
bara að sjá hvernig leikurinn
þróast. Númer eitt, tvö og þrjú er
að taka þrjú stig og vinna leikinn og
svo, ef við sköpum okkur mörg
tækifæri, þurfum við að vera á tán-
um og nýta þau vel. Við erum með
þetta á bak við eyrað og vitum að
þetta gæti ráðið úrslitum,“ bætti
miðjukonan við í samtali við Morg-
unblaðið.
Þær geta ekki leyft sér
að fagna of snemma
Ísland mætir Ungverjum í lokaleik sínum í undankeppni EM í Búdapest í dag
Morgunblaðið/Eggert
Leiðtogi Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir, lengst til vinstri, ætlar sér á fjórða Evrópumótið í röð.
Riðill Íslands
Svíþjóð 7 6 1 0 34:2 19
Ísland 7 5 1 1 24:5 16
Slóvakía 7 3 1 3 7:13 10
Ungverjal. 7 2 1 4 11:19 7
Lettland 8 0 0 8 2:39 0
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 2020
Knattspyrnumaðurinn Hallur
Flosason hefur framlengt samning
sinn við uppeldisfélag sitt ÍA um
eitt ár en þetta staðfesti félagið á
samfélagsmiðlum sínum í gær.
Hallur, sem er 27 ára gamall, hef-
ur leikið með ÍA allan sinn feril en
hann lék sinn fyrsta meistara-
flokksleik fyrir félagið árið 2011.
Hann á að baki 82 leiki í efstu deild
þar sem hann hefur skorað fjögur
mörk en alls hefur hann leikið 120
meistaraflokksleiki fyrir Skaga-
menn. Hann lék ellefu leiki með ÍA í
úrvalsdeildinni í sumar.
Framlengdi á
Akranesi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bakvörður Hallur hefur verið mik-
ilvægur hlekkur í liði ÍA síðustu ár.
Njarðvíkingurinn Elvar Már Frið-
riksson var valinn leikmaður nóv-
embermánaðar í efstu deildinni í
körfuknattleik í Litháen.
Eftir erfiða byrjun á tímabilinu
náði lið Elvars, Siauliai, að vinna
fyrstu tvo leiki sína í deildinni á
tímabilinu í nóvember.
Elvar þótti fara fyrir liðinu í
þessum leikjum og tölurnar hjá
honum í nóvember eru ekkert slor:
18,5 stig að meðaltali og 9,5 stoð-
sendingar að meðaltali.
Elvar er fyrsti Íslendingurinn
sem leikur í efstu deild í Litháen.
Skaraði fram úr
í nóvember
Ljósmynd/Sveinn Helgason
Litháen Elvar Már hefur vakið
athygli fyrir frammistöðu sína.
Evrópudeild karla
D-RIÐILL:
Tatabánya – RN Löwen...................... 26:32
Alexander Petersson skoraði sex mörk
fyrir Löwen, Ýmir Örn Gíslason komst ekki
á blað.
Staðan: RN Löwen 6 stig, Kadetten 3,
Trimo Trebnje 2, GOG 2, Eurofarm Pel-
ister 1, Tatabánya 0.
England
West Ham – Aston Villa ..........................2:1
Leicester – Fulham.................................. 1:2
Staðan:
Tottenham 10 6 3 1 21:9 21
Liverpool 10 6 3 1 22:17 21
Chelsea 10 5 4 1 22:10 19
Leicester 10 6 0 4 19:14 18
West Ham 10 5 2 3 17:11 17
Southampton 10 5 2 3 19:16 17
Wolves 10 5 2 3 11:11 17
Everton 10 5 1 4 19:17 16
Manch.Utd 9 5 1 3 16:16 16
Aston Villa 9 5 0 4 20:13 15
Manch.City 9 4 3 2 15:11 15
Leeds 10 4 2 4 15:17 14
Newcastle 10 4 2 4 12:15 14
Arsenal 10 4 1 5 10:12 13
Crystal Palace 10 4 1 5 12:15 13
Brighton 10 2 4 4 14:16 10
Fulham 10 2 1 7 11:19 7
WBA 10 1 3 6 7:18 6
Burnley 9 1 2 6 4:17 5
Sheffield Utd 10 0 1 9 4:16 1
Spánn
Real Betis – Eibar .................................... 0:2
Staða efstu liða:
Real Sociedad 11 7 3 1 22:5 24
Atlético Madrid 9 7 2 0 19:2 23
Villarreal 11 5 5 1 15:11 20
Real Madrid 10 5 2 3 16:12 17
Sevilla 9 5 1 3 12:8 16
Cádiz 11 4 3 4 9:12 15
Barcelona 9 4 2 3 19:9 14
Granada 10 4 2 4 11:17 14
B-deild:
Real Oviedo – Almería ............................ 1:2
Diego Jóhannesson var á varamanna-
bekknum hjá Oviedo.
Ítalía
Genoa – Parma ......................................... 1:2
Torino – Sampdoria.................................. 2:2
Staða efstu liða:
AC Milan 9 7 2 0 21:8 23
Napoli 8 6 0 2 20:7 18
Inter Mílanó 9 5 3 1 23:13 18
Sassuolo 9 5 3 1 20:12 18
Roma 8 5 2 1 19:12 17
Juventus 8 3 5 0 15:7 14
Atalanta 9 4 2 3 18:16 14
Lazio 9 4 2 3 14:16 14
Holland
B-deild:
Jong PSV – Telstar ................................. 0:1
Kristófer Ingi Kristinsson lék allan leik-
inn með Jong PSV.
Kasakstan
Kyzylzhar – Astana ................................. 0:1
Rúnar Már Sigurjónsson sat allan tím-
ann á varamannabekk Astana.
Danmörk
Bröndby – Lyngby................................... 4:1
Hjörtur Hermannsson kom inn á sem
varamaður hjá Bröndby á 81. mínútu.
Frederik Schram sat allan tímann á
varamannabekk Lyngby.
Staðan:
Brøndby 10 7 0 3 21:14 21
Midtjylland 10 6 2 2 17:12 20
SønderjyskE 10 5 3 2 18:13 18
Nordsjælland 10 4 4 2 20:13 16
AaB 10 4 4 2 11:11 16
AGF 10 4 3 3 18:14 15
Vejle 10 4 2 4 17:19 14
Randers 10 4 1 5 14:11 13
København 10 4 1 5 18:20 13
OB 10 3 2 5 14:17 11
Horsens 10 1 3 6 8:18 6
Lyngby 10 0 3 7 10:24 3
Svíþjóð
AIK – Kalmar........................................... 0:1
Kolbeinn Sigþórsson kom inn á sem
varamaður hjá AIK á 66. mínútu.
Hammarby – Norrköping....................... 0:1
Aron Jóhannsson lék ekki með Hamm-
arby þar sem hann tók út leikbann.
Ísak B. Jóhannesson lék fyrstu 87. mín-
úturnar með Norrköping.
Staðan:
Malmö 29 16 9 4 60:30 57
Elfsborg 29 12 14 3 47:36 50
Häcken 29 12 12 5 45:29 48
Norrköping 29 13 7 9 57:42 46
Djurgården 29 13 6 10 47:33 45
Mjällby 29 12 8 9 45:42 44
Hammarby 29 10 11 8 46:45 41
Örebro 29 11 6 12 35:40 39
AIK 29 10 8 11 28:31 38
Sirius 29 9 11 9 43:49 38
Varberg 29 10 7 12 45:43 37
Östersund 29 8 9 12 27:42 33
Gautaborg 29 6 13 10 33:41 31
Kalmar 29 6 9 14 30:49 27
Falkenberg 29 5 9 15 31:51 24
Helsingborg 29 4 11 14 29:45 23