Morgunblaðið - 01.12.2020, Qupperneq 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 2020
Það verður afar áhugavert að
sjá hvaða þjálfari tekur við ís-
lenska karlalandsliðinu í fótbolta
og verður arftaki Eriks Hamréns
sem stýrði liðinu í síðasta skipti
gegn Englandi í Þjóðadeildinni á
dögunum.
Síðustu tveir landsliðsþjálf-
arar hafa verið sænskir og það
heilt yfir gengið vel, þrátt fyrir að
Hamrén mistækist afar naum-
lega að koma Íslandi á þriðja
stórmótið í röð. Ég var aðdáandi
Hamréns sem fékk það gríðar-
lega erfiða verkefni að taka við
landa sínum og uppáhaldi Íslend-
inga Lars Lagerbäck.
Hamrén tókst aldrei að
vinna þjóðina á sitt band líkt og
Lagerbäck. Liðið tapaði 0:6 fyrir
Sviss í fyrsta leik Hamréns og
eftir það var það brekka að fá
stuðningsmenn með sér í lið.
Hann gerðist svo sekur um það
„mikla gáleysi“ að ætla að fagna
góðum sigri með vindli sem
gerði hann enn óvinsælli, þótt
mér hafi fundist það mjög
skemmtilegt.
Ísland hefur ekki úr eins
mörgum gæðaleikmönnum að
velja og fremstu knatt-
spyrnuþjóðir Evrópu og því
ósköp eðlilegt að illa gengi í A-
deild Þjóðadeildarinnar, með
vængbrotið lið hvað eftir annað.
Þegar Hamrén gat notað
bestu leikmenn íslenska liðsins
gekk yfirleitt vel. Ísland lék tíu
leiki í undankeppni EM og vann
sex, gerði eitt jafntefli og tapaði
þremur leikjum. Tvö af þremur
töpunum voru gegn heimsmeist-
urum Frakka.
Heilt yfir var árangurinn
nokkuð góður hjá Hamrén í leikj-
unum sem skiptu mestu máli og
þegar bestu leikmenn liðsins
voru til taks. Því miður skemmdu
fimm mínútur í Ungverjalandi
fyrir mínum manni.
BAKVÖRÐUR
Jóhann Ingi
Hafþórsson
johanningi@mbl.isAlexander Petersson, landsliðs-
maður í handknattleik, var næst-
markahæstur hjá Rhein-Neckar
Löwen þegar liðið vann Tatabánya
32:26 í Ungverjalandi í gær þegar
liðin mættust í EHF-bikarnum.
Alexander skoraði sex mörk og
gaf eina stoðsendingu fyrir Löwen
en Alexander er nýfarinn að leika á
ný eftir meiðsli sem héldu honum
frá keppni um stund. Ýmir Örn
Gíslason lék í vörninni hjá Löwen
en skoraði ekki.
Löwen hefur unnið fyrstu þrjá
leikina í D-riðli keppninnar.
Alexander lét
að sér kveða
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Góður Alexander Petersson var
næstmarkahæstur hjá Löwen.
Franski knattspyrnudómarinn
Stephanie Frappart öðlast sér-
stakan sess í knattspyrnusögunni á
morgun þegar hún verður fyrsta
konan sem dæmir karlaleik í Meist-
aradeild Evrópu. Frappart mun
annast dómgæsluna þegar ítölsku
meistararnir í Juventus taka á móti
úkraínska liðinu Dynamo Kiev í
Tórínó í G-riðli keppninnar.
Frappart dæmdi á dögunum leik
Svíþjóðar og Íslands í undankeppni
EM kvenna í Gautaborg. Hún hefur
þegar dæmt í Evrópudeildinni hjá
körlunum.
AFP
Dómari Stephanie Frappart fær
stórt verkefni á morgun.
Fyrsta konan
sem dæmir
FÓTBOLTI
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
„Kannski af því að ég er 45 ára,“
svaraði Gunnleifur Gunnleifsson
hlæjandi aðspurður hvers vegna
hann væri að leggja markvarðar-
hanskana og takkaskóna á hilluna
eftir langan og farsælan feril. Gunn-
leifur er leikjahæsti leikmaður í sögu
íslenskrar deildarkeppni í knatt-
spyrnu, en hann tilkynnti á dögunum
að hann væri hættur.
Gunnleifur spilaði 439 deildarleiki
á Íslandi en hann lék fyrst með HK
árið 1994. Hann spilaði 304 leiki í
efstu deild með KR, Keflavík, HK,
FH og Breiðabliki. Þá á hann 26 A-
landsleiki á árunum 2000 til 2014.
Gunnleifur lék ekkert í sumar þar
sem hann var aðstoðarþjálfari og
varamarkvörður Breiðabliks eftir að
félagið sótti Anton Ara Einarsson frá
Val.
Elskar allt við fótbolta
„Ég var eiginlega hættur að spila í
sumar og var bara að þjálfa. Mér
fannst ágætt að gera þetta formlegt
núna og þakka fyrir mig,“ sagði
Gunnleifur. Hann lék alla 22 leiki
Breiðabliks í Pepsi Max-deildinni á
síðasta ári, þá á 44. aldursári. „Mun-
urinn núna og þá er að hausinn á mér
er kominn annað. Ég er kominn út í
þjálfun og mig langar að styðja við
bakið á Antoni. Ég er sáttur og stolt-
ur af ferlinum,“ sagði markvörðurinn
við Morgunblaðið.
Gunnleifur segir það ekki hafa
komið til greina að semja við annað
félag en Breiðablik og halda áfram að
spila, þrátt fyrir mikla ástríðu fyrir
leiknum. „Nei. Ég hef oft verið spurð-
ur hvað ég ætla að gera eftir ferilinn
og fólk virðist hafa svakalegar
áhyggjur af mér. Ég elska íþróttina
og allt við hana, ég elska að vera í
kringum hana og vera í kringum aðra
fótboltamenn, ég elska lyktina af
búningunum og allt sem viðkemur
fótbolta. Þótt ég sé hættur að spila
verð ég áfram í kringum fótboltann
og því er ekki eins erfitt að hætta.“
Gunnleifur er ekki alveg viss hvert
hann stefnir í þjálfun, en hann þjálfar
nú bæði yngri flokka og er í þjálf-
arateymi meistaraflokks Breiðabliks.
„Ég kann lítið annað en fótbolta, en
mér finnst rosalega ánægjulegt að
vinna með krökkum. Það gefur mér
mikið að vinna með þeim. Mér finnst
líka gaman að vinna með fullorðnum
og markvörðum. Starfið mitt í dag
fullnægir þeim þörfum. Ég er í yngri
flokkum, eldri flokkum og svo með
markmenn og það er á meðan er, en
svo veit maður aldrei hvað verður.
Við sjáum svo til hvað tekur við.“
Eins og gefur að skilja er Gunn-
leifur stoltur af glæsilegum ferli og
sérstaklega að vera leikjahæstur í ís-
lenskri deildakeppni. „Ég er það og
sérstaklega að hafa náð að spila
svona marga leiki. Þegar ég hætti var
ég á hæsta stigi á Íslandi, með liði í
toppbaráttunni og með liði sem er al-
vörutopplið á Íslandi. Ég stóð alltaf
mína vakt. Þetta var langur ferill,
einn fjórði úr öld, sem ég spila meist-
araflokksfótbolta og ég er búinn að
vera markvörður í 39 ár. Ég hef verið
stálheppinn með að fara hálf meiðsla-
laus í gegnum þetta og getað þetta.
Ég er mjög fínn í skrokknum núna
eins og eiginlega alltaf. Auðvitað hef-
ur maður alltaf fundið fyrir við og við,
annað væri skrítið.“
Ferðalagið sjálft stóð upp úr
Gunnleifur gat ekki nefnt einhvern
einn hápunkt á ferli sínum með fé-
lagsliðum. Þess í stað varaði hann við
klisjukenndu svari og sagði ferilinn í
heild sinni og ferðalagið í kringum
hann standa upp úr. „Kannski er
þetta voðalega bíómyndalegt og
klisjukennt en það er ferðalagið sem
stendur upp úr. Ég er búinn að kynn-
ast ótrúlega mörgu fólki og á marga
góða vini sem ég kynntist í gegnum
fótboltann. Allt lífið mitt hefur snúist
um þetta og ég hef farið í fullt af
ferðalögum og unnið alla titla sem
hægt er að vinna. Þeir standa ekki
sérstaklega upp úr þótt það hafi verið
frábært að vinna þá. Ég er á því að
það sé ferðalagið sem mér þykir
vænst um þegar ég horfi til baka. All-
ar barátturnar, öll gleðin og von-
brigðin og allur pakkinn. Þetta er bú-
ið að vera lífið mitt og verður það
áfram, en bara í öðru formi,“ sagði
hann.
Gunnleifur var í íslenska landsliðs-
hópnum alla undankeppnina fyrir
EM í Frakklandi 2016, en fór svo
ekki með á lokamótið og upplifði því
aldrei að fara á stórmót. „Ég er þeim
hæfileikum gæddur að trúa því að allt
gerist af ástæðu,“ sagði Gunnleifur,
en gat svo ekki leynt vonbrigðum sín-
um. „Vonbrigðin við að fara ekki á
EM voru gríðarleg á sínum tíma. Það
var eins og að missa náinn ættingja.
Ég lá andvaka yfir þessu á nóttunni
og auðvitað var það erfitt. Ég trúi því
hins vegar núna að það hafi átt að
gerast og það er bara fínt. Það var
margt erfitt í þessu, það var erfitt að
tapa úrslitaleikjum, erfitt að fara frá
liðum þar sem manni leið vel og erfitt
að gera mistök í leikjum. Það var fullt
af erfiðum augnablikum, en ef ég
þyrfti að nefna eitt atriði var það að
missa af EM mestu vonbrigðin.“
Hann viðurkennir að hafa öfundað
leikmenn íslenska liðsins þegar þeir
slógu í gegn í Frakklandi og fóru alla
leið í átta liða úrslit. „Ég var auðvitað
ekki svekktur að sjá að þeim gekk
svona vel, þetta var frekar öfund að
fá ekki að vera með. Þetta eru allt
vinir mínir,“ sagði Gunnleifur.
Toppurinn að spila fyrir Ísland
Að lokum barst talið að landsliðs-
ferlinum. Gunnleifur var margoft í
landsliðshópnum á ferlinum og lék
alls 26 A-landsleiki. Það mátti heyra
mikla í gleði í rödd Gunnleifs þegar
hann rifjaði stuttlega upp landsliðs-
ferilinn „Það er svo margt sem stend-
ur upp úr með landsliðinu. Ég fór til
fullt af landa sem ég gat ekki ímynd-
að mér að ég myndi nokkurn tímann
fara til. Að spila í landsliðstreyjunni
og vera valinn í hópinn var stórkost-
legt. Það var frábært að spila á móti
ótrúlegum leikmönnum eins og Ro-
naldo, öllum hollensku gæjunum og
spila á Hampden Park. Ég fór til Ír-
ans, Japans, Ísraels og Albaníu og
alls konar. Það var stórkostlegt að
spila fyrir íslenska landsliðið og eitt-
hvað sem ekki margir fá að gera. Ég
var örugglega valinn 80-90 sinnum í
hópinn og þótt ég hafi ekki spilað
nema 26 leiki, þá var æðislegt að
kynnast þessum strákum sem margir
eru mjög góðir vinir mínir í dag og
verða ævilangt. Fyrir mér var topp-
urinn á mínum fótboltaferli að spila
fyrir land og þjóð,“ sagði Gunnleifur
Gunnleifsson.
Eins og að missa náinn
ættingja að fara ekki á EM
Morgunblaðið/Hari
Markvörður Gunnleifur Gunnleifsson er hættur eftir langan og glæsilegan feril hér á landi og með landsliði.
Gunnleifur Gunnleifsson er hættur eftir langan og magnaðan feril
Ferill Gunnleifs
» 1995 ................................ HK
» 1996 .............................. KVA
» 1997................................. HK
» 1998 – 1999 .................... KR
» 2000 – 2001........... Keflavík
» 2002 – 2009................... HK
» 2009.................. Vaduz (lán)
» 2010–2012 ...................... FH
» 2013– 2020......... Breiðablik
» 2000–2014................ Ísland
Leicester City
tapaði í gær
óvænt á heima-
velli fyrir Ful-
ham 1:2 í ensku
úrvalsdeildinni í
knattspyrnu.
Fulham, sem
er í 17. sæti
deildarinnar,
hafði aðeins unn-
ið einn leik í
deildinni þegar kom að leik liðanna.
Liðið er nú með sjö stig eftir 10 leiki
en Leicester er með 18 stig í 4. sæti.
Ademola Lookman og Ivan
Cavaleiro skoruðu fyrir Fulham en
Harvey Barnes fyrir Leicester.
West Ham United vann þriðja
leikinn í röð þegar liðið vann Aston
Villa 2:1 eftir spennuleik í London.
Angelo Ogbonna og Jarrod Bowen
skoruðu fyrir West Ham en Jack
Grealish fyrir Villa.
Ollie Watkins brenndi af víta-
spyrnu fyrir Aston Villa á 76. mín-
útu þegar hann skaut í slá. Hann
kom boltanum í markið í uppbótar-
tíma og taldi sig hafa jafnað. Eftir
að myndband hafði verið skoðað
var ákveðið að markið myndi ekki
standa vegna rangstöðu.
Eftir rólega byrjun er West Ham
í 5. sæti með 17 stig en Aston Villa í
10. sæti með 15 stig. Villa hefur tap-
að fjórum af síðustu fimm leikjum.
Óvænt tap
hjá Leicester
á heimavelli
Ademola
Lookman