Morgunblaðið - 01.12.2020, Side 32

Morgunblaðið - 01.12.2020, Side 32
fjölda nefnda, skrifaði margar grein- ar um náttúrufræðileg efni og flutti erindi. Hann segir að starfið hafi veitt sér mikla ánægju. „Það er skemmtilegt að geta unnið að áhuga- máli sínu, íslenskri náttúru, og fengið öll þessi tækifæri til þess eins lengi og raun ber vitni,“ segir hann. „Svo hef ég verið sérstaklega heppinn með starfsfólk alla tíð, þetta eru sér- vitringar og skrýtið fólk en mjög klárt.“ Þorkell Lindberg Þórarinsson tek- ur við starfi forstjóra NÍ í dag. „Hann tekur við góðu búi,“ segir Jón Gunnar og vísar til þess að stofnunin standi vel fjárhagslega og búi yfir miklum mannauði auk þess sem allur aðbúnaður sé orðinn góður. „Ekki er hægt að neita því að oft hefur verið mikið basl að halda þessu gangandi en nú er stofnunin komin á mjög gott ról.“ Starfsfólk Náttúrufræðistofnunar hélt Jóni Gunnari sérstakt „Covid- kaffisamsæti“ í kveðjuskyni í gær. Hann segir að ekkert sérstakt sé á döfinni hjá sér á þessum tímamótum. „Þetta er skrýtin tilfinning en góð að vissu leyti,“ segir hann. Hann eigi sér mörg áhugamál eins og til dæmis stangveiði, skák, bóklestur og fleira. „Ég hef engar áhyggjur af því að ég finni mér ekki eitthvað til dundurs.“ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Í gær var síðasti vinnudagur Jóns Gunnars Ottóssonar sem forstjóra Náttúrufræðistofnunar Íslands. Hann gegndi starfinu frá 1994 og vann í raun við fag sitt hjá ríkinu á einn eða annan hátt frá því hann varði doktorsritgerð um samskipti skordýra og burkna frá Háskólanum í Exeter á Englandi 1981 eða í tæp- lega 40 ár. „Nú er komið nóg og gott að skipta um mann í brúnni,“ segir Jón Gunnar, sem varð sjötugur á föstudag. Náttúrufræðistofnun var í óhent- ugu, lélegu og litlu húsnæði við Hlemm í Reykjavík, þegar Jón Gunnar tók við stjórninni, en er nú með starfsstöðvar í nýlegu húsnæði í Urriðaholti í Garðabæ sem og á Akureyri auk þess sem borkjarna- safn stofnunarinnar er rekið í sam- starfi við Breiðdalssetur á Breið- dalsvík. „Síðan ég byrjaði hefur Náttúrufræðistofnun Íslands verið byggð upp, henni komið á koppinn í þjóðfélaginu og starfsmönnum fjölg- að úr um 10 í 50 til 60,“ segir hann. „Þetta er allt önnur stofnun.“ Nútímavæðing og gagnasöfnun Á löngum ferli segir Jón Gunnar að nútímavæðing stofnunarinnar standi helst upp úr. Hún hafi verið færð meira í átt til alþjóðlegra skuld- bindinga og vinnubrögðin taki meira mið af því sem gerist á alþjóðlegum markaði en áður. „Það stendur líka upp úr að þótt miklar breytingar hafi verið gerðar á náttúruverndarlögum og annarri löggjöf hefur oft gengið mjög illa að koma þeim í fram- kvæmd.“ Margt hefur áunnist hjá stofn- uninni og Jón Gunnar segir að eitt það merkilegasta sem hann hafi stað- ið fyrir séu ný vinnubrögð við skrá- setningu á náttúru Íslands. „Við höf- um aldrei haft jafn góð og mikil gögn um náttúruna og nú.“ Auk hefðbundinna starfa var Jón Gunnar meðal annars fulltrúi Íslands í ótal alþjóðasamningaviðræðum í náttúruverndarmálum frá 1990, í Sérvitringar og skrýtið en klárt fólk  Jón Gunnar Ottósson í íslenskri náttúru í áratugi Morgunblaðið/Eggert Kveðjustund í gær Jón Gunnar Ottósson í góðum félagsskap. ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 336. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mætir Ung- verjalandi í undankeppni EM á Szusza Ferenc-vellinum í Búdapest í dag. Þetta er lokaleikur liðsins í undan- keppninni en Ísland er með 16 stig í öðru sæti F-riðils undankeppninnar og öruggt með annað sæti riðilsins. Íslenska liðið er hins vegar í harðri baráttu um sæti í lokakeppni EM 2022. Þrjú lið með bestan árangur í öðru sæti síns riðils í undankeppninni fara beint á EM en hin sex liðin, sem hafna í öðru sæti, þurfa að fara í umspil um laust sæti á EM. »26 Ísland mætir Ungverjalandi í loka- leik sínum í undankeppni EM í dag ÍÞRÓTTIR MENNING Dagur íslenskrar tónlistar er í dag og verður deginum fagnað á margvíslegan hátt. Útvarpsstöðvar setja til að mynda íslenska tónlist í forgrunn og tónmenntakenn- arar hafa æft með nemendum lög sem þeir syngja í dag. Klukkan 13 hefst svo dagskrá sem verður í beinni á RÚV og verða þar flutt þrjú lög. Fyrst flytur Bríet Esjuna eftir þau Pálma Ragnar Ásgeirsson. Þá flytur Una Stefáns- dóttir Tunglið, tunglið taktu mig eftir Stefán S. Stef- ánsson og ljóðið eftir Theodóru Thoroddsen. Loks flyt- ur Björn Jörundur Lítinn fugl eftir Sigfús Halldórsson en í ár er öld frá fæðingu sönglagaskáldsins vinsæla. Vinsæl lög flutt í beinni útsendingu á degi íslenskrar tónlistar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.