Morgunblaðið - 11.12.2020, Síða 1

Morgunblaðið - 11.12.2020, Síða 1
Leikskólabörn undruðust jólasveina Leikskólabörn á Rofaborg í Reykjavík voru misundrandi yfir heimsókn jólasveina þar á bæ í gær. Ef til vill vegna þess að venju samkvæmt á enginn sveinanna að vera kominn til byggða. Þessi börn gleyma því líklega ekki að setja skó út í glugga í kvöld þar sem Stekkjarstaur kemur til byggða í nótt. Það voru hins vegar þeir Skyrgámur og Hurðaskellir sem villt- ust af leið til byggða og kíktu á börnin á Rofaborg. Jóla- dagskráin í leikskólanum er með óvenjulegu sniði í ár eins og flest annað og fór jólasveinaskemmtunin fram utandyra. Morgunblaðið/Eggert F Ö S T U D A G U R 1 1. D E S E M B E R 2 0 2 0 Stofnað 1913  292. tölublað  108. árgangur  HILDUR LÝKUR ÞRÍ- LEIKNUM SÍNUM MEÐ SKÓGINUM VALDIR FOSSAR VERÐI FRIÐAÐIR SKARPHÉÐINN STÝRIR HJÁ LA RAMS SAMANTEKT 12 NÝ TÆKNI 34HANDAN TÍMANS 36 Um 20 þúsund kylfingar eru skráðir í 62 golfklúbba víðs vegar um land og hefur fjölgað um tvö þúsund frá síðasta ári. Karlar eru í nokkrum meirihluta þeirra sem skráðir eru í golfklúbba á Íslandi eða 69% á móti 31% kvenna. Meðalkylfingurinn er gjarnan í kringum fimmtugt, en meðalaldur kvenna er 53 ár og með- alaldur karla 46 ár. Til samanburðar var meðalaldur karla í golfhreyfing- unni 47 ár og kvenna 52 ár þegar slíkar tölur voru teknar saman árið 2015. Þetta er meðal þess sem fram kemur á heimasíðu Golfsambands Íslands þar sem fjallað er m.a. um aldur kylfinga, kyn og forgjöf. Börn og unglingar eru 15% af heildar- fjölda þeirra sem stunda golf á Ís- landi og hefur fjölgað um 26% á milli ára. Nú eru 2.370 kylfingar yngri en 15 ára skráðir í golfklúbba landsins, 1.772 strákar og 598 stelpur. Kylfingum hefur fjölgað í öllum aldurshópum, en flestir iðkendur eru 60 ára og eldri eða 6.802. Mest hlut- fallsleg fjölgun er í hópi fólks á ald- ursbilinu 20-39 ára. Meðalforgjöf kvenna á landsvísu er 38,1 en hjá körlum er meðal- forgjöfin 29,9 og hefur nýtt for- gjafarkerfi, sem tekið var upp í árs- byrjun 2020, leitt til þess að forgjöfin hefur hækkað. Hjá körlum er þessi hækkun rétt um fimm högg á milli ára og hjá konum um þrjú högg. Alls eru 516 kylfingar með fimm í forgjöf eða lægri forgjöf, þar af eru átta konur yngri en 18 ára og 37 karlar undir 18 ára aldri. aij@mbl.is Meðalkylfingurinn um fimmtugt  Ungmennum hefur fjölgað  Stór hópur yfir sextugt  Forgjöfin hækkar Fjöldi kylfinga eftir forgjafarflokkum 6.000 4.000 2.000 5 eða minna 5,1 - 10 10,1 - 15 15,1 - 25 25,1 - 35 35,1 - 54 Heimild: golf.is 7.801 3.665 5.144 3.665 1.026 516 Forgjöf: Stekkjastaur kemur í kvöld 13 jolamjolk.is dagar til jóla Baldur Arnarson baldura@mbl.is Sigurður Ástgeirsson, fram- kvæmdastjóri Ísorku, segir stjórn- endur margra fyrirtækja undirbúa uppsetningu hleðslustöðva fyrir raf- bíla til að laða að viðskiptavini. „Ég tel að uppbygging hleðslu- stöðva við dagvöruverslanir og fyrir- tæki verði bylting í uppbyggingu innviða fyrir rafbíla á Íslandi. Með því geta fyrirtækin samtímis haft tekjur af sölu rafmagnsins og af annarri sölu,“ segir Sigurður. T.d. kvikmynda- og veitingahús, líkams- ræktarstöðvar og dagvöruverslanir. Hafa selt 700 stöðvar í ár Ísorka hefur sett upp um 700 heimahleðslustöðvar í ár. Meðal ann- arra fyrirtækja á markaðnum eru Faradice, sem selur íslenskar stöðvar, N1 og Johan Rönning. Sölutölur eru í sumum tilvikum trúnaðarmál en umsvifin benda til að yfir þúsund stöðvar hafi selst í ár. Vignir Örn Sigþórsson, fram- kvæmdastjóri Johan Rönning, segir stígandi í sölu hleðslustöðva. Hins vegar sé aukningin ekki í hlutfalli við aukna sölu rafbíla. Ein skýringin sé að nú fylgi hleðslustöðvar gjarnan með rafbílum frá framleiðendum. Hinrik Örn Bjarnason, fram- kvæmdastjóri N1, segir fyrirtækið hafa sett upp hleðslustöðvar í mörgum af stærstu bílakjöllurum landsins að undanförnu. Eftirspurn- in sé góð frá bílaeigendum í bæði fjölbýlishúsum og sérbýli. Ragnar Þór Valdimarsson, stofn- andi Faradice, segir í undirbúningi að efla markaðssókn á íslenskum hleðslustöðvum fyrirtækisins. M.a. hafi Marel keypt margar stöðvar. Nýtt viðskiptalíkan verði bylting  Ísorka horfir til áforma fyrirtækja  Rafhleðslustöðvar laði að viðskiptavini MRafbílarnir skapa … » 14  Ávöxtunarkrafa á nýjum græn- um skuldabréfaflokki Reykjavíkur- borgar er 4,5%. Niðurstaða úr skuldabréfaútboði borgarinnar var kynnt í gær. Borgin tók tilboðum upp á rúma 3,8 milljarða króna að nafnvirði. Kjörin eru nokkru verri en fengust í skuldabréfaútboði í vor. Þá tók borgin tilboði upp á 2,6 milljarða króna að nafnvirði með 2,99% ávöxtunarkröfu. Sérfræð- ingur í skuldabréfaviðskiptum seg- ir bréfin bera 1,25% álag ofan á rík- isvexti m.v. markaðinn í vikunni. Vaxtakjör hafa því versnað. »2 Grænt skuldabréfa- útboð óhagstætt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.