Morgunblaðið - 11.12.2020, Blaðsíða 8
Markaðsherferðin Let It Out vakti athygli þegar hún var kynnt til leiks.
„Let It Out“ tilnefnd til verðlauna
Öskurherferðin umtalaða hlýtur
tvær tilnefningar til markaðsverðlauna
Markaðsherferðin Let It Out, sem
keyrð var undir merkjum Inspired by
Iceland síðastliðið sumar, hefur verið
tilnefnd til tvennra Digiday-
verðlauna. Tilnefningarnar eru í
flokki almannatengsla annars vegar
og í flokknum besta auglýsingin hins
vegar. Bandaríski miðillinn Digiday
verðlaunar árlega markaðsstarf
fyrirtækja fyrir bæði hugmyndaauðgi
og árangur og eru verðlaunin eftir-
sótt meðal fagfólks í markaðs-
geiranum, að því er fram kemur í til-
kynningu. Myndbandið sem hvatti
fólk til þátttöku í Let it Out-herferð-
inni er tilnefnt í flokknum besta aug-
lýsingin. Það voru M&C Saatchi og
Peel auglýsingastofa sem unnu hand-
rit og hugmyndavinnu að myndband-
inu, Skot sá um tökur og framleiðslu.
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 2020
Jón Magnússon fv. alþing-ismaður veltir fyrir sér skað-
anum af pólitískum meinlokum:
Niðurstaðan úrkönnun
Landspítalans á
orsökum hóp-
smitsins á Landa-
koti, alvarlegasta
hópsmitsins í Có-
víd-faraldrinum,
var sú að hús-
næðið hefði verið
ófullnægjandi.
Sóttvarnalæknir sagði af því til-efni, að það hefði öllum verið
ljóst í töluverðan tíma. Fleiri tóku
undir það.
Nú liggur fyrir að aðrir kostirvoru í boði, sem hefðu gert
mögulegt að koma í veg fyrir
þetta. En það var hjá einkaaðilum,
sem heilbrigðisráðherra vill helst
ekki eiga samskipti við.
Ekkert gert og ófullkomna
hættulega húsnæðið var notað
áfram. Ber enginn ábyrgð á
þessu?
Vitað var að húsnæðinu áLandakoti var ábótavant en
tiltækir kostir til að bæta úr því
voru ekki nýttir. Þarf enginn að
axla ábyrgð vegna atviks sem
leiddi til þess að meira en tugur
einstaklinga lét lífið?
Nú er verið að sækja tvo ein-staklinga til saka skv. ákæru
Héraðssaksóknara fyrir manndráp
af gáleysi vegna slyss sem varð í
fyrirtæki þeirra.
Gildir eitthvað annað um þáopinberu aðila, sem með
ákvörðunum sínum eða ákvarð-
analeysi verða valdir að ótímabær-
um dauðsföllum?“
Jón Magnússon
Pólitísk meinloka?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Heildarlaun félagsmanna í VR í
september síðastliðnum voru 660
þúsund krónur á mánuði ef miðað er
við miðgildi launa og grunnlaun fé-
lagsmanna VR voru þá 653 þúsund.
Meðaltal heildarlaunanna var
nokkru hærra eða 720 þúsund kr.
Þessar upplýsingar koma fram í
launarannsókn VR sem birt er á vef
félagsins. Fram kemur að miðgildi
heildarlauna félagsmanna í VR hefur
hækkað um 5,1% frá seinustu launa-
rannsókn í febrúar sl. og grunnlaun-
in voru 5,1% hærri í september en í
febrúar.
VR er fjölmennasta stéttarfélagið
á almenna vinnumarkaðinum og er
launarannsóknin byggð á upplýsing-
um reiknivélar á vef félagsins og á
skráningu ellefu þúsund félags-
manna eða tæplega þriðjungi VR-fé-
laga.
Ef litið er á launin flokkuð eftir at-
vinnugreinum kemur m.a. í ljós að
meðaltal grunnlauna félagsmanna í
verslun og þjónustu voru 649 þúsund
og miðgildi launanna var 599 þús-
und, þ.e.a.s. helmingur fær hærri
laun en miðgildið segir til um og
helmingur lægri laun.
Meðalheildarlaun í fjármálastarf-
semi, tölvuþjónustu og annarri sér-
hæfðri þjónustu voru 780 þúsund á
mánuði og grunnlaunin 774 þúsund.
Miðgildi grunnlauna í þessari at-
vinnugrein var 715 þúsund á mánuði
og ef litið er á dreifingu launanna má
m.a. sjá að sá fjórðungur starfs-
manna sem voru með hæst laun í
þessari starfsemi var með 906 þús-
unnd kr. á mánuði en neðsti fjórð-
ungurinn 587 þúsund kr.
Ef litið er á starfsstéttir má m.a.
sjá að stjórnendur voru að meðaltali
með 857 þúsund í grunnlaun en mið-
gildi heildarlauna þeirra var 800 þús-
und kr. á mánuði. Skrifstofufólk var
með 567 þúsund kr. að meðaltali í
grunnlaun, miðgildi heildarlauna
þess var 553 þúsund og meðaltal
heildarlaunanna 571 þúsund. Af-
greiðslufólk á kassa var með 448 þús.
kr. í grunnlaun á mánuði (miðgildi)
og 494 þúsund að meðaltali í heild-
arlaun.
Miðgildi grunnlauna starfsmanna
sem eru í flokki upplýsingafulltrúa,
almannatengsla og fjölmiðlafræði
var 948 þúsund en meðalheildarlaun
þeirra voru 910 þúsund. Miðgildi
grunnlauna tölvunarfræðinga var
855 þúsund kr. og heildarlaun þeirra
voru að meðaltali 874 þúsund svo
dæmi séu tekin.
Heildarlaunin í VR
660 þúsund krónur
VR birtir niðurstöður launarannsóknar
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Verið velkomin
Til jóla fyrir dömur og herra
Gjafakassar | Ilmir | Treflar | Silkislæður | Töskur
Hanskar | Skart | Peysur | Buxur | Velúrgallar
1988 - 2018