Morgunblaðið - 11.12.2020, Side 2

Morgunblaðið - 11.12.2020, Side 2
Loðnu mælingar H ei m ild : H af ra nn só kn ar st of nu n Yfi rferð loðnuleitarskipana Kap Ilvid Jóna Eðvalds Ásgrímur Halldórsson Staðsetning skipanna kl. 16.30 í gær Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Reiknað var með að loðnuleit og -mælingum fjögurra veiðiskipa í samvinnu við Hafrannsóknastofnun lyki í gærkvöldi. Niðurstöður mæl- inganna eru væntanlegar í næstu viku. Spurður hvort líkur hafi aukist á því að gefinn verði út upphafskvóti til loðnuveiða í byrjun nýs árs sagði Birkir Bárðarson, fiskifræðingur og leiðangursstjóri, í gær að hann hefði ekkert um það að segja á þessari stundu. Bæði kynþroska og eins árs loðna sást úti fyrir Norðurlandi og mest úti af Vestfjörðum og við Kolbeinseyj- arhrygg. Birkir segir að meira hafi verið af kynþroska loðnu, sem væri hluti af veiðistofni, á austursvæðinu. Til hafnar í dag Hann segir að tekist hafi að fara yfir allt svæðið sem fyrirhugað var að kanna, að undanskildu Græn- landssundi, en um 50 sjómílur úti af Vestfjörðum hafi hafís hamlað för. Tekist hafi að kíkja rétt út fyrir landgrunnsbrúnina, en vegna íssins þurfti að breyta leiðarlínum græn- lenska skipsins Ilvid nokkuð. Þegar talað var við Birki um borð í Ilvid um miðjan dag í gær var skipið vestur af Látrabjargi og var þá komið vonskuveður úti af Vestfjörð- um. Ilvid leitaði á vestursvæðinu, en hin skipin þrjú byrjuðu við Kolbeinseyj- arhrygginn. Ásgrímur Halldórsson SF leitaði austur með landgrunns- brúninni, Jóna Eðvalds SF með hryggnum til norðurs og Kap VE kom á móti Ilvid til vesturs, en leiðarlínur má sjá á meðfylgjandi korti. Í gær voru Ásgrímur og Jóna að leita austan við Langanes, en Kap leitaði grynnra, sunnan við leitar- svæðið úti fyrir Norðurlandi. Birkir sagðist reikna með að þrjú síðast- nefndu skipin kæmu til hafnar í dag, föstudag. Hefðbundinn loðnuleiðangur Haf- rannsóknastofnunar er ráðgerður upp úr áramótum.  Hafís hamlaði loðnuleit á svæði úti af Vestfjörðum Niðurstöður í næstu viku 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 2020 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.isMenning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningarmbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Í baráttu við COVID-19 býður Donnamaska, grímur og andlitshlífar sem eru gæða vara frá DACH og notuð um allan heim. Vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Öryggið í fyrirrúmi fyrir lærða sem leika Sími 555 3100 www.donna.is Heildsöludreifing Type II 3ja laga medical andlitsgríma FFP3 Respirator Comfort andlitsgríma með ventli FFP3 High-Risk andlitsgríma Andlitshlíf móðufrí C-gríma Pandemic Respirator andlitsgríma Fæst í verslunum okkar á Selfossi og í Ármúla 42 KINDAsögur 2. BINDI Ávöxtunarkrafa á nýjum grænum skuldabréfaflokki Reykjavíkurborg- ar er 4,5%, en niðurstaða úr skuldabréfaútboði borgarinnar var kynnt í gær. Í útboðinu tók borgin tilboðum upp á rúma 3,8 milljarða króna að nafnvirði. Þetta eru umtals- vert verri kjör en borgin fékk í skuldabréfaútboði í maí síðastliðn- um, en þá var ákveðið að taka til- boðum að nafnvirði 2,6 milljarðar króna á ávöxtunarkröfunni 2,99%. Agnar Tómas Möller sérfræðing- ur í skuldabréfaviðskiptum segir í samtali við Morgunblaðið að fyrst beri að geta þess að skuldabréfa- flokkurinn sé ekki alveg samanburð- arhæfur við önnur skuldabréf sem borgin hefur verið að gefa út. Nokk- ur munur sé á tímalengd bréfanna. „Miðað við markaðinn eins og hann var fyrr í vikunni sýnist mér að þarna sé verið að bjóða 1,25% álag ofan á ríkisvexti,“ segir Agnar. Býsna hátt álag Undanfarin ár hefur borgin að jafnaði verið að fá kjör sem eru 60-70 punktum yfir því sem ríkið fær á sín- ar skuldbindingar að sögn Agnars, en þeir vextir hafa farið hækkandi á árinu. „Borgin er til dæmis með ann- an skuldabréfaflokk sem er með rúmlega 100 punkta álagi.“ Agnar segir að álagið sem skulda- bréf borgarinnar beri sé býsna hátt. Sértryggð skuldabréfaútgáfa bank- anna, sem notuð er til að fjármagna húsnæðislán, sé til dæmis með um 60 punkta í álag ofan á ríkisvexti, og fasteignafélögin séu með um 140 punkta álag. „Þetta er komið ansi nálægt því hjá borginni.“ Álag á skuldir borgarinnar hefur þannig hátt í tvöfaldast á þessu ári og vaxtakjör versnað. „Öll langtímafjármögnun er orðin ákaflega dýr, einkum í alþjóðlegum samanburði. Fjármögnun hins svo- kallaða Græna plans borgarinnar á næsta ári gæti orðið áskorun.“ Agnar segir að himinn og haf séu á milli langtímafjármögnunarkjara opinberra aðila hér og í flestum öðr- um vestrænum ríkjum. „Greiðslu- byrði af langtímalántöku er því margfalt hærri hjá okkur. Við mun- um borga miklu hærri vexti af Covid-hallanum en flest önnur ríki.“ Græna planið gæti orðið áskorun  Reykjavíkurborg fær umtalsvert verri kjör í útboði nú en í vor  Öll langtímafjármögnun orðin ákaf- lega dýr, einkum í alþjóðlegum samanburði  Borgum miklu hærri vexti af Covid-halla en önnur ríki Morgunblaðið/Eggert Útboð Agnar segir Græna planið hafa ýtt álagi borgarinnar upp. Líklega hefðu fleiri tekið þátt í útboðinu á lægri vöxtum ef ekki væri fyrir planið. „Guðrún var stórkostleg! Eins og alltaf þar sem hún kemur fram,“ sagði Sigurður Þorri Gunnarsson þáttastjórnandi og bingóstjóri K100 eftir bingó- þátt gærkvölds- ins. Listakonan Guðrún Ýr Ey- fjörð, einnig þekkt sem GDRN, kom í settið og tók lög- in Vorið og Hug- arró af plötunni sinni GDRN, einni bestu plötu ársins að mati Sigga. Bingóspilarar voru í essinu sínu að sögn Sigga, en myndir af bingóspili streymdu inn sem og tillögur að orðum fyrir bingóstafina undir myllumerkinu #mblbingó. „Ég er strax farinn að hlakka til næsta fimmtudagskvölds og næsta þáttar, sem verður með jólaívafi,“ segir Siggi. Heppnin var með Árna Sigurðs- syni sem vann aðalvinning bingó- þáttar gærkvöldsins; glæsilegan Samsung-síma. Hann var hinn hressasti að spila með kærustunni sinni og hringdi í lok þáttarins og ræddi við Sigga. Bingó mbl.is og K100 verður á sínum stað að viku liðinni og eins og áður sagði verður það jólaþátt- ur. „Það er bara að taka upp kúl- urnar og kögrið fyrir næsta þátt og keyra jólastemninguna í gang,“ segir Siggi í jólastuði. Fylgjast má með næsta fimmtudagskvöld á mbl.is og á K100-stöðinni í Sjón- varpi Símans. Heppinn bingóspil- ari fékk nýjan síma Morgunblaðið/Eggert Bingókvöld Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir eða GDRN tók lagið í gær.  GDRN „stórkostleg“ að venju Siggi Gunnars Upp hefur komið hópsmit eða klasa- smit kórónuveiru á höfuðborgar- svæðinu. Þetta varð ljóst í gær. Varðstjóri hjá slökkviliði höfuðborg- arsvæðisins sagði í samtali við mbl.is seint í gærkvöldi að töluverðar annir hefðu verið í gær við að flytja fólk með staðfest smit í farsóttarhús. Flytja þurfti að minnsta kosti átta einstaklinga með staðfest kórónu- veirusmit með sjúkrabifreiðum á farsóttarhús í gærkvöldi. Tölur um fjölda greindra smita verða ekki birtar fyrr en í dag. Alls greindust fjögur kórónuveiru- smit innanlands í fyrradag en báða dagana þar á undan voru þau átta talsins. »10 Hópsmit á höfuðborg- arsvæðinu  Töluverðar annir í sjúkraflutningum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.