Morgunblaðið - 11.12.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 2020
VINNINGASKRÁ
205 10604 22124 31844 41078 51201 64317 72316
584 10615 23051 32266 41085 51991 64344 72581
724 11172 23052 32423 41093 52237 64501 72792
1380 11654 23336 32726 41209 52490 64586 72919
1508 12470 23979 32733 41715 53184 64686 73005
1518 12489 24069 33067 41811 53354 65007 73076
1689 13121 24287 33589 41871 53950 65297 73337
1940 13331 24506 33979 42073 54570 65336 73482
1956 14045 24599 34613 43115 54674 65422 74157
2017 14137 24619 34860 44466 54845 65630 74228
2036 14419 24739 34932 44978 55279 65691 74486
2139 14587 25014 35033 45128 55999 65741 74915
2295 14676 25661 35238 46170 56119 66385 74998
2792 15177 26050 35266 46555 56207 66771 75183
3095 15588 26337 35425 46729 56574 66853 75754
4347 15736 26914 35972 47292 56799 66885 75800
4624 15789 26938 36459 47341 56995 66894 76264
4992 15893 27040 36884 47387 57023 67562 76679
5101 16402 27443 36933 47429 58221 67575 76774
5349 16802 27586 37017 47639 58228 68262 77036
5621 16854 27681 37118 47878 58251 68557 77450
5654 17350 28437 37861 47893 58573 68785 77490
5792 17997 28544 38071 48053 58647 69413 78111
5857 18042 28730 38365 48250 59485 69458 78164
5891 18516 28831 38496 48275 59827 69765 78344
6026 18832 28953 38562 48307 60349 70162 78361
6220 18840 29039 38659 48548 60483 70347 79054
7232 18928 29105 38767 48666 61423 70549 79242
7396 19029 29143 38880 49579 61554 70901 79257
7414 19467 29208 38984 49682 62121 71179 79507
7503 19767 29561 39383 50357 62249 71405 79640
7642 19803 30357 40084 50431 62419 71738
7856 20185 30584 40145 50597 62674 71780
8091 21750 30689 40186 50611 62703 71872
8733 21769 30913 40268 50951 62977 72124
8876 22023 30917 40442 50962 63330 72160
10042 22101 31050 40501 50978 64077 72269
323 21082 32066 38743 44615 56397 65116 75578
627 21274 32281 38849 44741 56984 65241 75710
907 21758 32728 39744 45413 57113 65253 75986
2313 21972 33383 40641 47587 57575 66609 76623
3137 23654 33925 41159 47978 58034 68927 76769
5830 24140 34522 41468 50458 58039 69277 77547
12461 25487 34622 41754 50949 58699 71038 77916
13384 28038 34723 42394 52271 61189 71313 78833
14209 29020 35521 42749 52580 62117 72337 79979
16456 29391 36737 42975 53747 62622 73617
17602 29711 36873 43106 53953 63154 73708
18767 31748 37816 43644 54749 63822 74183
18971 31811 38615 44209 55955 64806 75342
Næsti útdráttur fer fram 17., 23. & 31. des 2020
Heimasíða: www.das.is
Vinningur
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 25.000 Kr. 50.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur)
2599 6904 20730 31434 59117
Vinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
2163 15633 36371 42664 48696 72062
8245 18933 39666 43697 56190 74102
9514 21290 41430 46075 60367 75734
10164 25643 42156 46871 66237 78239
Aðalv inningur
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
2 5 1 4 6
32. útdráttur 10. desember 2020
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Skógarmítill ber smit á milli spen-
dýra og fugla. Hann getur borið
bakteríur (Borrelia burgdorferi) og
veirur sem valda heilabólgu í mönn-
um. Bakterían veldur Lyme-
sjúkdómi og greindust að meðaltali
6,6 tilfelli á ári hér á landi 2011-2015.
Þau voru öll af erlendum uppruna,
samkvæmt upplýsingum á vef Emb-
ættis landlæknis (landlaeknir.is).
Húðroði getur myndast eftir bit
sem leiðir til sýkingar og dreifir
hann sér í hring út frá bitsárinu. Það
getur gerst á 3-30 dögum. „Fljótlega
getur farið að bera á þreytu, hita,
hrolli og höfuðverk ásamt vöðva- og
liðverkjum sem varað geta vikum
saman. Útbreidd sýki verður þegar
bakterían dreifir sér um líkamann
og sest að í húð, miðtaugakerfi,
hjarta eða liðum. Þetta getur gerst
vikurnar eftir sýkingu ef ekki er gef-
in meðferð. Venjulega gengur þó
sýkingin yfir eftir einhverjar vikur
eða mánuði þótt engin meðferð sé
veitt. Fyrir kemur að sýkingin valdi
viðvarandi liðbólgum. Sjaldgæfir
fylgikvillar eru minnisleysi, síþreyta
og hjartsláttartruflanir sem haldast
þótt bakterían hafi verið upprætt,“
segir á síðu landlæknisembættisins.
Sýklalyf eru gefin við sjúkdómnum.
Að losna við skógarmítil
Lesandi sendi fyrirspurn um
hvernig ætti að losna við skógarmítil
ef hann bítur sig fastan.
Matthías S. Alfreðsson, skordýra-
fræðingur hjá Náttúrufræðistofnun
Íslands (NÍ), segir að það megi alls
ekki kreista, brenna eða reyna að
kæfa skógarmítilinn. Það skapar
hættu á að munnlimirnir verði eftir
eða að mítillinn æli örverum inn um
bitsárið, ef hann ber þær með sér.
Hann segir að NÍ og Keldur taki við
öllum skógarmítlum sem finnast.
Landlæknisembættið gefur ráð
um hvernig verjast megi skógar-
mítli. Hvatt er til þess að fólk kynni
sér hvernig mítillinn lítur út. Ef
skógarmítlar eru á svæði sem fara á
um er rétt að taka með sér oddmjóa
agntöng (pinsettu). Þá er gott að
klæðast fatnaði sem hylur líkamann
vel, síðbuxum og langerma bol eða
skyrtu, einkum ef farið er um kjarr
eða skóg. Gott er að nota ljós föt svo
mítlarnir sjáist betur. Eins er gott
að nota áburð sem fælir mýflugur
frá.
Eftir að komið er af varasömu
svæði þarf að skoða líkamann og
kanna hvort mítill hefur bitið sig í
húðina. Ef mítill hefur sogið sig fast-
an er rétt að fara að öllu með gát
þegar mítillinn er fjarlægður.
„Það er best gert með því að
klemma pinsettuodda um munn-
hluta mítilsins og lyfta honum beint
upp frá húðinni. Forðast skal að
snúa honum í sárinu. Þetta kemur í
veg fyrir að innihald úr mítlinum
geti spýst í sárið eða hluti hans verði
eftir,“ segir Matthías.
Skógarmítillinn getur
borið sýkla í menn
Hafa þarf aðgát þar sem skógarmítlar geta haldið sig
Ljósmynd/Erling Ólafsson
Skógarmítill Hér sjást öll stig skógarmítils. F.v.: Egg, lirfa, gyðla (lirfa sem
tekur ófullkominni myndbreytingu), karldýr, kvendýr og blóðfullt kvendýr.
Fjarlæging Tekið er um munninn
með agntöng og hann dreginn út.
Teikning/landlaeknir.is
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Kvaðning til fólks samkvæmt röðun í
forgangshópa um mætingu í bólu-
setningu vegna Covid-19 verður
send fólki með smáskilaboðum eða í
tölvupósti þegar fyrir liggur hvenær
hefjast má handa. „Hér hafa verið
settar upp nokkrar sviðsmyndir um
hvernig best verður staðið að fram-
kvæmd bólusetningar. Málin eru í
vinnslu,“ segir Óskar Reykdalsson,
forstjóri Heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins, við Morgunblaðið.
Fólk sem kallað er í sýnatökur
vegna Covid-19 í haust hefur fengið
sendar helstu upplýsingar vegna
þess í farsíma sinn, þar með talið
strikamerki. Skv. því eru tekin sýni
úr viðkomandi en strikamerkingin er
mikilvæg við vélræna greiningu
gagna. Strikamerkin gegna væntan-
legu svipuðu hlutverki við bólusetn-
ingu, en fólk verður kallað til hennar
skv. þeim upplýsingum sem fyrir
liggja, meðal annars með tilliti til
starfa viðkomandi og út frá upplýs-
ingum úr sjúkraskrá.
Með áhlaupi
Heilsugæslustöðvar sjá um fram-
kvæmd bólusetninganna en geta
ekki sett fólk í forgangshóp eða bók-
að fólk í tíma. Það gerist nánast sjálf-
krafa og enginn verður útundan.
„Okkar áætlun er sú að taka bólu-
setninguna hreinlega með áhlaupi.
Við höfum verið í samvinnu við ýms-
ar stofnanir, svo sem sveitarfélögin,
um að fá húsnæði skólanna undir
þetta verkefni. Sé skipulagið gott
ættum við að geta náð að bólusetja
60-70 þúsund manns á einum degi.
Þá væri sennilega best að taka þetta
á laugardegi, fá allt tiltækt heilbrigð-
isstarfsfólk í lið með okkur og aðra
sem þarf. Kynna málið áður ræki-
lega í fjölmiðlum svo um þetta mynd-
ist samstaða.“
Fjórir greindust á miðvikudag
Alls greindust fjögur kórónuveiru-
smit innanlands á miðvikudaginn, en
tvo daga á undan voru þau átta hvorn
dag. Í einangrun eru 183 en voru 186
í gær. Alls eru 249 í sóttkví og hefur
fjölgað lítið eitt milli daga. Aftur á
móti virðist margt benda til þess að
fólk fari meira en áður á milli landa,
því nú eru alls 1.316 manns í skim-
unarsóttkví eftir komu frá útlöndum.
Öll smitin sem greindust í gær
voru staðfest við sýnatöku vegna
meintra einkenna um að viðkomandi
væru smitaðir af Covid.
„Tölur undanfarna daga hafa verið
jákvæðar, en við þurfum að hafa var-
ann á okkur,“ sagði Þórólfur Guðna-
son sóttvarnalæknir í gær.
Bólusetja 60-70 þúsund
manns á einum degi
Sviðsmyndir hjá heilsugæslu Jákvæð þróun faraldurs
Nýgengi innanlands:
44,5 ný smit sl. 14 daga á 100.000 íbúa
4 ný inn an lands smit greindust sl. sólarhring
100
80
60
40
20
0
183 eru með virkt smit og í einangrun
Fjöldi inn an lands-
smita frá 30. júní
Heimild: covid.is
75
4
16
99
86
21
júlí ágúst september október nóvember des.
Allt um sjávarútveg