Morgunblaðið - 11.12.2020, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 11.12.2020, Blaðsíða 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 2020 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Seltjarnarnes Engin dagskrá er á vegum Félags- og tómstunda- starfsins í dag. Kaffikrókurinn er eingöngu opinn fyrir íbúa Skóla- brautar, þar er grímuskylda. Höldum áfram að fara varlega, þvo og spritta. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt Tískuverslunin Smart Grímsbæ/Bústaðavegi St. 36 - 48 Verð 8.900 Verð 9500 netverslun gina.is Sími 588 8050. - vertu vinur Bílar VW Caddy 4/2019 ekinn aðeins 19 þ.km. Sjálfskiptur. Bensín / Metan umhverfisvænn gæðingur. Verð: 2.990.000 með vsk. www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 12–18 virka daga. Íslensk fornrit Íslensk fornrit 19 stykki, Rexin, verð 16 þúsund. Uppl. í síma 898 9475 Bækur         ✝ Númi Frið-riksson fæddist á Akureyri 2. mars árið 1945. Hann lést 2. desember 2020. Númi var sonur hjónanna Friðriks Baldvinssonar múr- arameistara, f. 4. júní 1920, d. 31. des. 1992, og Dýrleifar Jónsdóttur hús- freyju, f. 8. des. 1924. Fjölskyldan bjó lengst af í Norðurgötu 41b á Akureyri. Númi var næstelstur sex systk- ina en þau eru: Jón Smári Frið- riksson, f. 16. des. 1943, d. 15. des. 2010, kvæntur Maríu Daní- elsdóttur, Oddný Guðrún Frið- riksdóttir, f. 29. júní 1946, gift Sverri Viðari Pálmasyni, Sæ- mundur Friðriksson, f. 1. maí 1949, kvæntur Huldu Friðjóns- dóttur, Magnea Friðriksdóttir, f. 2. júní 1958 og Þórey Friðriks- dóttir, f. 26. apríl 1964, gift bandi er María Sif, f. 14. maí 1964, börn hennar eru Sólrún Dís og Helgi Snær, f. 8. desem- ber 2002. Númi ólst upp í Norðurgöt- unni. Hann var næstelstur í systkinahópnum. Norð- urgötuættin var samheldin og oft var þar mikið líf og fjör. Númi gekk í Oddeyrarskóla og síðan Gagnfræðaskóla Akureyr- ar. Þaðan lá leiðin í Iðnskólann þar sem hann lærði húsasmíði og starfaði hann lengst af hjá Trésmíðafélagi Reynis. Frá árinu 1990 starfaði Númi sem húsvörður í Verkmenntaskóla Akureyrar og sinnti því starfi allt fram til ársins 2012. Númi spilaði bæði knattspyrnu og körfuknattleik með liðum Þórs og ÍBA á sínum yngri árum og tók virkan þátt í ýmsum störfum innan félagsins. Á seinni árum tók golfáhuginn við og var hann virkur meðlimur í Golfklúbbi Akureyrar. Útför Núma fer fram í Höfða- kapellu í dag, 11. desember 2020, kl. 13, að viðstöddum nán- ustu aðstandendum. Gunnari Torfa- syni. Númi giftist 18. nóvember 1972 Svandísi Stef- ánsdóttur, f. 27. september 1943, d. 8. febrúar 2012. Dætur þeirra eru: 1) Elva Dögg, f. 18. desember 1973, gift Þorleifi Lúðvíkssyni, f. 9. október 1972, börn þeirra eru Jóna Dís, f. 12. janúar 1998, Börkur Þorri, f. 18. júní 2003 og Svandís Kara, f. 17. apríl 2012. 2) Telma Hrönn, f. 3. janúar 1978, gift Atla Hauki Arnars- syni, f. 9. september 1977, börn þeirra eru Númi Már, f. 5. febr- úar 1998, Arna Dögg, f. 22. júní 2004, Áki Rafn, f. 21. september 2011 og Darri Hólm, f. 28. nóv- ember 2014. Dóttir Núma úr fyrra sam- Elsku pabbi sem okkur þótti svo afskaplega vænt um er nú búinn að kveðja og kominn í hlýja faðminn hennar mömmu. Eins erfitt og það er að sætta sig við að hann sé farinn frá okkur þá yljum við okkur við allar dýrmætu minningarnar sem enginn getur frá okkur tekið. Pabbi var maður sem setti okkur alltaf í fyrsta sæti, sem var svo stoltur af okkur, sem gaf sér tíma fyrir okkur, sem lék við okkur og leiðbeindi okk- ur í lífinu. Pabbi var góð fyr- irmynd. Hann var hlýr töffari sem passaði vel upp á fólkið sitt. Pabbi var ávallt hreinn og beinn og talaði aldrei illa um nokkurn mann. Pabbi var mikill íþróttamaður og Þórsari í húð og hár. Eftir farsælan knatt- spyrnu- og körfuboltaferil tók golfið við sem hann iðkaði af kappi með sínum góðu vinum á meðan heilsan leyfði. Pabbi var kraftmikill og laginn til verka, hann var alltaf til taks og svo var hann fyrirtaks dansari. Já honum var svo sannarlega margt til lista lagt. Pabbi og mamma bjuggu okkur systrum fallegt og öruggt skjól í Heiðarlundi þar sem umhyggja, hlýja, nærgætni og virðing voru viðhöfð. Þannig voru þau. Það er svo margs að minnast og margs að sakna. Allar dýrmætu samveru- stundirnar, útilegurnar, fót- boltaleikirnir, árlegu Þorláks- messuferðirnar á Teríuna, gleðistundirnar með stórfjöl- skyldunni hjá ömmu og afa í Norðurgötunni, húmorinn og glottið góða svo ekki sé minnst á heitu hrjúfu smiðshendurnar sem nudduðu lífi í litlar kaldar hendur og tær eftir langar skíða- og skautaferðir. Pabbi var ákaflega stoltur af barnabörnunum sínum og fannst erfitt að vera ekki nær þeim en til Reykjavíkur gat hann ekki hugsað sér að flytja. Eftir fráfall mömmu, áfallið sem því fylgdi og veikindin sem hann barðist hetjulega við síð- ustu ár, var flautað til leiks- loka. Samband okkar var alltaf sterkt og gott og djúpsár sökn- uðurinn minnir okkur á hve lánsamar við vorum að hafa átt hann fyrir pabba og erum við endalaust þakklátar fyrir það. Hvíldu í friði elsku pabbi og takk fyrir allt. Þínar Elva Dögg og Telma Hrönn. Númi Friðriksson, kær vinur og fyrrum vinnufélagi, er lát- inn. Við kynntumst haustið 1999 þegar ég hóf störf sem skólameistari Verkmenntaskól- ans á Akureyri. Það var í mér svolítill beygur; bæði vegna þess að hafa tekið þá ákvörðun að flytjast til Akureyrar og hins að hafa tekið við svo viða- miklu starfi. Númi var einn þeirra sem ég bar fyllsta traust til frá fyrsta degi og hann var ekki lengi að sannfæra mig um að ég hefði ekkert að óttast. Hann var umsjónarmaður fast- eigna og honum leiddist ekki að kynna mér hið víðáttumikla og margháttaða húsnæði skólans. Hann var síbrosandi, ávallt uppörvandi, miklaði ekkert fyr- ir sér og fann lausn á hverju því verkefni sem leysa þurfti af hendi. Hann var mikill Akureyring- ar, uppalinn á Eyrinni, og gall- harður Þórsari án þess að tala nokkru sinni illa um andstæð- inginn. Hann spurði mig á fyrsta degi með hvaða liði ég héldi í íslenska boltanum. Ég kvaðst vera KR-ingur til þess að svara einhverju. Og sömu sögu var að segja af enska bolt- anum; ég sagðist bara halda með Aston Villa. Hann brosti, klappaði mér á öxlina og sagði: „Gott hjá þér, félagi.“ En hann gerði enga tilraun til þess að ræða við mig um fót- bolta eftir þetta. Metnaður Núma fyrir VMA var mikill. Hann sinnti starfi sínu vakinn og sofinn og stopp- aði aldrei; ekki fyrr en í fulla hnefana. Hann var hvers manns hugljúfi og var eini karl- maðurinn í starfsmannahópnum sem fyrirgafst að nota orðið „elskan“ þegar hann ávarpaði kvenkyns vinnufélaga sína. Um leið og ég þakka Núma samfylgdina sendi ég dætrum hans, Elvu Dögg og Telmu Hrönn, og fjölskyldum þeirra samúðarkveðjur. Hjalti Jón Sveinsson. Hann var rauðhærður prakk- ari, alinn upp á eyrinni, sann- kallaður eyrarpúki. Á eyrinni var alltaf líf og fjör. Margir fjörugir krakkar, uppátækin endalaus og margt brallað. Æskuminningarnar eru ljúfar og vel varðveittar. Það er ómetanlegt og alls ekki sjálfgefið að eignast vini fyrir lífstíð. Númi, hjartkær vinur okkar er við kveðjum núna var hress og skemmtilegur og áttum við allt frá barnæsku fram á full- orðinsár ótal góðar stundir saman. Margar voru útilegurnar með fjölskyldunum í skóginum þar sem við áttum okkar föstu stæði, þar vantaði sjaldnast fjörið. Ferðalög innanlands sem utan, hressandi samvera á golf- vellinum, lífleg og skemmtileg matarboð og óteljandi stundir í spjalli um heima og geima yfir rjúkandi kaffibolla. Númi var oft manna hressastur og orð- heppinn mjög. Þau eru mörg, ógleymanleg gullkornin frá honum. Það var Núma ákaflega þungbært þegar hann missti elsku Dísu sína, lífsförunaut og elskaða eiginkonu árið 2012. Dætur þeirra Elva Dögg og Telma Hrönn önnuðust pabba sinn af mikilli alúð og ást þegar halla tók undan fæti hjá hon- um. Síðustu ár ævi sinnar var elsku Númi mjög heilsuveill. Hann lést á Sjúkrahúsi Akur- eyrar 2. desember í faðmi elsk- aðra dætra sinna. Nú tekur Dísa hans á móti honum í sumarlandinu og þar svífa þau nú um í ljúfum dansi, sameinuð á ný. Elsku Númi, kæri vinur okk- ar, hafðu hjartans þakkir fyrir allar ljúfar stundir. Elsku Elva Dögg, Telma Hrönn og fjölskyldur, innilegar samúðarkveðjur til ykkar. Guð veri með ykkur. Gunnborg og Pétur Heiða og Hafþór Rósa og Þóroddur. Númi Friðriksson ✝ Valur fæddist23. ágúst 1957 í Reykjavík. Hann lést á heimili sínu 24. nóvember 2020. Foreldrar hans eru Höskuldur Guð- mundsson, f. 2.12. 1929, og Björg Að- alheiður Eiríks- dóttir, f. 8.11. 1935, d. 28.7. 2010. Bræður: 1) Eirík- ur Örn, f. 1955, kvæntur Eyrúnu Guðnadóttur, 2) Guðmundur Kristinn, f. 1959, kvæntur Sig- rúnu Víglunds- dóttur, 3) Hösk- uldur Reynir, f. 1961, kvæntur Sig- ríði Herdísi Páls- dóttur. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju 11. desember 2020 kl. 13. Stytt slóð: https://tinyurl.com/ y5vorjug Virkan hlekk má finna: https://www.mbl.is/andlat Nú er Valur mágur minn lát- inn. Ég má til með að end- urbirta þessa grein sem hann skrifaði í MND-blaðið árið 2003 til minningar. Það var sumarið 1999 sem hann vann sitt síðasta stórafrek á sviði útivistar. Um tíuleytið þennan sumarmorgun fórum við saman ásamt fleira fólki þangað sem heitir Hrafnkelsstaðabotn- ar, rétt fyrir innan þorpið í Grundarfirði. Þetta var auglýst sem fjögurra tíma ferð með leið- sögumanni fyrir alla aldurshópa. Þetta varð mjög eftirminnileg ferð upp á Svarthnjúk (800 m). Haldið sem leið lá fyrir ofan Hrafnafoss og síðast gengum við eftir fjallsegg með hrikalegu út- sýni á báðar hendur og fór stundum um mann undarleg til- finning er maður horfði niður eftir fjallshlíðinni. Síðan var far- ið niður þar sem heitir Gunnólfs- fell, þar renndum við okkur nið- ur skriðurnar niður á jafnsléttu. Er við skiluðum okkur til byggða með sára strengi og fyr- irheit um góðar harðsperrur daginn eftir voru liðnir 10 tímar síðan við lögðum af stað! Hétu sumir því þá að þeir færu aldrei aftur í fjallgöngu. Hví vildi Valur segja frá þessu, jú hann vissi að hann myndi líklega ekki klífa fleiri fjöll um sína daga, því nýlega greindist hann með sjúkdóminn MND. Enn verra þótti honum að þurfa að gefa aðaláhugamál sitt upp á bátinn, að hætta að hjóla. Hann fann fyrir sínum fyrstu einkennin á vordögum 2000, eft- ir mjög snjóþungan vetur, hélt hann að þetta væri eitthvað sem myndi rjátlast af honum þá um sumarið. Sú varð ekki raunin heldur hélt þetta áfram að vaxa og breiðast út frá fótum fyrst og svo til handleggja. Þá um haustið þurfti hann að hætta að vinna og svo mánuði síðar fékk hann greininguna. Hann skrifar að sér finnist á köflum að þetta sé í raun og veru ekki hann sem sé með þennan sjúkdóm heldur hafi hann fengið að vera viðstaddur er einhverjum öðrum (sem líkist honum) var tilkynnt að hann væri með MND og að hann fái að fylgjast með málum þannig að hann væri í hlutverki þess er safnar upplýsingum um sjúk- dóminn og miðli því til hans sjálfs. Hann átti eins von á því að verða kallaður í annað viðtal þar sem honum yrði tilkynnt að hann væri ekki með MND held- ur eitthvað allt annað. Hann kappkostaði að reyna að fræðast sem mest um sjúk- dóminn og gera ýmislegt skemmtilegt þó ekki væri það fjallgöngur. Hann Valur helgaði sig upplýsingum um MND og sótti sér mikla fræðslu um sjúk- dóminn. Hann fór í ferðir á vegum fé- lagsins og náði að fara á ráð- stefnur til margra landa. Við hjónin fórum sem fylgdarmenn með honum til Mílanó í desem- ber 2013 og var það mjög fræð- andi. Ég vil enda þetta á því að setja inn eitt ljóðum hans Vals sem kom í ljóðabókinni „Göngu- blá tilvera sem kom út 2012. Mælt af tindi Sumar regnskúr vegur út í buskann eldhúsborð með dúk á umferðarþungi. Fjallgöngumaður á tindi mælir mig hefur lengi langað til að segja þessi orð. Lífið er harðstjóri sem hefur rétt fyrir sér Hvíl í friði. Sigríður Herdís Pálsdóttir. Valur Höskuldsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.