Morgunblaðið - 11.12.2020, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 11.12.2020, Qupperneq 32
32 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 2020 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Nú er rétti tíminn til þess að söðla um, leggja af gamla siði og taka aðra og heilsusamlegri upp í staðinn. Reyndu samt að finna hinn gullna meðalveg og ganga hann. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú ættir að gefa þér tíma til þess að staldra við og virða fyrir þér umhverfið, sem þú telur alla jafna sjálfsagt. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Vinir sem hafa náð langt geta ver- ið býsna hvetjandi. Hikaðu ekki við að sýna öðrum hversu miklu máli þeir skipta þig. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Bara af því að þú getur gert eitt- hvað þýðir ekki að þú ættir að gera það. Líttu í eigin barm og skoðaðu málin í róleg- heitunum. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Ekkert er í raun jafn ánægjulegt í lífinu eins og að tileinka sér ákveðna kunnáttu frá byrjun til enda. Hlustaðu líka á drauma þína. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Einhver mun hugsanlega gefa þér gjöf eða gera þér greiða í dag. Dagurinn ætti því að verða ánægjulegur. 23. sept. - 22. okt.  Vog Samband við vin skiptir þig miklu í dag. Ef einhver annar hefur lagt á ráðin um verk og réttir þér það á silfurfati, þá skaltu þiggja það og njóta verksins til hins ýtr- asta. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það er nauðsynlegt að þú get- ir greint á milli staðreyndar og staðleysu og sért snöggur að því. Burt með glundroð- ann, í hvaða mynd sem hann kann að birt- ast. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú hefur lagt hart að þér að undanförnu og ert nú tilbúinn til að sýna öðrum árangurinn. Mundu bara að virða skoðanir annarra, líka þótt þú sért ekki sammála þeim. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú hefur þörf fyrir að brjóta upp hversdagsleikann. Nákvæmni þín og þol- inmæði er meiri en ella núna. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Láttu afbrýðina ekki ná tökum á þér og segðu ekkert sem þú gætir iðrast síðar. Leitaðu því til þeirra sem þú treystir. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er ástæðulaust fyrir þig að hengja haus því þú hefur unnið vel. Misstu ekki móðinn, brátt styttir upp. störf sem viðburða- og kynning- arstjóri Menningarhúsanna í Kópavogi. Núna síðastliðið vor Haustið 1994 fluttum við til Lyon í Frakklandi og sumarið 1999 til Berlínar. Í hverri borg fæddist okkur einn sonur og ég sá um ýmiskonar skipulag er kom að ferðalögum og verkefnum Gunn- ars víða um Evrópu.“ Eftir fimmtán ára dvöl víða í Evrópu flutti fjölskyldan til Ís- lands sumarið 2003. Ólöf lauk stúdentsprófi frá öldungadeild MH 2007 og BA-gráðu í þjóðfræði við Háskóla Íslands árið 2010 og síðar MA-gráðu í safnafræði frá HÍ 2012. „Ég studdi drengina mína í tónlistarnámi, var í stjórn Drengjakórs Reykjavíkur og var sannkölluð Suzuki-mamma, en þeir lærðu í Suzuki-tónlistarskól- anum í Lyon, í sellóskóla í Berlín og í Suzuki-tónlistarskólanum í Reykjavík, Tónskóla Sigursveins og Söngskóla Sigurðar Demetz.“ Haustið 2012 hóf Ólöf störf sem kynningarstjóri Þjóðminjasafns Íslands og vorið 2016 hóf hún Ó löf Breiðfjörð fæddist í Reykjavík 11. desem- ber 1970 á 38. afmæl- isdegi móðurömmu sinnar. Hún ólst upp við sterk fjölskyldutengsl og var mikið á skíðum með afa sínum og ömmu og á sumrin á landareign móðurfjölskyldunnar við Skarð á Tanganum í Landsveitinni. Jóna, móðir Ólafar, vildi að dóttirin gengi tónlistarveginn og Ólöf hóf nám í Nýja tónlistarskólanum sex ára gömul og lærði á selló hjá Pétri Þorvaldssyni. „Nám í tónlist- arskóla hafði mikil mótunaráhrif á mig og hefur haft áhrif á allt mitt líf. Ég er alltaf sellóstelpa og ég kynntist manninum mínum í Nýja tónlistarskólanum.“ Ólöf fór í Hólabrekkuskóla en lauk grunn- skólanum í nýstofnuðum Tjarn- arskóla. Hún byrjaði í MR en flutti sig svo yfir í MH og var meðlimur í skólakór MH hjá Þor- gerði Ingólfsdóttur. Haustið 1988 flutti Ólöf til Berl- ínar með eiginmanni sínum, Gunn- ari Guðbjörnssyni óperusöngvara, þá tæpra 18 ára. „Ég hef alltaf verið þakklát mömmu fyrir að leyfa mér að fara, en hún treysti Gunnari, sem er fimm árum eldri en ég. Seinna hafa synir mínir oft spurt mig hvernig afi og amma hafi leyft mér að hætta í skóla og fara út svona ungri.“ Lífið í Berlín var sérstakt og múrinn ekki fallinn. Tvisvar í viku sótti Gunnar söngtíma hjá frægri Wagner-söngkonu í Austur-Berlín og Ólöf segist aldrei gleyma þeirri tilfinningu að fara yfir múrinn. Ári síðar fluttu þau til London þar sem hún stundaði nám í Trinity College of Music í sellóleik. „Gunnar var tilbúinn að færa sig til London svo ég gæti haldið áfram í sellónáminu og ég fékk frábæra kennara og blómstraði þar.“ En Ólöf sá strax að ekki væri gott að hafa tvær prímadonn- ur á sama heimili. „Sumarið 1990 giftist ég Gunnari og við fluttum það sumar til Wiesbaden í Þýska- landi og ég var húsmóðir upp frá því og aðstoðarmaður Gunnars. varð hún fyrsti menningarfulltrúi Garðabæjar. Það þarf engan að undra að klassísk tónlist og óperusöngur séu stærstu áhugamál Ólafar, en hún er einnig mikil hannyrðakona og var ötull bútasaumari hér áður fyrr. „Málefni safna eru mikið áhugamál og ég hef ferðast víða í því skyni að skoða söfn, bæði farið á ráðstefnur og skoðunarferðir á eigin vegum og við Gunnar ferð- umst undir venjulegum kringum- stæðum mikið og erum þá á miklu spani að skoða söfn og fara á tón- leika og í óperuna. Samvera fjöl- skyldunnar er mikilvægust, líka þó synirnir séu orðnir fullorðnir en sameiginlega eldum við góðan mat og ferðumst. Foreldrar mínir búa í sama húsi og við, svo strák- arnir mínir fengu að njóta sam- vista við þau þegar þeir voru litlir í meira mæli en flestir. Nú fær litla ömmustelpan mín, Míó, að njóta langömmu sinnar og langafa Ólöf Hulda Breiðfjörð menningarfulltrúi Garðabæjar - 50 ára Hjónin Ólöf og Gunnar ferðast mikið og fara á tónleika og á söfn. Hér eru þau í Feneyjum í júlí 2019 þar sem þau skoðuðu Feneyjatvíæringinn. „Ég er alltaf sellóstelpa“ Börnin Ólöf með synina Glóa, Jökul og Ragnar Núma, sumarið 2000, fyrir utan heimili þeirra í Berlín. Amman Ólöf hér með sólargeislann, Míó, tíu mánaða sonardóttur sína. Til hamingju með daginn Njarðvík Ásta Bertha Bergmann Sverrisdóttir fæddist 4. febrúar 2020 kl. 17.48. Hún vó 3.222 g og var 51 cm löng. Foreldrar hennar eru Sverrir Bergmann Magnússon og Kristín Eva Geirsdóttir. Nýr borgari 30 ára Gabriela Líf er Reykvíkingur í húð og hár. Hún vinnur á skrif- stofu Alþingis og er niðri í þingi þegar þing- fundir eru en aðra daga í fjarvinnu. Helstu áhugamál Gabrielu Líf eru crossfit, lestur og útivera. Maki: Daníel Rafn Eyþórsson, f. 1993, vinnur hjá Vodafone. Barn: Hlynur Logi Jónsson, f. 2016. Foreldrar: Júlíana Guðmundsdóttir, f. 1970, lögfræðingur þjónustuskrifstofu FHS, og Sigurður Árni Reynisson, f. 1971, er að ljúka við meistaranám í Há- skóla Íslands. Þau búa í Reykjavík, í sama hverfi og Gabriela Líf, sem er Háa- leitishverfið. Gabriela Líf Sigurðardóttir 30 ára Gróa Lísa ólst upp í Galtarholti I í Borgarfirði en býr núna í Borgarnesi. Hún vinnur á pósthús- inu og það hefur aldr- ei verið jafn mikið að gera og núna í ár, þeg- ar allir eru að kaupa allt á netinu. Helstu áhugamál hennar eru lestur og höfund- urinn Jane Austen er í uppáhaldi. Síðan spilar hún á gítar og syngur, mestmegnis popplög og gömul íslensk dægurlög. Barn: Lísa Camila Carneiro Valencio, f. 2011. Foreldrar: Hrafnhildur Karlsdóttir, f. 1946, hárgreiðslumeistari og Ómar Guð- mundsson, f. 1947, gröfumaður. Þau búa á Bifröst í Borgarfirði. Gróa Lísa Ómarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.