Morgunblaðið - 11.12.2020, Side 34

Morgunblaðið - 11.12.2020, Side 34
34 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 2020 Evrópudeild UEFA A-RIÐILL: CSKA Sofia – Roma................................. 3:1 Young Boys – CFR Cluj .......................... 2:1  Roma 13, Young Boys 10, CFR Cluj 5, CSKA Sofia 5. B-RIÐILL: Dundalk – Arsenal................................... 2:4  Rúnar Alex Rúnarsson varði mark Ars- enal í leiknum. Rapid Vín – Molde.................................... 2:2  Arsenal 18, Molde 10, Rapid Vín 7, Dun- dalk 0. C-RIÐILL: Leverkusen – Slavia Prag ....................... 4:0 Hapoel Beer Sheva – Nice....................... 1:0  Leverkusen 15, Slavia Prag 12, Hapoel Beer Sheva 6, Nice 3. D-RIÐILL: Lech Poznan – Rangers........................... 0:2 Standard Liege – Benfica........................ 2:2  Rangers 14, Benfica 12, Standard Liege 4, Lech Poznan 3. E-RIÐILL: PAOK – Granada..................................... 0:0  Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn með PAOK. PSV Eindhoven – Omonia Nikósía ......... 4:0  PSV Eindhoven 12, Granada 11, PAOK 6, Omonia Nikósía 4. F-RIÐILL: Rijeka – AZ Alkmaar .............................. 2:1  Albert Guðmundsson lék fyrstu 70 mín- úturnar með AZ. Napoli – Real Sociedad ............................ 1:1  Napoli 11, Real Sociedad 9, AZ Alkmaar 8, Rijeka 4. G-RIÐILL: Leicester – AEK Aþena........................... 2:0 Braga – Zorya Luhansk........................... 2:0  Leicester 13, Braga 13, Zorya 6, AEK Aþena 6. H-RIÐILL: Celtic – Lille.............................................. 3:2 Sparta Prag – AC Milan .......................... 6:4  AC Milan 13, Lille 11, Sparta Prag 6. Cel- tic 4. I-RIÐILL: Maccabi Tel Aviv – Sivasspor.................. 1:0 Villarreal – Qarabag ......................... frestað  Villarreal 13, Maccabi Tel Aviv 11, Sivas- spor 6, Qarabag 1. J-RIÐILL: Ludogorets – LASK Linz........................ 1:3 Tottenham – Antwerpen ......................... 2:0  Tottenham 13, Antwerpen 12, LASK Linz 10, Ludogorets 0. K-RIÐILL: Dinamo Zagreb – CSKA Moskva........... 3:1  Arnór Sigurðsson lék allan leikinn með CSKA Moskvu. Hörður Björgvin Magnús- son var ekki í leikmannahópnum. Wolfsberger – Feyenoord ....................... 1:0  Dinamo Zagreb 14, Wolfsberger 10, Feyenoord 5, CSKA Moskva 3. L-RIÐILL: Hoffenheim – Gent ................................... 4:1 Slovan Liberec – Rauða stjarnan ........... 0:0  Hoffenheim 16, Rauða stjarnan 11, Slov- an Liberec 7, Gent 0.  Tvö efstu liðin í hverjum riðli eru komin í 32ja liða úrslit keppninnar. Noregur Rosenborg – Mjöndalen .......................... 1:0  Hólmar Örn Eyjólfsson kom inn á sem varamaður hjá Rosenborg á 69. mínútu.  Dagur Dan Þórhallsson var ekki í leik- mannahóp Mjöndalen. Viking – Vålerenga ................................. 2:2  Axel ÓskarAndrésson fór meiddur af velli hjá Viking á 17. mínútu, Samúel Kári Friðjónsson kom inn á á 72. mínútu.  Matthías Vilhjálmsson lagði upp fyrsta mark Vålerenga áður en honum var skipt af velli á 78. mín. fyrir Viðar Örn Kjartansson. Staðan: Bodø/Glimt 29 25 3 1 100:32 78 Molde 27 18 2 7 67:32 56 Vålerenga 29 14 10 5 47:33 52 Rosenborg 28 14 6 8 47:34 48 Kristiansund 28 12 11 5 54:40 47 Viking 29 12 8 9 54:49 44 Odd 26 13 3 10 48:41 42 Haugesund 29 10 6 13 36:50 36 Stabæk 28 8 11 9 35:43 35 Brann 29 8 9 12 38:48 33 Sandefjord 28 9 6 13 31:43 33 Sarpsborg 29 8 8 13 33:38 32 Strømsgodset 28 6 10 12 38:52 28 Start 29 6 9 14 33:52 27 Mjøndalen 29 7 3 19 23:45 24 Aalesund 29 2 5 22 31:83 11 Meistaradeild kvenna 32ja liða úrslit, fyrri leikur: Vålerenga – Bröndby ..................... Frestað  Ingibjörg Sigurðardóttir leikur með Vålerenga. Fiorentina – Slavia Prag.......................... 2:2 Leczna – París SG .................................... 0:2 Ajax – Bayern München .......................... 1:3  Evrópudeildin Valencia – Anadolu Efes .................... 76:74  Martin Hermannsson skoraði fjögur stig fyrir Valencia, tók eitt frákast og gaf sjö stoðsendingar á 18 mínútum.  Valencia hefur unnið átta af fyrstu 13 leikjum sínum og er í 5. sæti af 18 liðum.   LOS ANGELES Gunnar Valgeirsson gval@mbl.is Í gegnum áratugina hér í Kaliforníu hef ég haft ótrúlegt tækifæri til að sækja fjöldann allan af íþrótta- og skemmtiviðburðum á sumum af frægustu skemmtistöðum Los Angel- es, s.s. Hollywood Bowl, Rose Bowl, gamla Ólympíuleikvanginn, og Stap- les Center. Fyrir mér er hluti af því að sækja slíka skemmtan heim að mæta snemma og nota tímann til að njóta og athuga byggingargerð. Á dögunum fékk ég gott tækifæri til að sækja nýjasta íþróttaleikvang Los Angeles, SoFi-leikvanginn í Inglewood sunnan við miðbæinn, á leik LA Rams og San Francisco 49ers í NFL-ruðningsdeildinni. Þar hitti ég Skarphéðin Héðinsson, gamlan kunn- ingja úr Keflavíkinni, en hann hefur leitt hóp sérfræðinga sem tæknistjóri LA Rams, og þessi hópur hannaði og rekur nú tæknihliðina á viðburðum á vellinum. Það er eigandi Rams, Stan Kroenke, sem fjármagnaði ekki að- eins leikvanginn, heldur og allt 120 hektara svæðið sem hann er á. Þetta svæði var áður völlur fyrir hesta- kappreiðar, en sú íþrótt á við mikla erfiðleika að etja þessa dagana. Kroenke bauð eigendum svæðisins verð sem þeir voru fljótir að sam- þykkja. Fyrir utan leikvanginn er verið að klára sex þúsund sæta hljómleikahöll, nýjar höfuðstöðvar fyrir fjölmiðla- deild NFL-deildarinnar, nýtt hótel, íbúðablokkir og annað slíkt. Leik- vangurinn sjálfur mun kosta Kro- enke um 700 milljarða króna, en ólíkt flestum nýjum leikvöngum hér vestra, þá er hann að fjármagna þetta sjálfur, án meiriháttar framlags frá skattgreiðendum. Verkefni sem ekki var hægt að láta framhjá sér fara „Þetta er næststærsta bygging- arverkefni í Bandaríkjunum undan- farin ár og það er enn í gangi,“ sagði Skarphéðinn um leið og hann fór með mig um völlinn og benti á bygging- arframkvæmdir sem enn eru í gangi á svæðinu. Hann benti mér á ýmsa athyglisverða hluti vallarins tengda jarðskjálftum og fluglendingaleið inn á alþjóðaflugvöll Los Angeles skammt frá. „Ég efast um að völlur með slíkan arkitektúr verði byggður á næstu áratugum hér vestra vegna kostnaðarins. Tvö lið eru með völlinn og borgin laðar að allskonar skemmtiviðburði, þannig að þetta er efnahagslega mögulegt hér, en í fæst- um öðrum borgum.“ Skarphéðinn fékk boð um starf tæknistjóra Rams árið 2016 og það var verkefni sem hann var tilbúinn að takast á við en hann hefur nú búið hér vestra í þrjá áratugi. „Ég tók við þessu starfi fyrir fjórum árum og var heillaður af þessu verkefni liðsins hér í Inglewood. Við lentum strax í erf- iðleikum eftir að vallarsvæðið var grafið niður um þrjátíu metra til að vera innan hæðartakmarkana flug- yfirvalda nálægt flugvellinum. Þú manst kannski eftir rigningavetr- inum þá, en þær rigningar fylltu grafninginn í hvívetna. Eftir þann barning fóru hlutirnir að ganga bet- ur.“ Skelin og skjárinn Að öllu þessu svæði ólöstuðu er það leikvangurinn sjálfur sem heillar mest. Það athyglisverðasta er að leik- völlurinn sjálfur er grafinn 30 metra niður, þannig að maður gengur beint af bílastæðinu inn á efri áhorfenda- svæðin. Völlurinn sjálfur og umhverfi hans eru þakin skelinni eins og ég kalla hana. Þetta er bogadregið þak með sérstakri sólarhlíf sem virkar eins og ljósasía. Jafnvel þótt sterkt sólarljós sé úti, síar hlífin út heitustu geislana og það gerir það að verkum að áhorf- endum er ekki eins heitt og annars. Skelin er einnig opin neðan til og hleypir þannig inn hafgolunni sem kemur af Kyrrahafinu rétt sunnan við leikvanginn. Á sunnudag var enn einn sólríki dagurinn hér í Los Angel- es og ég tók mig til á meðan á leikn- um stóð að ganga sem mest um leik- vanginn þar sem langmesti tíminn í leiknum fer í pásur og sjónvarps- auglýsingar. Þrátt fyrir sólarljósið var hitinn inni á vellinum eins og best varð á kosið. „Eigandinn vildi endilega nota góða veðrið á þessu svæði og hafa leikvanginn opinn fyrir hafgolunni, frekar en að loka hann af eins og flestir aðrir leikvangar sem byggðir hafa verið undanfarna áratugi,“ sagði Skarphéðinn. „Þar að auki eru pixlar í þakinu sem gera það kleift að sýna myndrænt efni á þakinu. Þú getur séð það úr flugvél í aðfluginu á flug- völlinn.“ Það er hinsvegar sporöskjulaga myndskjárinn sem hangir úr þakinu yfir vellinum eins og loftskip sem vekur alla athyglina þegar maður kemur inn á leikvanginn. Þar er Skarphéðinn í essinu sínu þegar hann lýsir honum fyrir mér. „Ég fékk þetta verkefni að stýra hönnun og hugbún- aði fyrir efni á skjáinn fyrir Rams. Þetta er allt í 4K-tækni og skjárinn er með um 80 milljónir af LED-lömpum sem gefa okkur frábæra úrlausn.“ Hann hefur vissulega rétt fyrir sér þar. Þegar maður situr í efri hluta sætanna eins og ég gerði mestan hlutann af leiknum er eins og maður sé að horfa á nýtt hágæða sjónvarp í stofunni heima. Nóg af rými Það var vissulega óvenjuleg tilfinn- ing að ganga um leikvanginn og nær- liggjandi svæði án áhorfenda. Þeir munu ganga í gegnum stóran al- menningsgarð með tveggja hektara tjörn rétt við aðalinnganginn. Að þessum garði munu íbúar Inglewood hafa aðgang alla daga ársins, sem mun verða mikil búbót fyrir bæ með skort á útivistarsvæðum. Ég hef lúmskan grun um að margir bæjar- búar muni nota garðinn fyrir skokk og aðra útiveru. Það sem einkennir þennan nýja leikvang er hversu stórt svæði er fyr- ir áhorfendur að ganga um handan áhorfendasætanna sjálfra. Ég hef heimsótt nokkra nýja leikvanga und- anfarin ár, en enginn af þeim hefur eins mikið pláss fyrir áhorfendur að rölta um og fá sér drykk og mat. Það eru tvö stór torg við endana á efri hluta vallarins og það verður gaman að sjá hvernig allt þetta svæði virkar þegar 70 þúsund manns mæta á stað- inn. Þar sem þakið er opið að neðan eru ýmis svæði þar sem maður getur séð nærliggjandi umhverfi og jafnvel hluta af Santa Monica-fjallgarðinum í vesturátt. Þannig er hægt að fara úr áhorfendasætunum og fá sér smá göngutúr í þessum löngu pásum sem oft verða á NFL-leikjum. 5G- símatæknin sem lið Skarphéðins hef- ur sett upp mun gefa snjallsíma- fíklum næga möguleika á að fá útrás frá leiknum í friði. Arkitektar grófu einnig tvö gil sitt hvorum megin vallarins og settu þar gangstíga og gróður fyrir þá sem hafa miða í sætin nærri vellinum. „Þetta skilar sér í því að þá er mun betri birta inni á svæðunum þar sem þessir áhorfendur geta gengið um,“ bendir Skarphéðinn á. „Þeir reyndu að hugsa um sem flesta hluti til að gera reynsluna af heimsókn á völlinn sem besta.“ Yfirhöfuð er reynslan af leikvang- inum blanda af innan- og utandyra- tilfinningu, sérstaklega í efri hluta áhorfendasvæðanna. Óvenjuleg reynsla Ég sá á viðbrögðum Skarphéðins að hann getur vart beðið eftir að fá áhorfendur á völlinn. „Við hönnuðum þetta jú fyrst og fremst fyrir áhorf- endur, þannig að maður hefur enn ekki getað fengið fulla reynslu á hvernig að þetta virkar allt án þeirra. Það kann að vera að það þurfi að bíða til næsta keppnistímabils í ágúst á næsta ári þar sem kórónuveiran hér vestra er farin úr böndunum þessa dagana og verður væntanlega svo næstu mánuði.“ Það einkennilega við að vera á þessum leik Rams var að þrátt fyrir fjarveru áhorfenda var starfshópur Skarphéðins á fullu í að nota tæknina sem best. Ég fékk tækifæri til að kíkja inn í stjórnunarherbergi tækni- deildarinnar og það var eins og að vera í splunkunýrri Hollywood- mynd. Um tíu manns voru á þremur mismunandi stöðum með hágæða skjái um allt, að sjá til þess að bæði hljóð og myndrænt efni væri allt sam- kvæmt bókinni. „Við erum í raun með okkar eigin sjónvarpsstöð á vell- inum,“ benti Skarphéðinn á. Fyrir utan allt þetta myndræna efni sem áhorfendur munu reyna þegar þeir mæta, var plötusnúður Rams, DJ Mal-ski, á fullu tvo tíma fyrir leik og meðan á honum stóð að ýta fólkinu á staðnum í stuð, enda hljóðkerfið á vellinum jafngott og myndskjárinn. Að vera á staðnum þessa fimm tíma var eins og að vera á fimm klukkutíma tónleikum. Rams tapaði leiknum 23:20 á vall- armarki um leið og leiktíminn rann út. Einu lætin sem brutust út á leik- vangnum í sigursparkinu voru á vara- mannabekk San Francisco hundrað metra frá mínu sæti. Geta vart beðið eftir áhorfendum  Magnaður nýr leikvangur í LA Ljósmynd/Gunnar Valgeirsson Tæknistjórinn Skarphéðinn Héðinsson á nýja og glæsilega leikvanginum þar sem LA Rams og San Diego Chargers leika nú heimaleiki sína. Ítalski knattspyrnumaðurinn Paolo Rossi er látinn 64 ára að aldri. Rossi var ein af driffjöðrum ítalska lands- liðsins sem varð heimsmeistari á Spáni 1982. Var hann valinn besti maður keppninnar og varð marka- kóngur. Sú saga var öll hin ævin- týralegasta því Rossi hafði verið í leikbanni í tvö ár vegna tengsla við hagræðingu úrslita. Ekki þótti því sjálfsagt mál að velja hann í HM- hópinn en þegar á hólminn var komið stal hann senunni og skoraði m.a. þrennu þegar Ítalía sló út Brasilíu, vinsælasta lið keppninnar. Markakóngur HM 1982 er látinn AFP HM Paolo Rossi var hetja ítalska liðsins sem varð heimsmeistari. Körfuknattleiksmaðurinn Ingvi Þór Guðmundsson er genginn í rað- ir Hauka frá Grindavík en Haukar tilkynntu um félagaskiptin í gær. Ingvi skoraði 14 stig að meðaltali í Dominos-deildinni síðasta vetur, gaf að jafnaði 5 stoðsendingar og tók 5 fráköst í leik. Hann ætti því að styrkja lið Hauka verulega en Ingvi á marga leiki að baki fyrir yngri landslið Íslands. Ingvi er uppalinn í Grindavík en foreldrarnir Guð- mundur Bragason og Stefanía Jónsdóttir léku bæði körfuknattleik með Haukum um tíma. Ingvi í fótspor foreldranna Morgunblaðið/Eggert Skiptir Ingvi Þór Guðmundsson er kominn til liðs við Hauka.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.