Morgunblaðið - 11.12.2020, Side 37

Morgunblaðið - 11.12.2020, Side 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 2020 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is 71% SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI. TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ STÓRKOSTLEGA VEL GERÐNÝ MYND FYRIR FJÖLSKYLDUNA FRÁROBERT ZEMECKIS. SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI FRÁBÆR NÝ JÓLA TEIKNIMYND NÝGRÍN-SPENNUMYNDMEÐMEL GIBSON, SEM “HINN EINI SANNI” JÓLASVEINN. HARÐASTA JÓLAMYND SEMKOMIÐHEFUR! Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Tónlistarkonan Jóhanna Elísa sótti innblástur í málverk við gerð breið- skífunnar Mystic Moon sem kom út 20. nóvember og þá meðal annars í verk meistara Kjarvals. Hún lýsir tónlistinni sem einhvers konar blöndu af poppi og klassík með ævin- týrablæ. Jóhanna leikur bæði á pí- anó og syngur og útsetti einnig lögin fyrir strengja- og blásturs- hljóðfæri. Fyrir fyrsta lag plöt- unnar, „Queen of Winter“ sem kom út fyrr á árinu, hlaut hún tilnefningu í opnum flokki laga- smíðaverðlaunanna The European Songwriting Awards en innsendar lagasmíðar nema þar hundruðum. Jóhanna gefur plötuna út í streymi og einnig á vínil en þeir sem vilja eintak af vínilplötunni geta keypt það á bandcamp-síðu hennar, johannaelisa.bandcamp.com. Hún segir gaman frá því að segja að með vínilplötunni fylgi málningarstrigi, tvær litatúbur og pensill svo fólk geti málað á meðan það hlustar. Á lokaári í LHÍ Jóhanna er 25 ára og með langt tónlistarnám að baki, hóf að nema klassískan píanóleik sjö ára og er út- skrifuð úr rytmískum söng í FÍH þar sem hún hefur einnig stundað rytmískt píanónám. Hún er núna á lokaári í námi við Listaháskóla Ís- lands þar sem hún er bæði að læra til tónlistarkennara og að læra laga- og textasmíðar. Jóhanna hefur áður gefið út hljómplötu, EP-plötu fyrir tveimur árum en nýja platan hefur að geyma sjö lög. Hún segir gerð nýju plöt- unnar hafa tekið um eitt og hálft ár þar sem hún varð að vinna hana meðfram skóla og vinnu. „Ég er mjög ánægð með að vera búin með hana og hún sé komin út,“ segir Jó- hanna um plötuna. Málverk fyrir ofan píanóið var kveikjan „Mér finnst alltaf auðveldara að semja tónlistina og laglínurnar en á erfiðara með að finna texta. Ég var heima hjá mér eitt sinn og búin að semja píanólag og langaði að setja texta við það en vantaði innblástur. Fyrir ofan píanóið var málverk sem ég keypti af götulistamanni í Osló og mér fannst lagið og þetta verk passa svo vel saman að ég ákvað að sökkva mér inn í málverkið. Kanna hvað væri að gerast í því og textinn kom á augabragði,“ segir Jóhanna um mál- verkatenginguna fyrrnefndu. Hún hafi í kjölfarið farið á Kjarvalsstaði í leit að innblæstri fyrir lög og texta. Í stuttu máli sagt varð úr þessi breið- skífa, Mystic Moon. Jóhanna nefnir sem dæmi lagið „Queen of Winter“ sem var innblásið af málverki eftir Kjarval af vetrar- drottningunni. Hún tók myndir af verkinu og fór svo heim og samdi út frá þeim myndum. Á YouTube má finna tónlistarmyndband Jóhönnu við lagið. „Þetta er mjög skemmtileg leið til að semja og fá innblástur,“ segir Jóhanna. Aðdáandi Eivarar Jóhanna er að lokum beðin að nefna helstu áhrifavalda sína í tón- list og segist hún sérstakur aðdáandi Eivarar Pálsdóttur. Eivör sé bæði frábær söngkona og lagasmiður. „Hún er mín helsta fyrirmynd ef ég ætti að nefna einhverja,“ segir Jó- hanna og bendir á að þjóðlegan blæ megi greina í tveimur lögum plöt- unnar líkt og svo oft megi greina í lögum hinnar færeysku Eivarar. Morgunblaðið/Eggert Jólalegt Jóhanna Elísa við píanóið heima hjá sér sem prýtt er fallegu jólaskrauti og bangsa í jólaskapi. „Skemmtileg leið til að semja og fá innblástur“  Jóhanna Elísa samdi lög og texta út frá málverkum fyrir plötuna Mystic Moon Á fundi allsherjar- og menntamála- nefndar Alþingis í gærmorgun var ákveðið að Jón Ásgeirsson tónskáld og Friðrik Þór Friðriksson kvik- myndagerðarmaður bætist í hóp þeirra listamanna er hljóta heiðurs- laun. Koma þeir í stað Jóhanns Hjálmarssonar, ljóðskálds og þýð- anda, og Ragnars Bjarnasonar tón- listarmanns sem létust á árinu. Tuttugu og fimm listamenn fá heiðurslaun. Auk Jóns og Friðriks Þórs eru það nú Bubbi Morthens, Erró, Guðbergur Bergsson, Guðrún Ásmundsdóttir, Guðrún Helgadótt- ir, Gunnar Þórðarson, Hannes Pét- ursson, Hreinn Friðfinnsson, Jón Nordal, Jón Sigurbjörnsson, Jónas Ingimundarson, Kristbjörg Kjeld, Kristín Jóhannesdóttir, Magnús Pálsson, Matthías Johannessen, Megas, Steina Vasulka, Vigdís Grímsdóttir, Vilborg Dagbjarts- dóttir, Þorbjörg Höskuldsdóttir, Þorgerður Ingólfsdóttir, Þráinn Bertelsson og Þuríður Pálsdóttir. Jón og Friðrik Þór fá heiðurslaun Friðrik Þór Friðriksson Jón Ásgeirsson Gagnrýnendur glæpasagna í breskum miðlum hafa undanfarið ritað lofsamlega um bækur Ragn- ars Jónassonar. Nú síðast í The Independent en rýnir segir þar að aðdáendur glæpasagna muni njóta þess að lesa Vetrarmein eftir Ragnar, þá síðustu sem kom út á ensku, en hún er sögð „nístandi spennandi lokahnykkur á Siglu- fjarðarseríu hans“. Er hún á lista yfir bestu bækur mánaðarins. Saga Ragnars lof- uð í Independent Ragnar Jónasson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.