Morgunblaðið - 28.12.2020, Qupperneq 1
/BING
O
M Á N U D A G U R 2 8. D E S E M B E R 2 0 2 0
Stofnað 1913 304. tölublað 108. árgangur
GEFUR ÚT
„FRANKEN-
STEIN“-PLÖTU
Í ATVINNU-
MENNSKU Í
ÞRIÐJA SINN
COCO REILLY 29 ARNA SIF 27
Segja má að veðrið um jólahátíðina hafi verið
upp og ofan í ár, en á höfuðborgarsvæðinu
skiptust á snjókomur, slydduhríð og alls herj-
ar stormur. Gul veðurviðvörun var svo í gildi
um allt land í gær og þurftu björgunarsveit-
irnar að sinna ýmsum verkefnum vegna þess.
Á annan í jólum gafst hins vegar stund milli
stríða, og nýttu vegfarendur við Tjörnina sér
það til þess að gefa fuglunum þar aðeins að
borða, og voru álftirnar eflaust fegnar því að
fá athygli nú þegar svartasta skammdegið er
að ganga yfir.
Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir
Stund milli veðrastríða um jólahelgina
Samkomulag
náðist á að-
fangadag um
framtíðarsam-
band Bret-
lands og
Evrópusam-
bandsins, eftir
að landið
gengur úr
Evrópska
efnahagssvæð-
inu um áramót. Guðlaugur Þór
Þórðarson utanríkisráðherra
segir að samkomulagið sé fagn-
aðarefni enda einfaldi það alla
vinnu Íslands um fríverslun.
Bráðabirgðasamningur um frí-
verslun hafði þegar verið gerður
milli Bretlands og Íslands, en
Bretar voru ekki tilbúnir í að
klára viðræður um framtíðar-
fyrirkomulag við Íslendinga og
aðrar þjóðir EES fyrr en sam-
komulag við Evrópusambandið lá
fyrir. »4, 12 & 14
Bretar og Evrópu-
sambandið semja
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Gæta þarf að
andlegri líðan
björgunar-
sveitafólks sem
fer á vettvang
erfiðra verkefna,
segir Elva
Tryggvadóttir.
Hún hefur lengi
starfað innan
Slysavarnafélags-
ins Landsbjargar
og lauk nýlega meistaraverkefni í
mannauðsstjórn við HÍ þar sem sál-
arheill björgunarsveitafólks var
könnuð og greind til úrbóta.
Áfallastreita og einkenni frekari
röskunar er þekkt meðal björg-
unarsveitarfólks. Elva segir alla
áfram um að taka á málinu, enda sé
dýrkeypt að missa þrautþjálfað fólk
úr starfinu. Margt hafi áunnist, svo
sem með fræðslu og félagastuðningi
í eftirleik erfiðra verkefna. „Sálræni
þátturinn vegur þungt,“ segir Elva
Tryggvadóttir. »10
Áfallastreita björg-
unarfólks könnuð
Elva
Tryggvadóttir
Alexander Kristjánsson
alexander@mbl.is
Tíu þúsund skammtar af bóluefni
lyfjafyrirtækisins Pfizer koma til
landsins í dag. Tekið verður á móti
efninu í höfuðstöðvum dreifingar-
fyrirtækisins í Distica í Garðabæ
klukkan 10.30 og verða heilbrigðis-
ráðherra og þríeyki almannavarna
viðstödd.
Júlía Rós Atladóttir, framkvæmda-
stjóri Distica, segir að verkefnið sé
ótvírætt það stærsta sem fyrirtækið
hefur komið að. Efnið kemur frá
Amsterdam með flugi og er því haldið
í 80 gráða frosti með þurrís. „Þegar
efnið kemur til Distica þá getum við
bæði bætt þurrís á
flutningsumbúð-
irnar en einnig
erum við með
frysti sem heldur
efninu í mínus 80
gráðum, segir Júl-
ía. Áður en bólu-
efninu er keyrt út
þarf að fara yfir
flutningsferlið og
hitastigið í flutningnum en sérstakir
hitasíritar fylgjast með hitastigi efnis-
ins meðan á flutningnum stendur.
Það er í höndum Pfizer að gefa loka-
mat á að flutningurinn til Íslands hafi
verið í lagi, og að svo búnu er hægt að
keyra helming efnisins út, eða 5.000
skammta en hinir 5.000 skammtarnir
verða geymdir fyrir síðari bólusetn-
ingu. „Það eru allir á tánum þannig að
við gerum ekki ráð fyrir að þetta taki
langan tíma,“ segir Júlía, en bólusetn-
ing hefst svo á morgun.
Um 700 starfsmenn á Landspítala
og Sjúkrahúsinu á Akureyri, sem
einkum hafa sinnt Covid-sjúklingum,
verða meðal þeirra fyrstu til að fá
bólusetningu en einnig starfsfólk
sjúkrahúsa og heilsugæslustöðva
hringinn í kringum landið. Fyrstu
bólusetningarnar verða á morgun, en
ekki hefur verið gefið út hver mun
fyrstur fá bóluefnið.
Bóluefnið kemur til
landsins fyrir hádegi
10.000 skammtar frá Pfizer Bólusetning hefst á morgun
M Bóluefni » 4 & 13
Júlía Rós
Atladóttir