Morgunblaðið - 28.12.2020, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. DESEMBER 2020
er bæði spennandi
og ógnvekjandi
Bókin fæst í Eymundsson
UNGMENNABÓKIN
SENSITIVE
heitir núna
PEAUX
SENSIBLES
Nýjar umbúðir
– sama góða
varan
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Hefur ekki áhrif á stjórnarsamstarf
Katrín segist vonsvikin með atvik í Ásmundarsal Bjarni telur uppnám ólíklegt Kurr í stjórnarliði
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Forsætisráðherra og fjármálaráð-
herra telja ekki að umræða vegna
heimsóknar þess síðarnefnda í Ás-
mundarsal á Þorláksmessu hafi sér-
stakar pólitískar afleiðingar. Kurr er
í sumum þingmönnum samstarfs-
flokka sjálfstæðismanna í ríkis-
stjórn, en þó ekki svo að það eigi að
hafa teljandi áhrif á samstarfið.
„Ég tel að þetta muni ekki valda
neinu uppnámi í stjórnarsamstarf-
inu, ég hef ekki neina ástæðu til að
ætla það,“ segir Bjarni Benediktsson
fjármálaráðherra í samtali við Morg-
unblaðið. En hvað með að það hafi
veikt traustið milli manna? „Ég skil
alveg hvað átt er við með því, við er-
um í stöðugri fjallgöngu og svona at-
burðir gera hana ekki auðveldari.“
Katrín vonsvikin
Katrínu Jakobsdóttur forsætis-
ráðherra þykir málið allt miður. „Ég
ræddi þetta við ráðherrann og sagði
honum sem var, að ég væri mjög
vonsvikin með þennan atburð. Eins
og fram hefur komið, hefði hann átt
að átta sig á aðstæðum og yfirgefa
svæðið, eins og hann sagði raunar
sjálfur og baðst afsökunar á,“ segir
hún í samtali við Morgunblaðið. „Það
eru ríkari kröfur á okkur, sem eru í
forystu, en aðra. Við eigum öll að
vera mjög meðvituð um það,“ bætti
hún við.
Katrín telur að það eigi ekki að
þurfa að hafa nein eftirmál, þótt mál-
ið sitji í ýmsum. „Þetta er þannig at-
vik, að það eru margir reiðir og von-
sviknir. Því hef ég sagt að það geti
skaðað traustið milli flokkanna og
gert samstarfið erfiðara, sem ég hef
auðvitað áhyggjur af,“ segir for-
sætisráðherra. „Það hefur verið mik-
il samstaða í ríkisstjórn í þeim flóknu
verkefnum, sem við stöndum í, og
þar höfum við náð gríðarlegum ár-
angri. Þess vegna tel ég mikilvægt
að við vinnum úr þessu atviki.“
Svipuð sjónarmið komu fram hjá
þingmönnum, sem blaðið ræddi við,
án þess þó að fram kæmu kröfur um
pólitískt uppgjör vegna þess, eins og
sumir stjórnarandstöðuþingmenn
hafa kallað eftir. „Þetta er náttúru-
lega afar óheppilegt mál sem við
þurfum að ræða innan okkar raða.
Bæði þarf að fara yfir málið innan
stjórnar og þingflokks,“ sagði Ólafur
Þór Gunnarsson, þingmaður vinstri
grænna. Í sama streng tók Líneik
Anna Sævarsdóttir, þingmaður
Framsóknarflokks, sem sagði þetta
„svakaleg mistök“.
Samkvæmi eða sölusýning?
Fréttir voru sagðar af því á að-
fangadagsmorgun, samkvæmt lit-
ríkri færslu í svonefndri „Dagbók
lögreglu“, að einkasamkvæmi í mið-
borginni hefði verið lokað vegna
brota á sóttvarnareglum og tekið
fram að þar hefði ráðherra verið
meðal gesta. Eftirgrennslan fjöl-
miðla leiddi í ljós að þar var rætt um
Bjarna Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra.
Hann sagði hins vegar að þar hefði
hann átt stutta viðkomu á sölusýn-
ingu og talið að sóttvarnareglur
hefðu verið virtar, en hins vegar
hefði fjölgað snögglega í húsinu og
hann ekki gætt að því að fara nógu
skjótt. Bjarni baðst afsökunar á því.
Að sögn forráðamanna Ásmund-
arsalar var um sölusýningu að ræða,
enda þar rekið listagallerí og verslun
og því leyfi til þess að hafa opið til kl.
23 á Þorláksmessu. Tvö rými eru í
húsinu, á sitt hvorri hæðinni, svo
áhöld kunna að vera um leyfilegan
mannfjölda í húsinu.
Boðið verður upp á sérstakt jóla- og
nýársbingó K100, mbl.is og Morg-
unblaðsins í kvöld. Siggi Gunnars
bingóstjóri segir viðtökurnar hafa
verið framar vonum og því hafi verið
ákveðið „að klára árið með stæl“.
Vinningarnir verða ekki af verri
endanum, en þátttakendur geta m.a.
unnið flugeldapakka og skottertur
frá Landsbjörgu. Þá verður einnig
risasjónvarp frá Samsung í boði
ásamt alls kyns góssi sem hentar í
áramótafögnuðinn. „Hin frábæra
Salka Sól verður heiðursgestur þátt-
arins en þetta hefur heldur betur
verið flott ár hjá henni, fyrir utan
það að gefa út vinsæla prjónabók var
hún ein aðalsprautan í vinsælu þátt-
unum hans Helga Björns. Salka mun
taka fyrir okkur tvö lög í þættinum
og leika á als oddi,“ segir Siggi.
Hægt er að ná sér í bingóspjald á
mbl.is/bingo og hefst útsendingin kl.
19 í beinu streymi á mbl.is og á rás 9
í sjónvarpi Símans. „Við klárum
þetta ár í sameiningu og förum full
bjartsýni inn í það næsta,“ segir
Siggi Gunnars að lokum.
Veglegir vinningar
í lokabingói ársins
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bingó Förum full bjartsýni inn í
næsta ár segir Siggi bingóstjóri.
Þórunn Egils-
dóttir, þingmað-
ur Framsókn-
arflokksins í
Norðaust-
urkjördæmi, er
komin í veik-
indaleyfi eftir að
hafa greinst að
nýju með
krabbamein. Hún
var með krabba-
mein fyrir nokkrum misserum sem
tókst að komast fyrir en nú „... öll-
um að óvörum hefur boðflennan
skorað mig aftur á hólm,“ segir
Þórunn í yfirlýsingu á Facebook í
gær. Hún var lögð inn á Sjúkra-
húsið á Akureyri 22. desember og
lyfjameðferð vegna krabbameins í
lifur hófst á öðrum degi jóla. Hún
segist keik mæta þessu verkefni
eins og öðrum, treysti læknum, sitt
sé að sjá um að hafa hausinn rétt
skrúfaðan og horfa fram á við í
þessari baráttu.
Þórunn Egilsdóttir býr með fjöl-
skyldu sinni á Hauksstöðum í
Vopnafirði og hefur setið á Alþingi
frá árinu 2013.
Þórarinn Pétursson, bóndi á
Grund í Grýtubakkahreppi, er
varaþingmaður Framsóknar í
Norðausturkjördæmi. Hann mun
því væntanlega taka sæti Þórunnar
á Alþingi þegar Alþingi kemur
saman að nýju eftir jólaleyfi, 18.
janúar næstkomandi. sbs@mbl.is
Þórunn er
farin í veik-
indaleyfi
Þórunn
Egilsdóttir
Því miður getur það komið fyrir að skila þarf
eða skipta út jólagjöfunum, og er jafnan mikið
um að vera í verslunarmiðstöðvum landsins
fyrstu viðskiptadagana eftir jól. Gert var ráð
fyrir því að um 22.000 manns myndu leggja leið
sína í Kringluna í þeim erindagjörðum í gær.
Örtröð í Kringlunni á fyrsta skiptidegi jóla
Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir