Morgunblaðið - 28.12.2020, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. DESEMBER 2020
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Eftir ótelj-andi loka-fresti og of-
an á þá alla tæplega
sólarhrings töf
vegna reikni-
skekkju örþreyttra embættis-
manna í Brussel á fiskveiði-
heimildum í breskri lögsögu,
var loks tilkynnt á aðfangadag
að Bretar og Evrópusambandið
hefðu náð samningi sem tæki
við þegar samningar vegna að-
ildar Breta að Evrópusamband-
inu féllu úr gildi í árslok. Char-
les Moore, pistlahöfundur The
Telegraph og fyrrverandi rit-
stjóri bæði þess blaðs og The
Spectator, fjallaði um samning-
inn nýja á jóladag og benti á að
samningaviðræður við Evrópu-
sambandið væru huldar leynd-
arhjúpi, þær drægjust mán-
uðum saman og svo væri
skyndilega kominn á samningur
svo hratt að enginn vissi fyrir
víst um hvað samið hefði verið.
Af þeim sökum yrði að setja
fyrirvara við álitsgjöf um þenn-
an samning, hún væri ekki
byggð á fullkomnum upplýs-
ingum.
Úr því hefur heldur verið
bætt síðan, en margt í útfærsl-
unni og framkvæmdinni á eftir
að koma í ljós og enn eru uppi
ákveðnar efasemdir um að
Bretar séu í raun sloppnir úr
klóm hins evrópska regluverks.
Slíkar efasemdir eru vonandi
óþarfar og samningurinn virð-
ist tryggja Bretum það sem
þeir vildu umfram annað, fullt
forræði yfir eigin málum. Þeir
vildu semja við Evrópusam-
bandið sem fullvalda ríki og
þurftu að hafa töluvert fyrir því
að fá forráðamenn Evrópusam-
bandisins til að skilja að þeim
væri full alvara með þeirri sjálf-
sögðu kröfu sinni. Evrópusam-
bandið ætlaði sér allt fram á
síðasta dag að reyna að koma í
veg fyrir að Bretar gætu í raun
komist undan regluverki sam-
bandsins.
Þessi áform Evrópusam-
bandsins voru í hæsta máta
ósvífin en komu ekki á óvart.
Sambandið hafði róið að því öll-
um árum að koma í veg fyrir
það fyrir fjóru og hálfu ári að
Bretar kysu með brottför og
hafa eftir þá lýðræðislegu
ákvörðun gert allt til að reyna
að koma í veg fyrir að ákvörðun
almennings yrði að veruleika. Í
þessari viðleitni hafa þeir notið
stuðnings ýmissa innan Bret-
lands, sem hafa orðið sér til
skammar með framgöngu sinni
svo lengi verður í minnum haft
þar í landi.
Boris Johnson hefur á hinn
bóginn vaxið við að takast það
verkefni sem var allt annað en
auðvelt og aðrir höfðu reynt en
mistekist. Það er eftirminnilegt
að hann virtist tvístígandi í að-
draganda kosninganna um
Brexit og lengi vel vissu menn
ekki hvar hann kæmi niður í
þeim slag. Hann
endaði þó með út-
göngusinnum og
hefur síðan haft
næga sannfæringu
til að berjast áfram
fyrir málinu og gefa ekki eftir
það grundvallaratriði þess að
Brexit þýddi Brexit, líkt og for-
veri hans orðaði það, en sú virt-
ist afar óviss um merkingu
þeirra orða.
Bretar kusu um það hvort
þeir ættu að fara úr Evrópu-
sambandinu eða vera þar
áfram. Það var alveg skýrt og
niðurstaða kosningarinnar
sömuleiðis. Þess vegna var með
ólíkindum þegar í gang fór eftir
kosninguna umræða og at-
burðarás til að reyna að gera
kosninguna, það er að segja
vilja almennings, að engu.
Eftir að Johnson tókst fyrr á
þessu ári að tryggja það að af
útgöngunni yrði tók við bar-
áttan um það hvort að hún yrði
með samningi eða án samnings
og þá líka hvers konar samn-
ingur það yrði ef hann næðist.
Ýmsar útgáfur voru mögulegar
í þessum efnum og lengi reyndi
Evrópusambandið að tryggja
það að Bretar þyrftu eftir sem
áður að lúta stofnunum Evrópu-
sambandsins og reglum innri
markaðarins. Þá lagði Evrópu-
sambandið ofurkapp á að fá að
halda til frambúðar núverandi
fiskveiðiréttindum sínum í
breskri lögsögu. Allt var þetta
vitaskuld fráleitt og þó að Bret-
ar hafi orðið að veita lengri að-
lögun en þeir hefðu helst kosið í
sjávarútvegsmálunum, þá end-
urheimta þeir engu að síður yf-
irráðin og svo fiskveiðiréttindin
innan fárra ára.
Þegar þessi samningur ligg-
ur nú fyrir verður eflaust mikið
um hann rætt og ritað næstu ár-
in og jafnvel áratugina, enda
töluverð tíðindi og getur haft
mikil áhrif á þróun Evrópusam-
bandsins, víðtækari áhrif en
eingöngu að því marki sem snýr
að samskiptunum við Bretland.
En það verður líka mjög fróð-
legt að fylgjast með því hvernig
Bretlandi annars vegar og Evr-
ópusambandinu hins vegar
vegnar á næstunni. Ekkert hef-
ur skort á hrakspárnar og mjög
verið reynt að tala niður tæki-
færi Bretlands. Sú umræða hef-
ur haldið áfram eftir að-
fangadagssamninginn. Líkur
eru þó á að Bretum takist að
nýta sér það að vera komnir
undan regluverki og við-
skiptahömlum Evrópusam-
bandsins. Boðskapur Boris
Johnsons í viðtali við The Tele-
graph á annan í jólum var í það
minnsta á þann veg að nú yrði
tækifærið gripið. Eftir þann
baráttuanda sem hann hefur
sýnt að undanförnu þarf ekki að
efast um að hann ætlar sér að
láta verkin tala og leyfa Bretum
að njóta þess að vera lausir
undan oki Evrópusambandsins.
Bretar náðu samn-
ingum við ESB þrátt
fyrir dökkt útlit}
Óvenjuleg jólagjöf
M
argir geta vart beðið þess að
árinu 2020 ljúki. Sjá fyrir sér
táknræn tímamót þegar ártal-
ið breytist á miðnætti þann 31.
desember og nýja árið gengur
í garð. Það er mín sannfæring að fram undan sé
gott ár og okkur takist að skilja við erfiðleikana
sem einkenna árið sem nú er að renna sitt
skeið. Hins vegar skulum við muna, að breyt-
ingar ráðast ekki af væntingunum einum sam-
an, voninni og óskhyggjunni. Breytingar verða
þegar orðum fylgja efndir, þegar hugmynd fær
vængi og verður að veruleika. Með öðrum orð-
um, þá er það okkar sjálfra að móta heiminn
sem við lifum í, taka skóflu í hönd ef moka þarf
skurð eða taka grunn að nýju húsi. „Reistu í
verki, viljans merki,“ orti athafnaskáldið Einar
Benediktsson í Íslandsljóði fyrir 120 árum –
þegar þjóðin var ein sú fátækasta í Evrópu og horfði á
franska fiskimenn moka upp fiski á miðum sem hún sótti
ekki sjálf. Sat með hendur í skauti og fortíðarþrá sem
hamlaði framförum.
Í dag er Ísland á öðrum stað, meðal þeirra þjóða sem
búa við mesta velsæld. Framsóknin á sér margar skýr-
ingar, en líklega hefur engin ein breyta í jöfnunni meira
vægi en kjarkurinn til framkvæmda. Viljinn til verka og
draumurinn um bætt samfélag, þar sem fólk fær jöfn
tækifæri. Sannfæring okkar um mikilvægi menntunar og
samhygðin sem við sýnum þegar eitthvað bjátar á. Sam-
hyggjan birtist síðast fyrir fáeinum dögum, þegar íbúar
Seyðisfjarðar hröktust af heimilum sínum
vegna náttúruvár og samfélagið á Austurlandi
tók utan um þá. Það ætla stjórnvöld líka að
gera, hjálpa til við uppbyggingu þess sem
skemmdist og styðja með ráðum og dáð.
Sú viðleitni er besta veganestið inn í nýtt ár.
Við ætlum að byggja aftur upp öflugt atvinnu-
líf. Styðja við mannlíf og menningu, stuðla að
velsæld og hamingju. Skapa störf í stað þeirra
sem glötuðust á árinu 2020 og snúa vörn í
sókn. Framsókn fyrir þjóðina alla, þar sem við
byggjum framfarir á traustum grunni án for-
tíðarþrár eða íhaldssemi sem hamlar grósku.
Þú sonur kappakyns!
Lít ei svo við með löngun yfir sæinn,
lút ei svo við gamla, fallna bæinn,
byggðu nýjan,
bjartan, hlýjan,
brjóttu tóftir hins.
Líttu út og lát þér segjast, góður,
líttu út, en gleym ei vorri móður.
Níð ei landið,
brjót ei bandið,
boðorð hjarta þíns.
-höf. Einar Benediktsson.
Áramót eru tímamót. Njótum þeirra í faðmi okkar nán-
ustu og vinnum svo saman stóra sigra á nýju ári.
Lilja Dögg
Alfreðsdóttir
Pistill
Hvert andartak er nýtt upphaf
Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
FRÉTTASKÝRING
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Jólaboðskapur Borisar John-son, forsætisráðherra Bret-lands, til þjóðar sinnar vartvíþættur. Annars vegar um
að jólahátíðin væri með öðru sniði nú
en endranær, en að sóttvarnatak-
markanirnar nú væru til þess að stór-
fjölskyldan gæti komið saman næstu
jól heil og hraust. Hins vegar kynnti
Boris jólagjöfina um samninga Breta
við Evrópusambandið, sem gerir það
að verkum að úrganga þeirra um ára-
mótin verður áreynslulaus.
Um efni samningsins eru deildar
meiningar eins og gengur, en hjá
hinu verður ekki litið að gerð hans og
lyktir Brexit er pólitískt afrek hjá
Boris Johnson.
Evrópuspurningin í Bretlandi
hefur verið eitruð, æ síðan hún kvikn-
aði á sjöunda áratugnum og valdið
hatrömmum deilum í opinberri um-
ræðu, jafnvel klofningi innan beggja
stóru flokkanna þar í landi, Íhalds-
flokksins og Verkamannaflokksins.
Gleymum ekki að það var hún, sem
varð sjálfri Margaret Thatcher að
falli. Hún felldi líka John Major,
veikti Tony Blair, batt enda á póli-
tískan feril David Cameron og felldi
Theresu May.
Eftir allan þann dæmalausa
vandræðagang varð Boris Johnson
forsætisráðherra og í krafti loforðs
hans um að klára Brexit vann hann
sögulegan kosningasigur, sem kann
að hafa breytt hinu pólitíska lands-
lagi þar í landi.
Evrópuumræðan útkljáð
Með samningnum hefur Boris
endanlega kveðið breska Evr-
ópusinna í kútinn. Þeir sögðu að
Bretar myndu aldrei kjósa úrgöngu,
síðan úrgöngusamningur yrði aðeins
á forsendum ESB, þá að aðgengileg-
ur viðskiptasamningur myndi aldrei
nást, a.m.k. ekki fyrir úrgöngu og alls
ekki í miðjum heimsfaraldri (sem hef-
ur reynst forsætisráðherranum afar
erfiður, bæði persónulega og póli-
tískt). Allt þetta hefur reynst rangt
og í því öllu skipti framganga Boris
sköpum.
Þar hefur hvað eftir annað kom-
ið á daginn að hann skilur um hvað
Brexit snýst í huga Breta, um hvað sé
hægt að sýna sveigjanleika og hvað
sé ófrávíkjanlegt. Bretar hafa alla tíð
verið áfram um fríverslun, en ekki
um pólitískan samruna.
Samningurinn á aðfangadag
dregur það allt vel fram. Sjálfur við-
skiptasamningurinn var alls ekki erf-
iður, en það sem stóð í mönnum var
fiskurinn og fullveldismálin. Málið
með fiskinn er að hann snýst ekki um
viðskipti, heldur lögsögu, hver ráði
bresku yfirráðasvæði og nýtingu
þess. Þar gat Boris ekki bakkað, en
hann gat vel gefið eftir um aðlög-
unartímann hvað varðar sjáv-
arnytjar. Með sama hætti gat hann
ekki fallist á að Evrópudómstóllinn
hefði frekari lögsögu í landinu eða um
samninginn.
Þar gat hann hrósað sigri, eins
og sjá mátti á fasi hans. Að sama
skapi mátti lesa mikið í upplitið á Ur-
sulu von der Leyen, forseta fram-
kvæmdastjórnar ESB, og Michel
Barnier, aðalsamningamanns sam-
bandsins, sem virtust vera að flytja
minningarorð. Er þó ástæðulaust að
gera lítið úr þætti von der Leyen við
að leysa málið, sem fyrir örfáum dög-
um virtist hlaupið í óleysanlegan
hnút.
Breska þingið kemur saman á
morgun til þess að fjalla um samning-
inn og gert er ráð fyrir að hann fari
auðveldlega í gegn. Harðir Brexit-
menn virðast fella sig við hann og
Verkamannaflokkurinn hefur gefið
til kynna að hann sé þeim ekki á móti
skapi.
Boris kláraði Brexit
á síðustu stundu
AFP
Jólakveðja Í sjónvarpsávarpi á aðfangadag sást á þumli Borisar að blekið á
samningnum var vart þornað. Og úr fiskamynstrinu á bindinu lásu menn sitt.
Það voru fiskveiðar ESB í
breskri lögsögu, sem mestum
vandræðum ollu. Frakkar vildu
ekki gefa neitt eftir, en úr varð
að þeir skila Bretum fjórðungi
kvótans um áramót, en eftir
fimm og hálft ár taka við árlegir
samningar um kvóta og forræði
Breta er óefað. Beggja vegna
Ermarsunds hörmuðu fiski-
menn hlutinn sinn, en frönsk
stjórnvöld lýstu yfir fulln-
aðarsigri og breskur sjávar-
útvegur lýsti yfir vonbrigðum.
Fiskurinn til
vandræða
BREXIT-SAMNINGUR
Ísland
Færeyjar
Noregur
Írland
Bresk lögsaga
DK
DE
NL
BE
Frakkland