Morgunblaðið - 28.12.2020, Síða 15

Morgunblaðið - 28.12.2020, Síða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. DESEMBER 2020 Dúfur við Tjörnina Mikið fuglalíf er við Reykjavíkurtjörn líkt og flestir höfuðborgarbúar vita. Þessar dúfur voru þar og hófu sig til flugs þegar ljósmyndara Morgunblaðsins bar að garði. Íris Jóhannsdóttir Fréttir utan úr heimi um netárásir á lyk- ilstofnanir lýðræð- isþjóðfélaga eru ugg- vekjandi og til marks um gjörbreyttan veru- leika. Nýlegar árásir á tölvukerfi Lyfjastofn- unar Evrópu í Haag í Hollandi og umfangs- miklar árásir í Banda- ríkjunum sýna okkur, svo ekki verður um villst, hversu víðtæk ógn er af slíkum netárásum. Netárásin á Lyfjastofnun Evrópu var gerð á sama tíma og sérfræðingar stofnunarinnar skoðuðu hvort heimila beri notkun bóluefna sem þróuð hafa verið gegn kórónuveirunni. Það getur vart talist tilviljun, þarna eru eyðileggingaröfl að verki sem leggja mikið á sig til að ógna öryggi almennings. Fyrir ári lögðum við ásamt öðrum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins fram beiðni um skýrslu frá forsætis- ráðherra um innviði og þjóðaröryggi. Þar er m.a. tekið á netöryggi og helstu þáttum raforkukerfisins í tengslum við þjóðaröryggi. Nú stytt- ist í útgáfu skýrslunnar en hún verð- ur mjög efnismikil og hefur verið unnin á vettvangi allra ráðuneyta. Er það von okkar að skýrslan marki þáttaskil í netöryggismálum á Íslandi en sem samfélag getum við ekki leyft okkur annað en vera mjög vakandi yfir þeim þjóðfélagsmikilvægu hags- munum sem þarna eru undir. Innviðir og þjóðaröryggi Í greinargerð með skýrslubeiðn- inni óskuðum við eftir að skilgreint verði nánar hvaða innviðir landsins teljist til grunninnviða samfélagsins, sbr. þjóðaröryggisstefnu, og teljast mikilvægir út frá þjóðaröryggi lands- manna, svo sem samgönguinnviðir, raforku- og fjarskiptakerfið. Orku- málin spila hér stóra rullu því sam- félagið er mjög háð raforkuflutnings- kerfinu því oft getur lítil og staðbund- in bilun valdið miklum óþægindum eða jafnvel erfiðleikum. Eftir því sem tækninni fleytir fram og sjálfvirkni- væðing sem gengur fyrir rafmagni verður algengari má búast við að þetta verði æ mikilvægara viðfangs- efni. Við bentum á að íslensk löggjöf er skammt á veg komin í samanburði við nágrannalöndin, þar sem farið var að huga að þessum málum fyrir nokkr- um áratugum. Í Svíþjóð er notað hug- takið „riksintresse“ yfir helstu grunn- innviði sem tengjast landskipulagi sænska ríkisins. Þannig eru helstu innviðir landsins settir alfarið á for- ræði og ábyrgð ríkisins á grundvelli þjóðaröryggishagsmuna Svíþjóðar. Nú eru um 30 af 100 helstu flugvöllum Svíþjóðar skilgreindir sem „riks- intresse“ þar sem skipulagsvaldið hefur verið fært frá viðkomandi sveit- arfélagi yfir á æðra stjórnsýslustig vegna þjóðaröryggishagsmuna. Með sama hætti hafa tilteknir vegir, virkj- anir, raforkuflutningar, lestarteinar o.s.frv verið skilgreindir sem slíkir út frá þjóðarhagsmunum. Að sama skapi þurfum við Íslendingar að skil- greina þá samfélagslegu innviði sem teljast mikilvægir að teknu tilliti til þjóðaröryggishagsmuna. Þannig má tryggja öryggi þjóðarinnar og jafn- framt sameiginlegan skilning á því hvað felist í þjóðaröryggishugtakinu. Jafnframt þarf að endurmeta gefnar hugmyndir og sjónarmið í öryggis- málum með það að markmiði að standa vörð um öryggi þjóðarinnar. Norrænt samstarf í netöryggismálum Í nýrri skýrslu Björns Bjarnasonar um þróun norræns samstarfs á sviði utanríkis- og öryggismála er tekið sérstaklega á netöryggismálunum og rætt um mikilvægi samstarfs Norð- urlandanna á sviði nýrrar tækni og varnir gegn netárásum. Þá þurfi Norðurlöndin að eiga samstarf við aðrar þjóðir í þessum efnum, ekki síst vegna tilkomu 5G-tækninnar. Net- varnir eru mikilvægar bæði í borg- aralegu tilliti og vegna varnarhags- muna þjóðanna. Þar bera stjórnvöld mikla ábyrgð gagnvart almenningi. Ekki síst við upplýsingagjöf og fræðslu. Kemur fram í skýrslunni að norrænt samstarf geti styrkt hvert land fyrir sig í að bregðast við póli- tískum og diplómatískum þrýstingi stórveldanna, sem getur verið misvís- andi. Við fögnum því að útgáfa skýrslu forsætisráðherra um innviði og þjóð- aröryggi er nú handan við hornið og teljum brýnt að í framhaldinu verði gefið í þá vinnu að tryggja varnir og öryggi þjóðarinnar út frá samfélags- legum innviðum, ekki síst netvörnum. Netógnin má ekki grafa undan und- irstöðum lýðræðisþjóðfélaga eins og við sjáum ítrekað reynt af hálfu net- þrjóta. Þar þarf hver þjóð að leggja sitt af mörkum svo unnt verði að verja sem best lykilstofnanir, almenning, sameiginleg gildi og hugsjónir. Eftir Njál Trausta Friðbertsson og Bryndísi Haraldsdóttur »Netógnin má ekki grafa undan und- irstöðum lýðræðisþjóð- félaga eins og við sjáum ítrekað reynt af hálfu netþrjóta. Njáll Trausti Friðbertsson Höfundar eru þingmenn. Njáll Trausti Friðbertsson er varafor- maður utanríkismálanefndar og for- maður Íslandsdeildar NATO- þingsins. Bryndís Haraldsdóttir situr í utanríkismálanefnd. Netöryggi er þjóðaröryggi Bryndís Haraldsdóttir Á árinu sem nú er að líða höfum við fundið það á eigin skinni hversu háð við sem ey- þjóð erum góðum flug- samgöngum til að við- halda lífsgæðum og hagsæld hér á landi. Í upphafi ársins óraði engan fyrir því að heimsfaraldur myndi gjörbreyta daglegu lífi fólks um allan heim. Þær öflugu flug- samgöngur og tengingar á milli landa sem við höfum vanist stöðvuðust nær alfarið með tilheyrandi áhrifum á hagkerfið og þjóðfélagið allt. Icelandair og forverar þess hafa fylgt íslensku þjóðinni í áratugi og gegnt mikilvægu hlutverki við að tengja land og þjóð við umheiminn ásamt því að sinna nauðsynlegum vöruflutningum í yfir 80 ár. Land- fræðileg staðsetning landsins gefur okkur tækifæri til að byggja upp tengimiðstöð í flugi milli Evrópu og Norður-Ameríku og samhliða því öfl- uga ferðaþjónustu hér á landi, öllum til heilla. Sem íslenskt flug- félag höfum við byggt upp mikla reynslu og þekkingu til að takast á við ýmiss konar krefj- andi aðstæður, hvort sem það eru slæm veð- ur, eldgos eða fjár- málahrunið fyrir um áratug. Árið sem er að líða hefur þó verið ólíkt öllum öðrum. Starfsemi Icelandair gjörbreyttist á örfáum vikum úr því að selja flugmiða og flytja fólk á milli landa, í það að finna nýjar lausnir fyrir viðskiptavini í kjöl- far stórfelldra niðurfellinga á flugi vegna ferðatakmarkana um allan heim. Þetta fól í sér breytingar á leiðakerfi og flugáætlun, endur- greiðslur, inneignir og ekki síst að koma þeim á áfangastað sem gátu og ætluðu sér að ferðast. Átak og útsjónarsemi Við lok ársins er mér þakklæti efst í huga. Ég þakka viðskiptavinum okkar fyrir stuðninginn og þolinmæð- ina. Fjölmargir sátu uppi með ónot- aða flugmiða en til að byrja með tók það okkur langan tíma að leysa úr málum farþega þar sem við höfðum hvorki mannskap né umgjörðina til að takast á við fleiri beiðnir en nokkru sinni fyrr um breytingar og endurgreiðslur flugmiða. Með sam- hentu átaki starfsfólks höfum við þó náð utan um þessi mál en síðan í mars höfum við gert breytingar á yfir 500 þúsund flugmiðum og þar af end- urgreitt yfir 300 þúsund flugmiða. Þá erum við ekki síður auðmjúk og þakklát fyrir þann mikla meðbyr og traust sem Icelandair Group var sýnt í vel heppnuðu hlutafjárútboði í sept- ember síðastliðnum. Á undanförnum árum hafa hluthafar í félaginu að mestu verið fagfjárfestar og var það því ánægjulegt að sjá metþátttöku al- mennings í útboðinu. Hluthöfum fé- lagsins fjölgaði um ríflega átta þús- und og eru nú yfir þrettán þúsund talsins. Við ætlum svo sannarlega að standa undir því trausti sem okkur er sýnt og vinnum nú hörðum höndum við að undirbúa það að koma sterk til baka um leið og aðstæður batna. Á sama tíma og mér er þakklæti efst í huga gagnvart íslensku þjóð- inni, þá er ljóst að við hefðum ekki komist í gegnum þetta ár nema fyrir tilstilli starfsfólks Icelandair Group. Með þrautseigju og samheldni hafa allir lagst á eitt til að vinna úr krefj- andi aðstæðum. Hvort sem um ræðir breytta þjónustu við viðskiptavini, að stýra leiðakerfi í óvissuástandi, að viðhalda flugvélum í kyrrstöðu eða viðamikla fjárhagslega end- urskipulagningu sem við lukum í haust til að tryggja framtíð félagsins. Þar að auki, á sama tíma og farþega- flug var í lágmarki, náði okkar útsjón- arsama starfsfólk að skapa félaginu ný tækifæri í fraktflutningum og leiguflugi. Sem dæmi um þetta voru 80 flugferðir með mikilvægar lækn- inga- og hjúkrunarvörur frá Kína til Evrópu og Norður-Ameríku. Þessi verkefni ásamt óteljandi öðrum úr- lausnum eru til marks um þau miklu verðmæti, reynslu og þekkingu sem eru til staðar meðal starfsfólks. Það eru forréttindi að fá að vinna með jafn öflugum hópi fólks. Á sama tíma er það þyngra en tárum taki að hafa séð á eftir ríflega tvö þúsund frábærum samstarfsmönnum á árinu. Við von- um að sjálfsögðu að flestir þeirra komi til baka sem allra fyrst. Hefjum okkur til flugs Heimsbyggðin glímir enn við mik- inn vanda sem kórónuveiran hefur valdið. Við Íslendingar höfum alla burði til að standa þennan storm af okkur með því að halda vel á spil- unum. Ísland verður áfram eft- irsóttur áfangastaður ferðamanna og hér eru kjöraðstæður til að laða að ferðamenn í kjölfar faraldursins – víðerni, öryggi og fámenni. Við hjá Icelandair Group höldum ótrauð áfram að byggja á okkar trausta grunni og áratuga reynslu og sinna mikilvægu hlutverki okkar af kostgæfni – að tryggja öflugar flug- samgöngur til og frá Íslandi og bjóða góðar tengingar milli Evrópu og Norður-Ameríku. Við hlökkum til að sjá ykkur á flugi sem allra fyrst. Eftir Boga Nils Bogason » Við ætlum svo sann- arlega að standa undir því trausti sem okkur er sýnt og vinnum nú hörðum höndum við að undirbúa það að koma sterk til baka Bogi Niels Bogason Höfundur er forstjóri Icelandair Group. Þakkir í lok árs

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.