Morgunblaðið - 28.12.2020, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 28.12.2020, Qupperneq 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. DESEMBER 2020 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is Tímapantanir í síma 533 1320 Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2 Fitueyðing Eyðir fitu á erfiðum svæðum Laserlyfting Háls- og andlitslyfting NÝTT ÁR – NÝMARKMIÐ Frábær tilboð og fleiri meðferðir í vefverslun okkar! TILBOÐ 20% afslátturí janúar Í svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2015-2040 er gert ráð fyrir því að auka hlut- deild ferða með strætó úr 4% upp í 12%. Í umræðunni er oft talað um að þre- falda eigi hlut strætó á skipulagstímabilinu. Þegar sveitarfélögin á svæðinu sömdu við ríkið árið 2012 um að fresta stór- framkvæmdum í uppbyggingu þjóðvega á höfuðborgarsvæðinu til ársins 2022 var ákveðið að sveit- arfélögin fengju um einn milljarð á ári til að gera átak í þjónustu strætó. Sveitarfélögin settu sér það markmið að auka hlutdeild strætó í ferðum á höfuðborgarsvæðinu úr 4% í 8% á tímabilinu 2012-2022. Það hefur vægast sagt gengið mjög brösuglega. Hlutur strætó virðist vera óbreyttur frá 2012. Ferðavenjukönnun 2019 Í fyrra létu samgönguráð og SSH framkvæma umfangsmestu könnun á ferðavenjum Íslendinga sem gerð hefur verið. Ein af nið- urstöðum könnunarinnar var sú að hlutdeild ferða með strætó á höf- uðborgarsvæðinu væri 5%. Í ferða- venjukönnun 2017 var hlutur strætó 4%. Þetta þóttu mér mikil tíðindi og ástæða til að sannreyna þetta með því að glugga í árs- skýrslur Strætó bs. Samkvæmt ársskýrslum Strætó bs. var heildarfarþegafjöldinn 11,7 milljónir á árinu 2017 og tæpar 12,2 milljónir á árinu 2019. Aukn- ing um hálfa milljón farþega var nú allt og sumt. Eins og öllum er kunnugt hefur bílaumferð aukist mikið á höfuðborgarsvæðinu síð- ustu árin. Ég efast því um að hlut- deild ferða með strætó hafi aukist milli 2017 til 2019. Niðurstöður ferðavenjukannananna 2017 og 2019 voru ekki gefnar upp með aukastaf. Það var því hugsanlegt að hlutdeild ferða með strætó hefði t.d. verið 4,4 % árið 2017, afrúnnað niður í 4%, og 4,6% árið 2019, af- rúnnað upp í 5%. Nærtækasta skýringin er þó e.t.v. tölfræðileg óvissa, einfaldlega vegna þess að farþeg- ar með strætó eru lít- ill hluti af þátttak- endum í þessum könnunum. Fróðlegt væri að sjá hlutdeild farþega með strætó gefna upp með einum aukastaf ásamt töl- fræðilegu öryggisbili. Þannig mætti auðveld- lega sjá hvort munur á hlutdeild ferðamáta milli ára sé tölfræðilega marktæk- ur. Raunveruleg hlutdeild ferða með strætó Í ársskýrslum Strætó bs. er sett samasemmerki milli farþegafjölda og fjölda innstiga. Hingað til hefur fjöldi ferða með strætó verið talinn jafn mikill og fjöldi innstiga. Það er fjarri sanni. 25% innstiga eru farþegar að skipta um vagn til að komast milli a og b. Fjöldi ferða með strætó er því fjöldi innstiga margfaldaður með 0,75. Þegar samgönguyfirvöld segja að hlut- deild ferða með strætó á höf- uðborgarsvæðinu sé 4% af öllum ferðum, þá er raunveruleg hlut- deild ferða með strætó aðeins 4 x 0,75 = 3%. Í umdeildri skýrslu Cowi & Mannvits um félagslega ábata- greiningu fyrir fyrstu fram- kvæmdalotu borgarlínu eru nið- urstöður byggðar m.a. á tveimur umferðarspám í nýju samgöngu- líkani fyrir höfuðborgarsvæðið. Báðar spárnar eru reiknaðar fyrir árið 2024. Önnur spáin er reiknuð fyrir ástand án borgarlínu og með óbreyttu strætókerfi, þannig að gera má ráð fyrir að spá um hlut- deild ferða með strætó sé svipuð eða hærri en árið 2019 (ekki lægri ef við trúum á breyttar ferðavenj- ur!). Þessi spá gerir ráð fyrir 1.204.875 ferðum með fólksbílum og 41.492 ferðum með strætó á sól- arhring. Í samgöngulíkaninu eru ferðir með strætó skilgreindar á réttan hátt, þannig að ég beið spenntur eftir útkomunni. Ferðir íbúa með vélknúnum ökutækjum eru samtals 1.204.875 + 41.492 = 1.246.367 ferðir á sólarhring. Hlut- deild ferða með strætó er (41.492/ 1.246.367) x 100 = 3,3% af ferðum með vélknúnum ökutækjum. Þá á eftir að taka ferðir gang- andi og hjólandi með í reikninginn. Í samgöngulíkaninu er spáð 79.844 ferðum á reiðhjóli á sólarhring. Hins vegar eru ferðir gangandi ekki með í líkaninu. Í svæð- isskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2015-2040 er gert ráð fyrir að hlut- deild gangandi og hjólandi sé 20% af öllum ferðum 2015 og markmiðið er að sú tala hækki í 30% 2040. Ef við gerum ráð fyrir óbreyttri hlut- deild gangandi og hjólandi áður en borgarlínan og breytt strætókerfi eru tekin í gagnið verður hlutdeild ferða með strætó aðeins 3,3 x 0,8 = 2,66% af öllum ferðum. Ef við trúum á aukna hlutdeild gangandi og hjólandi af öllum ferðum og hún verði t.d. 23% árið 2024, þá verður hlutdeild ferða með strætó af öllum ferðum aðeins 3,3 x 0,77 = 2,54%. Ég trúði vart mínum eigin aug- um. Með fullri virðingu fyrir hinu nýja samgöngulíkani kann að vera einhver ónákvæmni í líkaninu sem gerir hlutdeild ferða með strætó minni en hún er í raun og veru. Rétt er að taka fram að þessar um- ferðarspár voru ekki gerðar með endanlegri útgáfu af líkaninu. Við skulum því leyfa strætó að njóta vafans og gera ráð fyrir að hlut- deild ferða með strætó af öllum ferðum á höfuðborgarsvæðinu árið 2019 sé 3%. Þá vaknar spurningin hvort markmið um þreföldun á hlutdeild ferða með strætó á tíma- bilinu 2015-2040 muni leiða til þess að markmiðið verði 9% í stað 12%. 3% ferða eru með strætó Eftir Þórarin Hjaltason » 25% innstiga eru far- þegar að skipta um vagn til að komast milli a og b. Fjöldi ferða með strætó er því fjöldi innstiga margfaldaður með 0,75. Þórarinn Hjaltason Höfundur er umferðarverkfræðingur og fv. bæjarverkfræðingur í Kópavogi. thjaltason@gmail.com Það kom kannski sumum á óvart þegar áhugi erlendra ferða- manna á Íslandi jókst hratt eftir gos í Eyja- fjallajökli. Hingað komu ferðamenn í leit að náttúruperlum og einstakri upplifun, upplifunum sem okkur Íslendingum þykja ekki merkilegar. Þeg- ar ferðamenn eru spurðir hvað stóð upp úr á ferð þeirra um landið eru algengustu svörin hreina loftið og drykkjarvatnið, til- komulitlir hlutir í huga okkar. Glöggt er gestsaugað og hafa sí- mælingar Gallup á upplifun erlendra ferðamanna nýst vel í að meta gæði Íslands sem áfangastaðar. Síð- astliðin þrjú ár hefur Gallup kannað áhrif markaðsherferðar Icelandic Lamb á neysluhegðun erlendra ferðamanna og viðhorf þeirra til ís- lensks lambakjöts. Frá upphafi mælinga hefur lambakjöt verið sú ís- lenska afurð sem flestir ferðamenn segjast hafa smakkað en vísbend- ingar eru um að ferðamenn séu ein- göngu að auka neyslu sína á lamba- kjöti samhliða minni neyslu þeirra á öðru kjöti. Niðurstöðurnar hafa einnig gefið til kynna aukin sókn- arfæri í útflutningi á uppruna- merktu íslensku lambakjöti en 19- 24% ferðamanna frá löndum þar sem lambakjötsneysla er mikil telja sig mjög líkleg til þess að kaupa ís- lenskt lambakjöt á sambærilegu verði og aðrar fyrsta flokks kjötvör- ur í heimalandi sínu. Hversdagsleg sælkeravara Íslendinga Sauðfjárbúskapur hefur fylgt okkur frá landnámi og höfum við þróað með okkur einstakar aðferðir við sauðfjárrækt sem hafa mótast af okkar sérstæðu aðstæðum. Á meðan aðrar þjóðir færðu sig nær verk- smiðjubúskap aðlöguðu íslenskir sauðfjárbændur hefðir sínar að tækninýjungum í landbúnaði. Stórt skref var tekið með tilkomu gæða- stýringar sauðfjárræktar sem nær til landnotkunar, einstaklingsmerk- inga, skýrsluhalds, hirðingar, aðbún- aðar, fóðuröflunar og takmarkaðrar lyfjanotkunar. Með gæðastýring- unni vinna sauðfjárbændur mark- visst að því að bæta framleiðslu sína á hágæða vöru sem á sér enga hliðstæðu. Ís- lenskt lambakjöt er framleitt á fjöl- skyldubúum við ein- stakar aðstæður í ís- lenskri náttúru og er frábrugðið öðru lamba- kjöti að því er varðar bragð, meyrni og holl- ustu. Viðhorf erlendra ferðamanna til lamba- kjöts er því allt annað en viðhorf okkar Ís- lendinga, í hversdags- leika okkar leynist sælkeravara sem meta þarf að þeim verð- leikum sem gestir okk- ar hafa komið auga á. Öflugt markaðsstarf styrkir stöðu bænda Sjálfsmat og endur- skoðun er undirstaða vel heppnaðs markaðs- starfs en símat á við- horfi ferðamanna til fé- lagamerkis og herferða Icelandic Lamb er skýrasti árang- ursmælikvarði átaksverkefnisins. Kannanir hafa sýnt fram á fylgni milli þekkingar ferðamanna á fé- lagamerki Icelandic Lamb og neysluhegðunar þeirra. Könnun sem framkvæmd var í lok síðasta árs sýndi t.a.m að af þeim ferðamönnum sem könnuðust við félagamerki Ice- landic Lamb borðuðu 66% þeirra lambakjöt meðan á dvölinni stóð, miðað við 47% þeirra sem ekki könn- uðust við félagamerkið. Það má því leiða líkum að því að átakið hafi auk- ið neyslu ferðamanna á íslensku lambakjöti um 19%, auk þess voru ferðamenn sem þekktu merkið og sáu skjöld Icelandic Lamb á veit- ingahúsi helmingi líklegri til þess að neyta lambakjöts oftar en einu sinni. Markmið markaðssetningar Ice- landic Lamb gagnvart erlendum við- skiptavinum innanlands og utan er að auka virði íslensks lambakjöts og bæta þannig afkomu bænda. Árang- ur átaksins sýnir að auðkenning ís- lensks lambakjöts með félagamerki sem vísar til uppruna auk markaðs- setningar sem segir sögu íslenska sauðfjárkynsins geti aukið arðsemi í útflutningi og stuðlað að verðmæta- sköpun með aukinni sölu til erlendra ferðamanna. Mikilvægt er að halda áfram að markssetja íslenskt lamba- kjöt til erlendra ferðamanna og horfa til möguleikanna sem kunna að leynast í öðrum íslenskum land- búnaðarvörum. Hefur Íslendingum láðst að meta verð- leika eigin þjóðarauðs? Eftir Gísla S. Brynjólfsson »Með gæða- stýringunni vinna sauðfjár- bændur mark- visst að því að bæta framleiðslu sína á hágæða vöru sem á sér enga hliðstæðu. Höfundur er stjórnarformaður Icelandic Lamb. Gísli S. Brynjólfsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.