Morgunblaðið - 28.12.2020, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 28.12.2020, Qupperneq 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. DESEMBER 2020 - meira fyrir áskrifendur Lestumeira með vikupassa! Fyrir aðeins 1.890 kr. færð þú netaðgang að öllu efni úr blaði dagsins og næstu 6 daga. - Fréttir - Ritstjórnargreinar - Menning - Íþróttir - Daglegt líf - Viðskipti - Fastir þættir - Aðsendar greinar - Aukablöð - Viðtöl - Minningargreinar - Umræðan Vikupassi er auðveldari leið til að lesaMorgunblaðið á netinu. Fáðu þér vikupassa af netútgáfu Morgunblaðsins. Kæri sjávarútvegs- og landbúnaðarráð- herra, Kristján Þór Júlíusson. Dýra- og náttúru- verndarsamtökin Jarð- arvinir hafa rekið tvö sakamál gegn forráða- mönnum Hvals hf. vegna meintra brota þeirra á reglugerðum vegna hvalveiða og verkunar hvals, svo og vegna meintra brota þeirra á ákvæðum veiðileyfa, þar sem sekt forráðamanna Hvals hf. hefur sannast. Er annars vegar um lögreglumál nr. 313- 2018-19923 að ræða, þar sem það sannaðist að Hvalur hf. hafði árum saman (2013, 2014 og 2015) brotið ákvæði 2. mgr. 10. gr. reglugerð- ar nr. 489/2009. Refsirammi fyrir þessi brot: Sektir eða fangelsi allt að tveimur árum skv. 22. gr. reglugerðarinnar. Hér féll lögreglustjórinn á Vest- urlandi af illskýranlegum ástæðum frá ákæru. Hins vegar er um lögreglumál nr. 313-2019-8012 að ræða, þar sem það sannaðist að Hvalur hf. hafði brotið 5. gr. veiðileyfis fyrir árin 2014-2018 um afhendingu veiðidagbóka fyrir þetta tímabil, en þessu máli var lokið með lögreglustjórasekt í júlí 2020. Skv. 7. gr. veiðileyfisins (frá 15.5. 2014) eru refsiákvæði fyrir þessi brot þessi: „Brot á ákvæðum leyf- isbréfs þessa og sérhver misnotkun á því varðar sviptingu leyfisins tíma- bundið eða missi þess eftir ákvörðun ráðuneytisins. Einnig varða brot sektum og öðrum viðurlögum sam- kvæmt lögum nr. 26/1949, um hval- veiðar með síðari breytingum.“ Refsirammi skv. þessum lögum er sektir 2.000-40.000 gullkrónur, upp- taka á veiðitækjum skipsins, byssum, skotlínu, skutlum og skot- færum, svo og öllum afla skipsins, auk þess sem láta má brot varða fangelsi allt að sex mánuðum þegar sakir eru miklar eða um ítrekað brot er að ræða. Telur ráðherra ekki rétt og eðli- legt, með tilliti til sakfellingar for- ráðamanna Hvals hf. í ofangreindum tveimur sakamálum vegna brota á hvalveiðireglugerð og ákvæðum síð- asta hvalveiðileyfisins nú í millitíð- inni, að afturkalla nýtt leyfi til veiða á langreyði fyrir árin 2019-2023 (frá 5.7. 2019)? Væri það ekki góð og eðli- leg stjórnsýsla? Bestu kveðjur. Eftir Ole Anton Bieltvedt » Telur ráðherra ekki rétt og eðlilegt …að afturkalla nýtt leyfi til veiða á langreyði fyrir árin 2019-2023? Ole Anton Bieltved Höfundur er formaður Jarðarvina, félagasamtaka um dýra-, náttúru- og umhverfisvernd. Opið bréf til sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðherra, Kristjáns Þórs Júlíussonar Ert þú af og til að spá í að draga aðeins úr áfengisneyslu? Er hugs- unin ekki alveg eins skörp og áður? Finnst þér áfengið draga úr þér þrótt? Hefurðu áður reynt að gera hlé á áfengisneyslu, en ekki staðið við það eins og þú ætlaðir? Þá ert þú í góð- um félagsskap þúsunda annarra Íslendinga. Það sem flestir flaska á Ekki setja markið of hátt. Ætlarðu að taka hvítan janúar? Vera edrú í fjórar vikur? Veltu markmiðinu vand- lega fyrir þér. Hversu líklegt er það á kvarðanum 1-10 (þar sem einn er afar ólíklegt og tíu afar líklegt) að þér tak- ist að vera algerlega edrú í fjórar vik- ur í röð? Hugsaðu vandlega um þetta. Hvernig hefur fyrri reynsla þín ver- ið? Hefurðu áður ákveðið að drekka ekki dropa í fjórar vikur í röð og stað- ið við það? Ef þú metur málið þannig að þú sért hundrað prósent viss um að það takist, merktu þá við 10 á kvarðanum og láttu slag standa. Jafnvel þó þú sért bara 90% viss um að þér takist það. Þá er sjálfsagt að reyna. Sértu bara 80% viss um að þetta takist þá skaltu velta fyrir þér að setja markið aðeins lægra. Hvað með þrjár vikur? Eða eina viku? Eða drekka ekkert á virkum dögum í eina viku? Hugsaðu vandlega um það markmið sem þú setur þér og ekki reyna við markmið sem þú ert ekki 90% viss um að þér muni takast það. Tímalengdin skiptir ekki höfuðmáli. Það sem máli skiptir er að standa við það sem þú ætlar að gera. Það er betra að lækka markið frekar en að flaska á því. Þeir sem eru stöðugt að setja sér of háleit markmið sem þeir standa ekki við fara smám saman að líta á sig sem misheppnaða einstaklinga. Það er slæm tilfinning sem dregur úr manni kjarkinn. Við lærðum ýmislegt um hóflega markmiðssetningu á áttunda áratugn- um, þegar reykinganámskeiðin hjá Krabbameinsfélaginu stóðu í sem mestum blóma. Þetta voru hóp- námskeið og markmiðið var að drepa í á ákveðnum degi og halda út meðan á námskeiðinu stóð, sem voru 4-5 vikur. Við lærðum fljótt að þau sem náðu ekki því markmiði voru gjörn á að láta sig hverfa. Þegar við hringdum í fólkið var svarið oftar en ekki: „Ég get þetta ekki, ég er oft búinn að reyna, en ég get bara ekki hætt að reykja, alla vega ekki núna.“ Við buð- um þessum einstaklingum að koma í einkaviðtöl og um það bil helmingur þáði það. Af þeim voru margir til í að reyna aftur með lægri markmiðum. Þessir einstaklingar voru ekki síður líklegir til að vera reyklausir ári seinna þegar gerðar voru athuganir á langtímaárangri. Gangi þér vel að lifa heilbrigðu lífi á komandi ári en mundu að setja þér ekki of háleit markmið. Gleðilegt nýtt ár. Hvítir dagar? Eftir Ásgeir R. Helgason Ásgeir R. Helgason » Þeir sem eru stöðugt að setja sér of háleit markmið sem þeir standa ekki við fara smám saman að líta á sig sem misheppnaða einstaklinga. Höfundur er dósent í sálfræði og sérfræðingur hjá Krabbameins- félaginu asgeir@krabb.is Árið með þessari fallegu tölu 2020 er senn á enda. Fyrir mér eru einkunnarorð ársins: Gerum þetta saman. Þríeykið „okk- ar“, Víðir, Þórólfur og Alma, ásamt Rögn- valdi, hefur ótal sinn- um lagt áherslu á hversu mikilvæg sam- staðan er í baráttunni við veiruna. Sem betur fer hafa langflestir tekið þetta alvarlega og farið eftir þessum orðum, sem hef- ur sýnt sig að skila góðum árangri. Þessi þrjú orð, „gerum þetta sam- an“, eru svo mikilvæg, að þau þurfa helst að fylgja okkur alla daga okk- ar, því þau gilda í samfélagi manna í stóru og smáu. Sjúkdómar, heim- ilislíf, vinnustaðir, félög, sam- félagið, já, lífið allt, velgengni okk- ar og hamingja, hangir á þessari dýrmætu samvinnu. Við eigum þeim mikið að þakka, sem hafa staðið í framlínu við að halda utan um og stýra aðgerðum í kórónuveirufaraldrinum. Þríeykið á miklar þakkir skilið fyrir fagleg vinnubrögð, einbeitni, hvatningu, einlægni, þolinmæði og skilning. Fyrir utan allar heilsusamlegar og hollar ráðleggingar og reglur hafa þau sýnt okkur í verki hvernig góð samvinna skapast. Við höfum verið minnt á að það sé eðlilegt að hafa ólíkar skoðanir, en um leið svo mik- ilvægt að finna bestu lausnina. Þessi framlínuþrenning hefur síðan verið í samvinnu við stjórnvöld. Ríkisstjórnin, undir forystu Katr- ínar Jakobsdóttur, hefur tekið ákvarðanir, byggðar á ráðlegg- ingum og vinnu þríeykisins og fleiri sérfræðinga. Samvinna – til að ná sem bestum árangri. Katrín í brúnni á mikið hrós skilið fyrir ein- læga og ákveðna vinnu sína, ekki bara í þessu máli, heldur í fjöl- skrúðugri ríkisstjórn. Mér finnst hún hvað eftir annað minna okkur á, að eins og ríkisstjórnin þarf að stokka spilin og ná saman um það sem skiptir máli til að árangur ná- ist og friður ríki þarf samvinnu, auðmýkt, umburðarlyndi, jákvæðni og skilning. Innra með mér hljómar þetta allt eins og fræðsla fyrir lífið. Allt í kringum okkur eru einstaklingar og vinir, hjón og fjölskyldur, félög og hópar, sem geta aðeins blómstr- að og haldið hinum mikilvæga friði með því að „gera þetta saman“. Hjónaband án samvinnu slitnar. Fjölskylda án samveru og sam- vinnu leysist upp. Félög og sam- starfshópar þurfa á þessari mik- ilvægu samvinnu að halda til að ná markmiðum. Það þýðir ekki að allir þurfi alltaf að vera sammála. Alls ekki. En við þurfum að mætast og ná samspili. Kirkjan er mér of- arlega í huga. Þar, eins og annars staðar, er mikilvægt að friður ríki, þar sem kærleiks- og friðarboðskapurinn er kjarninn. En auð- vitað hafa menn ekki alltaf sömu skoðanir. Þeir sem eru óánægð- astir yfirgefa „félagið“, aðrir skrifa í fjölmiðla um óánægju sína en enn aðrir taka þátt í að vinna að bestu lausnum á erfiðleikunum hverju sinni. Mig langar líka að hrósa og þakka Agnesi biskupi fyrir hógvært og framsækið starf, en hún stendur m.a. fyrir því að prestaköll séu sameinuð, svo samvinna presta verði meiri og auki fjölbreytni í starfi sóknanna. Það er í rauninni skipulag, sem „starfsháttanefnd þjóðkirkjunnar“ lagði til fyrir 40-50 árum! Gerum þetta saman. Látum boð- skap jólanna hafa áhrif á okkur og skapa auðmýkt og djörfung. Þríeykið, forsætis- og heilbrigð- isráðherra hafa á þessu ári 2020 flutt okkur friðar- og fagn- aðarboðskap í nýju samhengi með starfi sínu. Kirkjan boðar okkur frið og fögnuð inn í allar erfiðar að- stæður okkar. Kirkjan kallar okkur til að horfa hvert til annars, veita liðveislu og kærleika. Við þörfn- umst þess. Erfiðleikar og sorgir eru og verða. Og ef við vissum það ekki fyrr er okkur vonandi öllum orðið ljóst á þessu ári hversu óend- anlega dýrmæt snertingin er, handabandið, faðmlagið, knúsið! Jólin flytja okkur boðskap um að Guð gerðist maður til að lifa meðal okkar og kenna okkur að lifa í kær- leika og sátt, í góðri samvinnu. Í friði. Þökkum allt hið góða. Þreyj- um þorrann og horfum fram á við í samvinnu og sátt (þó að við séum ekki sammála öllu sem gert er). Gerum þetta saman! Guð gefi þér gleðilega jólahátíð og hamingjuár. Friður Guðs sé með þér. Gerum þetta saman Eftir Stínu Gísladóttur »Hugleiðingar undir árslok 2020: „Gerum þetta saman“ í farsótt- inni, í fjölskyldunni, á vinnustaðnum, í sam- félaginu, í kirkjunni, í lífinu. Stína Gísladóttir Höfundur er eftirlaunaþegi en hefur starfað sem kennari, æskulýðs- fulltrúi, ræstingakona og prestur. stinagisladottir@gmail.com Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.