Morgunblaðið - 28.12.2020, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 28.12.2020, Qupperneq 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. DESEMBER 2020 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bílar Toyota Landcruiser 1/2018 33” breyttur með snorkel. Loftdæla - krómgrind ofl. Sjálfskiptur. Ek. 76 þ. Km. Ný yfirfarinn og þjónustaður. Lækkað verð nú: 8.390 þús. www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 12–18 virka daga. Húsviðhald Raðauglýsingar Tilkynningar Mat á umhverfisáhrifum Álit Skipulagsstofnunar Áframhaldandi efnistaka úr Þórustaðanámu í Ingólfsfjalli í landi Kjarrs, 2. áfangi, Sveitarfélaginu Ölfusi Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum sam- kvæmt lögum nr. 106/2000. Álitið liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Borgartúni 7b, Reykjavík. Álitið og matsskýrslu Fossvéla ehf. er einnig að finna á vef stofnunarinnar www.skipulag.is Vantar þig fagmann? FINNA.is mbl.is alltaf - allstaðar ✝ Lilja Hjart-ardóttir How- ser fæddist 27. des- ember 1930 á Bræðraborgarstíg 22 í Reykjavík, í húsi afa síns og ömmu, en fyrra hús þeirra hjóna, með sama götunúmer, var nefnt Reyni- melur og tekur ætt- in nafn sitt af því. Lilja lést á líknardeild Landspít- alans í Kópavogi 13. mars 2020. Foreldrar Lilju voru Hjörtur Kristjánsson, f. 1. júní 1905, d. 4. mars 1979, vélstjóri og Sig- ríður G. Hjartardóttur, f. 26. ágúst 1908, d. 3. júlí 1980, vann hjá O. Johnson og Kaaber. Syst- ur Lilju eru: Anna, f. 1. apríl 1933, maður hennar var Hans Júlíusson; Valgerður, f. 17. apríl 1936, maður hennar er Kristján Sveinsson og Margrét, f. 26. desember 1942, maður hennar var Finnur Steinþórsson. dóttur. 2) George Hjörtur, f. 30. júní 1961, hljómlistamaður og leiðsögumaður. Synir hans eru Oddur Ólafur, f. 21. nóvember 1996, kvæntur Sóleyju Hálf- dánsdóttur, móðir Vala Odds- dóttir, og Óskar Jarl, f. 15. maí 2003, móðir Auður Húnfjörð. 3) Delia Kristín, f. 18. ágúst 1965, bankastarfsmaður. Dóttir hennar og Róberts Bjarnasonar er Lilja Guðrún, f. 13. janúar 1985. Sambýlismaður Hafþór Örn Þórisson, börn þeirra eru Róbert Ingi, f. 27. ágúst 2017 og Hafdís Delia, f. 3.apríl 2020. Börn Deliu og Harðar Magn- ússonar eru Vigdís Ósk, f. 18. nóvember 1993, og Tómas Geir, f. 7. september 1995. Fyrir átti George dóttur, Renee Howser Polhemus, f. 21. október 1950, gift Ronald Polhemus. Sonur þeirra var Preston, f. 1. apríl 1971, en hann lést af slysförum aðeins 15 ára gamall. Lilja flutti tveggja ára gömul með for- eldrum sínum til Patreksfjarðar og ólst þar upp. Hún kom aftur til Reykjavíkur á unglingsárum, til náms, og lauk landsprófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík 1948, fyrst kvenna. Lilja nam leiklist í Leiklistarskóla Lárusar Pálssonar 1952-54 og var í Leik- listarskóla Þjóðleikhússins 1954-55. Einnig stundaði hún nám í Íslenska heilunarskól- anum 1988-89. Lilja starfaði sem talsímakona á Patreksfirði á sumrin 1944-49 og var af- greiðslukona í Þvottahúsinu Drífu 1949-55. Lilja var tal- símakona á Langlínumiðstöð- inni í Reykjavík 1955-58 og starfaði í Bæjarútgerð Hafn- arfjarðar 1972-78. Hún var skrifstofumaður hjá bandaríska hernum á Keflavíkurflugvelli 1978-85 og vann hjá Holl- ustuvernd ríkisins frá 1985, þar til hún lét af störfum vegna ald- urs 30. júní 2001. Lilja bjó í Hafnarfirði frá árinu 1960, lengst af í Stekkjarkinn 3. Síð- ustu árin bjó hún við Hraun- vang. Lilja hafði gaman af dul- rænum málefnum, spáði í tarot-spil og iðkaði jóga á árum áður. Hún var alla tíð mikill dýravinur og hélt hunda og ketti. Hún ferðaðist víða og hafði unun af ættfræði og mannkynssögu, sérstaklega ætt- um kóngafólks og keisara í Evr- ópu. Lilja var jarðsungin frá Hafn- arfjarðarkirkju 1. apríl 2020 og voru eingöngu nánustu aðstand- endur viðstaddir útförina. Lilja giftist 3. ágúst 1958 George Earl Howser, starfsmanni hjá birgðadeild banda- ríska hersins á Keflavíkurflugvelli, f. 25. júní 1924, d. 25. júlí 1979. Hann var fæddur í Kings- port í Tennessee í Bandaríkjunum. Foreldrar hans voru John James Howser, f. 15. september 1895, d. 1. mars 1954, og Delia Howser, f. 1894, d. 3. júlí 1924. Börn Lilju og George eru: 1) Laura Ann, f. 1. janúar 1959, kennari á Hvammstanga. Maður hennar er Gunnar Leifsson. Þeirra syn- ir eru Leifur George, f. 30. ágúst 1990, í sambúð með Fjólu Guðnadóttur, Kristófer Smári, f. 1. maí 1996, í sambúð með Ingunni Guðmundsdóttur og Markús Már, f. 10. júní 1998, í sambúð með Lilju Jóhanns- Elsku mamma mín. Þessir mánuðir sem hafa liðið frá því þú kvaddir okkur hafa verið erfiðir. Aðstæður hafa ekki leyft okkur að halda þér minning- arathöfn – og þú sem varst svo mikil útfararkona. Fallega at- höfnin okkar í kirkjunni þar sem tónar Mozart, þíns uppáhalds, fengu að hljóma, hún verður kveðjustundin þín. Þú varst svo undurgóð elsku mamma mín. Studdir mig í gegn- um lífið og varst börnunum mín- um besta amman. Þú elskaðir litla langömmudrenginn þinn – og þú áttir þér þá ósk heitasta að fá að lifa fram í apríl svo þú gætir hitt litlu langömmustelpuna þína. Við höfum öll þurft að læra að fara í gegnum dagana án þín. Ég gríp mig oft á dag í því að þurfa að spyrja þig um eitt og annað. Nú síðast í vikunni sem leið þegar ég sneri öllu á hvolf við að leita að ísuppskriftinni þinni. Við leitina fann ég handskrifaðan miða frá þér, geymdan í einni uppskrift- arbókinni: „Þegar þú ert sorg- mæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn og þú munt sjá að þú grætur vegna þess sem var gleði þín“ (Kahlil Gibran). Þú varst svo sannarlega gleði mín elsku mamma. Ég á hafsjó af minningum um þig: Þegar þú komst inn á fæð- ingardeildina þegar nafna þín kom í heiminn – hafðir hlustað á píanókonsert númer 21 eftir Mozart á leiðinni, ferðin okkar til St.Pétursborgar, leikhús, sinfóní- an, allt minningar sem sannfæra mig um að ég vann í mömmulott- óinu. Fyrir það er ég svo ósköp þakklát. Og það kemur sá tími að sorgin og söknuðurinn dvínar og eftir sitja allar þessar fallegu minningar um góða konu sem vildi öllum vel. Fyrir þig er sér- stakt pláss hjá almættinu. Takk fyrir allt elsku mamma mín. Þín Delia Kristín Howser (Dinna). Lilja Hjartardóttir Howser Í dag kveðjum við elsku Höddu ömmu. Það er skrýtið að kveðja einhvern sem maður þekkir lífið ekki án. Þótt síðasti áratugur hafi verið ömmu erfiður og hún oft ólík sjálfri sér standa góðu minningarnar upp úr eftir andlátið. Líf ömmu var þyrnum stráð. Hún kynnist sorginni á grimmi- legan hátt þegar hún missti eins árs gamlan son sinn, Stefán, úr hvítblæði. Síðan fór Svanur afi á sviplegan hátt aðeins 45 ára gam- all. Eftir að við systkinin komumst á fullorðinsár skiljum við hreint ekki hvernig hægt er að halda áfram eftir slík áföll. Alltaf stóð hún keik og áfram gakk. Minningar úr Fornhaga, Skaftahlíð og síðar Blindrafélag- inu ylja okkur systkinunum. Tón- list, vindlareykur, vísur, þulur, kaffibrúsakallarnir og spjall er það sem kemur fyrst upp í hug- ann. Einnig sagði hún okkur ferðasögur en amma elskaði að ferðast og fór oft með afa í sigl- ingar. Síðar ferðaðist hún bæði er- lendis og innanlands með Ferða- félagi Íslands og Blindrafélaginu. Amma var alltaf svo glaðleg og Hjördís Guðbjörg Stefánsdóttir ✝ Hjördís Guð-björg Stef- ánsdóttir fæddist 2. nóvember 1928. Hún lést 5. desem- ber 2020. Útför hennar fór fram 22. desember 2020. glæsileg, vel tilhöfð, varalituð, nagla- lökkuð og nóg af ilmvatni. Hún fór reglulega í lagningu og lagði áherslu á að bera á sig gott and- litskrem. Einnig var hún með sterkan líkama, borðaði mik- inn fisk, ost og spír- urnar hafa eflaust skilað sínu. Væntumþykjan leyndi sér ekki þegar hún hitti okkur krakkana. Við fengum svo ótal oft að gista, stundum yfir heilu helgarnar. Alltaf eitthvert líf og fjör; fóta- hristingskeppnin og bak-klórið áður en sofnað var. Þótt amma hafi ekki legið á skoðunum sínum var allt svo afslappað og notalegt. Elsku amma okkar, loksins fékkstu hvíldina. Það er huggun í sárum harmi að sjá afa fyrir okk- ur koma að sækja þig á nýbón- uðum Cadillac, sennilega hefur hann beðið síðan 1975. Nú færðu sjónina aftur og hittir fólkið þitt. Við ímyndum okkur Stefán litla, systkini þín, foreldra og vini taka þér fagnandi. Þú áttir marga vini og fólki þótti virkilega vænt um þig, enda var fallegt að upplifa kærleikann sem nánasta fólkið þitt um- kringdi þig með síðustu dagana fyrir andlátið. Við eigum eftir að sakna þín, takk fyrir allt elsku hjartans amma okkar. Guð gefi þér góða nótt. Svanur, Heiður, Tinna og Blædís Baldurs- og Nönnubörn. Nú hef ég kvatt mágkonu mína, Steinunni Bjarna- dóttur, eftir lang- varandi veikindi og mun hennar verða sárt saknað. Ég var svo lánsöm að kynnast henni og hennar fjölskyldu og hef átt ómetanlegar stundir með þeim og þeirra vinum. Steinunni er best lýst sem ynd- islegri, bjartri og hlýrri konu. Hún var stórglæsileg í klæða- burði og framkomu, vildi öllum vel, gerði aldrei mannamun, alltaf tilbúin að hlúa að sínu fólki og þeim sem leituðu til hennar. Hrós frá Steinunni var alltaf vel þegið enda með eindæmum einlæg og var hún óspör á þau. Barnabörnin fengu vel að njóta þeirra orða og vel að þeim komin. Börnin mín kölluðu Stein- unni ömmu Steinu þó svo að hún hafi verið föðursystir þeirra, þannig var Steinunn, hún laðaði alla að sér með hlýrri framkomu. Steina átti góðar starfsstundir síðustu starfsárin sín á Hrafn- istu í Hafnarfirði, þar hitti hún eldri borgara sem voru henni mjög kærir. Umhyggjan og ástin sem hún sýndi móður sinni á meðan hún lifði var einstök og var eig- inmaður hennar, Gunnlaugur, alltaf samstiga henni með sín góðu verk. Gestrisni Steinu og Gulla var alltaf með eindæmum, það að koma í Hreiðrið á sumardegi og njóta veitinga hjá þeim eru Steinunn Bjarnadóttir ✝ SteinunnBjarnadóttir fæddist 27. ágúst 1944. Hún lést 21. nóvember 2020. Útförin fór fram 4. desember 2020. ógleymanlegar stundir. Steina hafði unun af því að bjóða í stór- veislu og þá var hún ætíð með þema í huga. Í veislunum var allt lagt undir til að hafa þær sem glæsilegastar, veislugestir mættu í búningum frá ýmsum löndum, t.d. kúrekaföt- um, sari-kjólum, breskum prinsessukjólum og Japans- klæðum. Að auki var alltaf leynigestur frá þessum þjóðum sem kynnti fyrir okkur heima- land sitt og matur eftir þeirri menningu, jafnvel vín. Börn þeirra hjóna, tengdabörn og systur Steinu voru öll boðin og búin að leggja hönd á plóg til að aðstoða þau hjónin við að gera veislurnar sem glæsileg- astar. Utanlandsferðir með þeim hjónum geymi ég í huga mínum og hjarta, þar á ég ljúfar, ómet- anlegar minningar sem munu fylgja mér alla tíð. Steina var mikill myndasmiður og tók myndir af öllum tilefnum og var oft tekið þannig til orða að „Steina er með myndavél - hún reddar þessu“. Steina og Gulli voru vinmörg og ég veit að Steinu verður sárt saknað af öllum. Steinunn var dyggur Lionsfélagi og þar átti ég með henni margar góðar stundir. Oddfellow átti hug hennar líka og átti hún þar margar systur og bræður sem fengu að njóta návistar hennar. Blessuð sé minning Stein- unnar. Elsku Gulli, börn, barnabörn og fjölskylda, Guð verndi ykkur og styrki í þessari miklu sorg. Sonja Eyfjörð Skjaldardóttir. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru ein- göngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.