Morgunblaðið - 28.12.2020, Page 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. DESEMBER 2020
GLEÐILEGT NÝTT ÁR
Jakob Veigar
Fjölbreytt úrval glæsilegra
listaverka eftir listamenn Gallerís Foldar
Opið á milli jóla og nýárs frá
10 - 18 og gamlársdag frá 10-12
Gallerí Fold sendir sínar bestu óskir um
30 ára Anton Birkir
ólst upp í Árbænum í
Reykjavík en býr núna í
Garðabæ. Anton Birkir
er framkvæmdastjóri
viðskiptaþróunar hjá
hugbúnaðarfyrirtækinu
Klöppum-Grænum
lausnum. Helstu áhugamál eru knatt-
spyrna, kvikmyndir og sjónvarpsþættir
og nýjasta áhugamálið er skák.
Maki: Eygló Sif Sigfúsdóttir, f. 1989, lög-
fræðingur hjá Deloitte.
Barn: Andreas Atli, f. 2019.
Foreldrar: María Kristín Jóhannsdóttir, f.
1953, og Sigfús Smári Viggósson, f.
1948. Þau búa í Grafarholtinu en eru að
byggja í Urriðaholtinu fjölskylduhús.
Anton Birkir
Sigfússon
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Hvers þarfnast þú nú? Kannski
fullnægir þú þörfum þínum með því að
elda, leika þér eða skrifa. Prófaðu bara.
20. apríl - 20. maí
Naut Að leggja ofuráherslu á vinnuna,
færir þér engin vinsældaverðlaun. Sinntu
þínum eigin málum og láttu aðra um sitt.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er engin ástæða til þess að
velta sér um of upp úr öllum sköpuðum
hlutum. Vertu þolinmóð/ur því allt gengur
upp um síðir.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það kemst enginn hjá því að mæta
örlögum sínum þegar þau berja að dyrum.
Kannski ættir þú að skipta um stefnu í líf-
inu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú ættir að fara eftir eðlisávísun
þinni í máli sem hátt rís á vinnustað þín-
um. Skapaðu rólegt og afslappað and-
rúmsloft heima við og hvíldu þig.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Óvænt tækifæri berst þér upp í
hendurnar og þér er fyrir bestu að nýta
þér það til hins ýtrasta. Allt sem gerist fer
í reynslubankann, líka mistökin.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú hefur vald yfir einhverju sem þú
telur þig ekki hafa neina stjórn á. Allir vilja
vera vinir þínir vegna þess að þú sérð það
jákvæða í öllu og öllum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er gott að þekkja sín eig-
in takmörk og þá ekki síður að virða þau
þegar á reynir. Eitt góðverk á dag getur
breytt miklu.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þótt þú hafir margt á þinni
könnu er engin ástæða til þess að láta að-
varanir annarra sem vind um eyru þjóta.
Allir samningar byggjast á málamiðlunum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þér kann að þykja framkoma
einhverra vinnufélaga skrýtin í dag. Best
er að hugsa vel og vandlega út í næstu
skref ef þú ert í íbúðaleit.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það á sér stað eldgos af hug-
myndum í kollinum og ekkert fær þig
stöðvað. Enginn þekkir þig betur en þú, þú
veist hvað þú vilt.
19. feb. - 20. mars
FiskarMismunandi áhrif, menning, um-
hverfi og fólk ýtir undir sköpunargleði
þína. Breyttu um stíl og hlustaðu á þinn
innri mann.
á þessu tímabili, en einna vænst
þykir henni um Ínúk, sem fjallaði
um lífið í næsta nágrannalandi okk-
ar, Grænlandi.
„Brynju Benediktsdóttur leik-
stjóra var falið að setja saman verk
ólfur hafði samið leikgerð upp úr
skáldsögu Gunnars Gunnarssonar.
Þegar Sveinn Einarsson var ráðinn
Þjóðleikhússtjóri var Helga fastráð-
in við leikhúsið og starfaði þar til
ársins 1992. Hún lék í fjölda sýninga
H
elga Elínborg Jóns-
dóttir fæddist 28.
desember 1945 á Ak-
ureyri og lauk stúd-
entsprófi frá MA
1965. Þá fer hún suður í Háskólann
og byrjaði í heimspekilegum for-
spjallsvísindum en endaði í Leiklist-
arskóla LR. „Ég ætlaði að fara í sál-
fræði, en það var kannski ekkert
umflúið að fara í leiklistina. Pabbi
var í Leikfélagi Akureyrar, bæði
sem leikari og formaður og ég ólst
upp í leikhúsinu. Það voru seldir
miðar heima og leikstjórar sem
komu að sunnan gistu gjarnan
heima og mamma fóðraði þessa
snillinga alla.“
Í náminu kynntist Helga eigin-
manni sínum, Örnólfi Árnasyni, sem
var þá ungur blaðamaður á Morg-
unblaðinu og skrifaði leiklistar-
gagnrýni auk þess að skrifa leikverk
fyrir leikhús og sjónvarp. Á síðasta
árinu í skólanum voru Helga og
Örnólfur komin með elstu dóttur
sína, Margréti. Helga útskrifaðist
frá Leiklistarskóla LR árið 1968 og
lék með Leikfélagi Reykjavíkur á
árunum 1968-1970.
Sumarið 1970 tók Örnólfur að sér
fararstjórn fyrir Ingólf Guðbrands-
son á Costa del Sol, í árdaga sólar-
landaferða Íslendinga. „Ég var
þarna með tvö eldri börnin öll sum-
ur á Spáni og síðan ákváðum við að
dvelja einn vetur í Barcelona. Ég
fór í framhaldsnám þarna í Instituto
del Teatro þennan vetur og þar
kynntumst við stofnendum leik-
flokksins Els Comediants, sem Örn-
ólfur bauð síðar á Listahátíð í
Reykjavík 1980. Þetta var mjög
góður tími en líka mjög sérstakur
vegna andrúmsloftsins sem þar ríkti
undir ógnarstjórn Francos. Allt rit-
skoðað og menn þurftu að passa
hvað þeir sögðu á opinberum vett-
vangi. Það var illa séð að fólk talaði
móðurmál sitt katalónsku í Barce-
lona, sem er höfuðborg Katalóníu!“
Helga segir að Spánn skipi alltaf
sérstakan sess hjá þeim hjónunum
og þau hafa mikið farið þangað allar
götur síðan.
Árið 1970 fékk Helga hlutverk í
Svartfugli hjá Þjóðleikhúsinu. Örn-
til sýningar í skólum landsins. Hún
valdi að fjalla um Grænland og fékk
Harald Ólafsson mannfræðing í liðs
við sig og leikhópinn, sem í voru,
auk Brynju, ég, Kristbjörg Kjeld,
Þórhallur Sigurðsson og Ketill Lar-
sen. Við fórum til Grænlands, ferð-
uðumst um, heimsóttum afskekkt
þorp, töfralækna og elliheimili þar
sem við lærðum m.a. gamla dansa
og söngva. Verkið fjallaði um frum-
byggja Grænlands sem lifðu í nán-
um tengslum við náttúruöflin og síð-
an ágang vestrænnar menningar
sem hefur haft margt neikvætt í för
með sér.
Ínúk var frumsýnt árið 1974.
Verkefnið tók óvænta stefnu þegar
Þjóðleikhúsinu var boðið með sýn-
inguna á Leiklistarhátíðina í Nancy
í Frakklandi og sló vægast sagt í
gegn. Tilboðum um að sýna Ínúk
víðs vegar um heim rigndi yfir okk-
ur. Engan hafði órað fyrir velgengni
sýningarinnar, en hún var sýnd 231
sinnum næstu fjögur árin í rúmlega
tuttugu löndum. Sýningin var ein-
föld og höfðaði sterkt til mismun-
andi hópa því fólk gat tengt svo vel
við þetta stef, sem fólk um víða ver-
öld þótti eiga við um sinn eigin veru-
leika ekki síður en á Grænlandi. Við
hefðum geta haldið áfram með Ínúk
talsvert lengur, því ekki vantaði
eftirspurnina.“
Helga hefur leikið í fjölmörgum
leikritum og bæði leikstýrt og verið
aðstoðarleikstjóri í gegnum tíðina.
Eftir að dvöl hennar hjá Þjóðleik-
húsinu lauk hefur hún unnið sjálf-
stætt, og stöðugt verið að bæta við
sig nýrri reynslu. Hún fór aftur í
Háskólann, fékk kennararéttindi í
Kripalu jóga og lauk prófi í hagnýtri
fjölmiðlun frá HÍ. „Ástríðan er samt
alltaf mest í leikhúsinu,“ og hún hef-
ur komið að fjölda sýninga á löngum
ferli, þar á meðal í leikriti Stein-
unnar B. Jóhannesdóttur „Heimur
Guðríðar sem fjallar um Tyrkjarán-
ið og líf Guðríðar Símonardóttur og
Hallgríms Péturssonar sem sýnt
var í flestum kirkjum landsins,
Kaupmannahöfn og London. Þá hef-
ur Helga leikið í talsvert kvikmynd-
um og sjónvarpi.
Síðustu ár hefur Helga tekið þátt
Helga Elínborg Jónsdóttir leikkona og leikstjóri - 75 ára
Ínúk Hér eru Brynja Benediktsdóttir og Helga í Ínúk sem var frumsýnt
1974. Leikverkið varð feykilega vinsælt og sýnt 231 sinnum á Íslandi og var
boðið á leiklistarhátíðir og sýnt í Evrópu og Suður-Ameríku 109 sinnum.
Leiklistin í blóð borin
Þjóðleikhúsið Hér er Helga með Guðmundi Magnússyni í hlutverkum
Portsíu og Bassaníó í Kaupmanninum í Feneyjum sem sýnt var árið 1974.
30 ára Berglind ólst
upp í Breiðholtinu og
flutti í Fossvoginn níu
ára. Á sumrin er
Fossvogurinn svona
„míní Tenerife“ segir
hún enda býr hún
þar enn. Berglind er
hjúkrunarfræðingur á Landspítalanum
og vinnur þar á skurðdeild. Aðaláhuga-
mál hennar eru tónlist og ljósmyndun.
Hún spilar á þverflautu og gítar og
hefur mjög gaman af því að taka
myndir, bæði af fólki og landslagi.
Foreldrar: Laufey Eiríka Gunnarsdóttir,
f. 1960, sjúkraliði en vinnur núna á
leikskóla og Óðinn Einisson, f. 1961,
vann í blómaheildsölu. Þau búa í
Reykjavík.
Berglind
Óðinsdóttir
Til hamingju með daginn
Fimmtíu ára brúð-
kaupsafmæli áttu
hjónin Gyða Ingunn
Kristófersdóttir og
Grétar Páll Ólafsson á
annan í jólum. Þau
voru gefin saman 26.
desember 1970 í
Hraunakirkju af séra
Sveinbirni Svein-
björnssyni. Þau eiga
fjögur börn og
tengdabörn, ellefu
barnabörn og tvö
barnabarnabörn.
Gullbrúðkaup