Morgunblaðið - 28.12.2020, Qupperneq 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. DESEMBER 2020
ENGLAND
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Gylfi Þór Sigurðsson reyndist
hetja Everton þegar liðið heimsótti
Sheffield United á Bramall Lane í
Sheffield í ensku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu á laugardaginn.
Íslenski miðjumaðurinn skoraði
sigurmark Everton á 80. mínútu en
Gylfi var í byrjunarliði enska liðs-
ins og lék allan leikinn á miðsvæð-
inu.
Þetta var annað mark Gylfa í
ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu
en hann hefur verið frábær fyrir
Everton í undanförnum leikjum og
átt hvern stórleikinn á fætur öðr-
um.
„Gylfi var ekki nægilega bein-
skeyttur né skapandi í leiknum og
Carlo Ancelotti vildi eflaust sjá
miklu meira frá tíunni sinni á Bra-
mall Lane,“ sagði meðal annars í
umsögn Liverpool Echo, staðar-
blaðsins í Liverpool, um frammi-
stöðu Gylfa í leiknum.
„Miðjumaðurinn steig hins vegar
upp á réttu augnabliki og réði úr-
slitum með sigurmarki sínu,“ segir
enn fremur í umfjöllun Liverpool
Echo en miðillinn gaf Gylfa átta í
einkunn fyrir frammistöðuna,
næsthæst allra leikmanna Ever-
ton.
Á síðustu leiktíð kom landsliðs-
maðurinn að sex mörkum í 38
leikjum í öllum keppnum en á
þessari leiktíð hefur hann komið að
sjö mörkum í átján leikjum.
Þá var þetta 63. mark Gylfa í
ensku úrvalsdeildinni og er Shef-
field United 26. félagið sem hann
skorar hjá í efstu deild Englands.
Gylfi á því einungis eftir að
skora hjá þremur af þeim tuttugu
liðum sem leika í úrvalsdeildinni á
tímabilinu, en það eru Brighton,
Leeds og Wolves.
Alls hefur Gylfi skorað 21 mark
fyrir Everton í ensku úrvalsdeild-
inni, 34 mörk fyrir Swansea og 8
fyrir Tottenham.
Everton er á miklu skriði í úr-
valsdeildinni þessa dagana en liðið
hefur unnið síðustu fjóra leiki sína
í röð og hefur Gylfi byrjað þá alla.
Þá er liðið taplaust í síðustu fimm
deildarleikjum sínum.
Svekkjandi jafntefli á Anfield
Englandsmeistarar Liverpool
misstigu sig á heimavelli þegar
WBA kom í heimsókn á Anfield í
gær en með sigri hefði Liverpool
getað náð 5 stiga forskoti í efsta
sæti deildarinnar.
Sadio Mané kom Liverpool yfir
strax á 12. mínútu en Semi Ajayi
jafnaði metin fyrir WBA á 82. mín-
útu og lokatölur því 1:1 á Anfield.
Þetta er í fyrsta sinn á keppn-
istímabilinu sem Liverpool tapar
stigum á heimavelli en fram að leik
gærdagsins höfðu Englandsmeist-
arnir leikið átta leiki á Anfield og
unnið þá alla.
„Þetta var kaflaskiptur leikur og
við byrjuðum hann af krafti,“ sagði
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri
Liverpool, í samtali við BBC í
leikslok.
„Það er ekki auðvelt að spila
gegn liði eins og WBA sem verst
svona aftarlega með alla menn fyr-
ir aftan bolta. Venjulega finnum
við lausnir á svona varnarmúr en
ekki í þetta skiptið.
Við fengum færi sem við nýttum
ekki og hleyptum þeim þannig inn
í leikinn. Það er enginn heimsendir
að hafa tapað stigum þótt við höf-
um ætlað okkur sigur.
Við áttum að vinna en heilt yfir
fannst mér WBA líka eiga stigið
skilið,“ bætti þýski stjórinn við.
Joel Matip, miðvörður Liverpool,
fór meiddur af velli á 60. mínútu en
táningurinn Rhys Williams leysti
hann af hólmi í vörn Liverpool.
Kamerúnski varnarmaðurinn
hélt um nárann þegar hann haltr-
aði af velli en hann gekk til liðs við
Liverpool frá Schalke á frjálsri
sölu sumarið 2016.
Tímabilið 2016-17 missti Matip
af tíu leikjum vegna meiðsla og
tímabilið 2017-18 missti hann af 23
leikjum vegna meiðsla.
Tímabilið 2018-19 hélt hann
nokkuð heill og missti einungis af
sjö leikjum en árið eftir, 2019-20
þegar Liverpool varð meistari,
missti hann af 20 leikjum vegna
meiðsla.
Þá hefur hann nú þegar misst af
tíu leikjum vegna meiðsla á þessari
leiktíð og eru margir stuðnings-
menn Liverpool að missa þolin-
mæðina gagnvart miðverðinum
sem stendur sig iðulega vel þegar
hann spilar.
Gylfi hetja Everton í Sheffield
Meistarar Liverpool misstigu sig
á heimavelli í fyrsta sinn á tímabilinu
AFP
Mark Gylfi Þór Sigurðsson horfir á eftir knettinum í netið á Bramall Lane.
Fjöldi æsispennandi leikja fór fram í
fyrrinótt og í gær í NBA-deildinni í
körfuknattleik.
Alls enduðu fimm viðureignir
með sigrum þar sem fimm eða færri
stig skildu liðin að. Þar ber hæst að
nefna viðureign Portland og Hou-
ston, sem endaði með 128:126 sigri
Portland eftir framlengdan leik.
Í liði Portland fór CJ McCollum á
kostum og skoraði 44 stig, en James
Harden gerði slíkt hið sama fyrir
Houston, auk þess sem Harden gaf
17 stoðsendingar. Þá skoraði Dami-
an Lillard 32 stig fyrir Portland.
Mikil spenna í
NBA-deildinni
AFP
Öflugur CJ McCollum fór á kostum
með Portland og skoraði 44 stig.
Henry Winter, ritstjóri knatt-
spyrnudeildar Times Sport, telur
að Rúnar Alex Rúnarsson gæti ver-
ið seldur frá enska úrvalsdeildar-
félaginu Arsenal þegar félaga-
skiptaglugginn verður opnaður í
janúar. Rúnar hefur byrjað fimm
leiki fyrir Arsenal á tímabilinu, síð-
ast gegn Manchester City í undan-
úrslitum deildabikarsins, þar sem
hann gerði sig sekan um skelfileg
mistök. Winter telur að Rúnar Alex
sé ekki nægilega góður fyrir Arsen-
al, né til að berjast við Bernd Leno
um markvarðastöðuna.
Rúnar Alex
seldur í janúar?
Morgunblaðið/Eggert
7 Rúnar Alex á að baki sjö lands-
leiki fyrir íslenska karlalandsliðið.
Spánn
Zaragoza – Baskonia .......................... 89:92
Tryggvi Snær Hlinason skoraði tvö stig,
tók sex fráköst og gaf eina stoðsendingu
fyrir Zaragoza.
Valencia – Gipuzkoa ......................... 101:75
Martin Hermannsson var stigahæstur
með 17 stig, tók eitt frákast og gaf fimm
stoðsendingar fyrir Valencia.
Tenerife – Andorra............................. 93:81
Haukur Helgi Pálsson skoraði 15 stig,
tók fimm fráköst og gaf tvær stoðsendingar
fyrir Andorra.
Þýskaland
Fraport – Braunschweig.................. 103:98
Jón Axel Guðmundsson skoraði 13 stig,
tók þrjú fráköst og gaf fjórar stoðsending-
ar fyrir Fraport.
NBA-deildin
Memphis – Atlanta ........................... 112:122
Charlotte – Oklahoma City.............. 107:109
Detroit – Cleveland .......................... 119:128
Washington – Orlando ..................... 120:130
New York – Philadelphia................... 89:109
Chicago – Indiana............................. 106:125
San Antonio – Toronto ..................... 119:114
Utah – Minnesota ............................. 111:116
Portland – Houston .......................... 128:126
Sacramento – Phoenix ..................... 106:103
LA Clippers – Dallas.......................... 73:124
Þýskaland
RN Löwen – Coburg ........................... 39:26
Alexander Petersson skoraði fjögur
mörk fyrir Löwen og Ýmir Örn Gíslason
tvö.
Magdeburg – Hannover-Burgdorf.... 33:25
Ómar Ingi Magnússon skoraði sex mörk
fyrir Magdeburg og Gísli Þorgeir Krist-
jánsson tvö.
Lemgo – Füchse Berlín....................... 23:29
Bjarki Már Elísson skoraði fimm mörk
fyrir Lemgo.
Stuttgart – Bergischer ....................... 26:30
Viggó Kristjánsson skoraði fjögur mörk
fyrir Stuttgart og Elvar Ásgeirsson tvö.
Arnór Þór Gunnarsson skoraði þrjú
mörk fyrir Bergischer og Ragnar Jóhanns-
son komst ekki á blað.
Staða efstu liða:
Flensburg 25, Rhein-Neckar Löwen 23,
Kiel 22, Füchse Berlín 21, Magdeburg 19,
Leipzig 17, Wetzlar 17 Bergischer 16,
Göppingen 15, Stuttgart 15, Lemgo 15.
B-deild:
Dessauer – Bietigheim ....................... 39:26
Aron Rafn Eðvarðsson varði eitt skot í
marki Bietigheim. Hannes Jón Jónsson
þjálfar liðið.
Gummersbach – N-Lübbecke ............ 27:24
Elliði Snær Viðarsson skoraði tvö mörk
fyrir Gummersbach. Guðjón Valur Sigurðs-
son þjálfar liðið.
Staða efstu liða:
Hamburg 24, Gummersbach 22, N-Lüb-
becke 18, Dormagen 16, Elbflorenz 15,
Dessauer 15, Lübeck-Schwartau 14, Eise-
nach 12, Rimpar 11, Grosswallstadt 11.
Svíþjóð
Sävehof – Kristianstad ....................... 27:25
Teitur Örn Einarsson skoraði fimm
mörk fyrir Kristianstad en Ólafur Andrés
Guðmundsson komst ekki á blað.
Varberg – Guif..................................... 27:21
Daníel Freyr Ágústsson varði fjögur
skot í marki Guif.
Alingsås – Lugi .................................... 23:24
Aron Dagur Pálsson skoraði þrjú mörk
fyrir Alingsås.
Skövde – Aranäs.................................. 24:17
Bjarni Ófeigur Valdimarsson var ekki í
leikmannahóp Skövde.
Staða efstu liða:
Malmö 27, Ystad IF 27, Sävehof 24, Skövde
23, Lugi 23, Alingsås 23, Kristianstad 20,
IFK Ystad 17, Hallby 16.
Albert Guðmundsson sat allan tím-
ann á varamannabekk AZ Alkma-
ar þegar liðið gerði 2:2-jafntefli
gegn Utrecht á útivelli í hollensku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu í
gær. Albert hefur ekkert leikið
með liðinu síðan 10. desember í
1:2-tapi á útivelli gegn Rijeka í
Evrópudeildinni. Pascal Jansen
tók við stjórnartaumunum hjá AZ
Alkmaar 5. desember þegar Arne
Slot var rekinn en hollenskir fjöl-
miðlar greindu frá því viku fyrir
jól að Jansen hefði sett Albert í
agabann fyrir neikvætt hugarfar.
Íslenski landsliðsmaðurinn fékk að
snúa aftur til æfinga 21. desember
en hann hefur þrátt fyrir það ekk-
ert komið við sögu í síðustu tveim-
ur leikjum liðsins.
Í frystikistunni
í Hollandi
„Ég frétti fyrst af áhuga Glasgow
City í haust en Þór /KA var ekki í
góðum málum á þeim tíma og það
kom þess vegna ekki til greina að
yfirgefa liðið þegar það var í harðri
fallbaráttu,“ sagði knattspyrnukon-
an Arna Sif Ásgrímsdóttir í samtali
við Morgunblaðið í gær.
Arna Sif, sem er 28 ára gömul og
samningsbundin Þór/KA á Akur-
eyri, er á leið á láni til Skotlands-
meistara Glasgow City og mun
leika með liðinu út keppn-
istímabilið, en liðið hefur orðið
Skotlandsmeistari undanfarin
þrettán tímabil.
„Ég reiknaði með því að þetta
væri bara búið en heyrði svo aftur
frá þeim fyrir skömmu og þá vildu
þeir ganga frá þessu þegar janúar-
glugginn verður opnaður. Þar sem
ég er samningsbundin Þór/KA var
ákveðið að fara þá leið að ég myndi
ganga til liðs við skoska félagið á
láni þangað til tímabilið hér heima
fer af stað.
Ég fer út á morgun [í dag] og ég á
flug aftur heim til Íslands 10. maí.
Síðasti leikur í deildinni hjá þeim er
2. maí og eins og staðan er núna er
ég á leiðinni heim eftir hann. Ef allt
er eðlilegt þá er þetta kannski einn
leikur sem ég mun missa af með
Þór/KA en ef það verður enginn
leikur milli 2. maí og 10. maí þá
reyni ég líklegast að drífa mig heim
eitthvað fyrr,“ sagði Arna Sif sem á
að baki 212 leiki í efstu deild með
Val og Þór/KA.
Þetta er í þriðja sinn sem Arna
Sif heldur út í atvinnumennsku en
árið 2017 lék hún með Verona á
Ítalíu þar sem ekki var staðið við
gefin loforð og líkti Arna dvölinni á
Ítalíu við martröð í samtali við
Morgunblaðið í febrúar 2018.
Gott að breyta til
„Ítalíudvölin sat alveg í manni og
ég fékk alveg í magann af tilhugs-
uninni um að ég væri að fara aftur
út að spila þar sem maður var eftir
sig eftir dvölina hjá Verona. Glas-
gow City virðist hins vegar vera
með allt upp á tíu og þau hafa verið
mjög þægileg í öllum samskiptum,
bæði stjórnarmenn og þjálfari liðs-
ins.
Mér finnst það lofa mjög góðu að
vera búin að sjá og heyra í fólkinu
sem stendur á bakvið félagið. Ég
veit upp á hár hvert hlutverk mitt
með liðinu verður og ég hef miklu
betri tilfinningu fyrir þessu núna en
þegar þetta kom fyrst upp í haust.“
Arna, sem á að baki 12 A-lands-
leiki, lék einnig með Gautaborg í
sænsku úrvalsdeildinni árið 2015,
en hún hefur verið fyrirliði Þórs/
KA undanfarin tvö tímabil.
„Ég var ekki búin að útiloka það
að fara aftur út í atvinnumennsku
en það var ekki neitt markmið hjá
mér sérstaklega. Ég hef fyrst og
fremst hugsað um að standa mig vel
hérna heima. Það hefur eitthvað
komið upp af og til í gegnum tíðina
en ekkert sem mér fannst nægilega
spennandi til að stökkva á.
Á sama tíma var þetta sumar
hérna heima bæði erfitt og skrítið
og ég held satt best að segja að
þetta sé mjög fínn tímapunktur til
þess að breyta um umhverfi, vaxa
aðeins þar, og koma svo heim í fullu
fjöri fyrir Pepsi Max-deildina,“
bætti Arna Sif við í samtali við
Morgunblaðið. bjarnih@mbl.is
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Fyrirliði Arna Sif Ásgrímsdóttir
Félag sem virðist vera með allt upp á tíu