Morgunblaðið - 29.12.2020, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 29.12.2020, Blaðsíða 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 2020 Áður en núverandi fyrirkomulag var tekið upp við stjórn á sjáv- arauðlindum Íslands voru veiðar óhag- kvæmar, óarðbærar, of- veiði ríkjandi og margir stofnanna voru við það að hrynja. Því miður voru slys og mann- skaðar algengir. Af- skipti ríkisins voru tíð og umdeildar ráðstafanir algengar til að forða fyrirtækjum frá gjaldþroti. Í dag er myndin allt önnur. Sjáv- arútvegsfyrirtæki eru arðbær og greiða meiri skatta en önnur fyrir- tæki í formi auðlindagjalda. Opinber afskipti eru nú aðeins í formi al- mennra reglna og engir styrkir eru veittir til veiða. Sjávarútvegur nú- tímans er hátækniiðnaður og hefur gengið vel að flytja út tækni sína. Sjávarútvegur Íslands hefur átt stór- an þátt í að umbreyta hagkerfinu sem hefur gert Ísland að nútímalegu, samkeppnishæfu og útflutnings- drifnu velferðarsamfélagi. Ísland er leiðandi í heiminum í sjávarútveg- stækni, menntun, þjálfun og rann- sóknum, sjálfbærum fiskveiðum, búnaði, siglingatækni og fiskgrein- ingartækjum, auk þess að viðhalda háþróuðum sjávarútvegi og flytja út heimsklassaframleiðslu. Enn fremur hefur sjávarútvegurinn skapað fjölda sprota í snyrtivörum, tísku, heilsu og næringu, hugbúnaðargerð og lyfjum svo eitthvað sé nefnt. Sjálfbærar og ábyrgar veiðar á villtum fiskistofnum á Íslandsmiðum og góð meðferð á lífríki hafsins hefur grundvallarþýðingu fyrir íslenskt samfélag. Sjávarútvegurinn á Íslandi er að mæta kröfum kaupenda sjáv- arafurða um sjálfbæra nýtingu auð- linda hafsins sem þróaðar eru á grundvelli skuldbindinga sem gerðar eru að landslögum og með alþjóða- samningum. Bláa hagkerfið ehf. er nýstofnuð ís- lensk þekkingarveita sem, eins og nafnið gef- ur til kynna, mun beina kröftum sínum að því að upplýsa samfélög um sjálfbæran sjávar- útveg. Sérstaklega verður hugað að sjálf- bærri stjórnun auð- linda hafsins, vistkerf- isrannsóknum og hvernig hægt er að yf- irfæra það í efnahags- bata til hagsbóta fyrir samfélög á strand- svæðum jarðar. Bláa hagkerfið ehf. er að þróa verkfæri sem hefur fengið nafnið „Sustainable Fisheries“. Markmiðið er að setja saman hóp færustu ein- staklinga og sérfræðinga sem starfað hafa innan sjávarútvegs, opinberrar þjónustu og innan fræðasamfélags- ins. Markmiðið er að nýta sér þá miklu reynslu sem hefur safnast upp við þróun okkar farsæla fiskveiði- stjórnarkerfis á Íslandi. Það er sann- færing okkar sem stöndum að verk- efninu að nota megi íslensku fyrirmyndina, þegar kemur að sjálf- bærri fiskveiðistjórnun, sem grund- völl arðsemi í sjávarútvegi og það sé hægt að innleiða hjá þjóðum sem eru í svipaðri stöðu og við vorum þegar við töldumst til vanþróaðra þjóða. Útflutning þekkingar okkar á fisk- veiðistjórnun verður að nálgast á heildstæðan hátt. Það verður að nýta reynslu okkar og sérþekkingu varð- andi stjórnun veiða, vinnslu og mark- aðssetningu takmarkaðra auðlinda með eftirlitsstofnunum og opinberri stjórnun. Við þurfum að þróa sveigj- anlega forskrift fyrir alhliða fisk- veiðistjórnunarkerfi sem hægt væri að laga að mismunandi aðstæðum og raungera í hentugum samstarfs- ríkjum. Það sem við höfum í huga eru lönd sem eru í svipaðri stöðu og Ísland var fyrir nokkrum áratugum. Þetta gæti verið öflugt tæki sem að- stoðar samfélög við að nýta þá tækni sem þau hafa yfir að ráða og bæta þannig fiskveiðistjórnun þeirra og sjávarútveg almennt. Mikilvægt er að þetta sé gert á þann hátt að við- komandi lönd geti þróað og innleitt tækni og menntun í samvinnu við fyrirtæki sín og geti þannig fengið nýja tækni, þó á þann hátt sem sam- svari ástandi hvers lands. Nauðsynlegt er að tryggja að sam- starf um miðlun þekkingar hjá Bláa hagkerfinu fari fram með þátttöku opinberra aðila, atvinnulífsins og fræðasamfélagsins sem og annarra sem koma að verkefninu. Staða fiskistofna í heiminum er mikið áhyggjuefni svo og ástand hafsins. Arðrán stóru samfélaganna eins og Kína og Evrópusambandsins á fiskistofnum og stuðning við óarð- bærar veiðar, þrátt fyrir hættu- ástand fiskistofna, þarf að stöðva. Víða þrífast óheilbrigðir við- skiptahættir í kringum viðskipti með veiðiheimildir. Oft leiðir það til of- veiði fiskistofna á kostnað staðbund- inna veiða innlendra sjómanna og minnkandi veiði hjá þeim. Innviðir brotna niður en ríkisstjórnir fá fá- tækrastyrki fá alþjóðastofnunum í býtti fyrir veiðiheimildir og greiðslur fyrir þær. Þessu þarf að breyta um leið og fátækari samfélög fá leiðbein- ingar um aðrar hagkvæmari leiðir. Þannig þarf að byggja samfélög upp innan frá. Rétt er að árétta að þetta verkefni verði í takt við sjálfbær þróun- armarkmið Sameinuðu þjóðanna (SDG) # 8 og # 14. Enn fremur tengist það öðrum SDG-markmiðum #2, # 5, # 6, # 9, #10, #12 og # 17. Tökum forystu um vernd hafsins Eftir Svan Guð- mundsson »Upplýsum samfélög um sjálfbæra stjórnun auðlinda hafsins, til hagsbóta fyrir samfélög á strandsvæðum jarðar. Svanur Guðmundsson Höfundur er framkvæmdastjóri Bláa hagkerfisins ehf. svanur@arcticeconomy.com Sjálfsagt finnst ein- hverjum skjóta skökku við að eitthvað eigi að vera frjálst á Íslandi. Ég er því ósammála. Í áratugi hef ég ver- ið þeirrar bjargföstu sannfæringar að hand- færaveiðar og króka- veiðar smábáta við Ís- landsstrendur eigi að vera „frjálsar“ – svo langt sem það nær. Þ.e. hverjum Ís- lendingi heimill aðgangur að hinni sameiginlegu auðlind að uppfylltum sjálfsögðum skilyrðum um skip- stjórnarmenntun, haffæri báts, kunnáttu varðandi öryggisbúnað og ekki síst meðhöndlun afla. Ég set orðið frjálsar innan gæsa- lappa af drjúgri ástæðu. Það sem hamlar sjósókn lítilla fiskibáta við Íslandsstrendur hefur ekkert breyst í aldanna rás: lega landsins og náttúrufar norðurhvelsins. Smá- bátar eru ofurseldir ytri aðstæðum: veðri, fiskgengd á heimamið, straumum og birtu, svo fátt eitt sé nefnd. Þá segir sig sjálft að ein- menningssjósókn er viðkvæmari en önnur útgerð fyrir veikindum og bilunum. Til þeirrar staðreyndar er ekkert tillit tekið í lögum um stjórn fiskveiða. Tískuorð dagsins er umhverfis- mál. Landssamband smábátaeig- enda hóf þá umræðu strax við stofnun félagsins 1985 – fyrir 35 ár- um. Það féll vægast sagt í grýttan jarðveg stórútgerðarinnar, sú um- ræða var enda talsvert á undan tíð- arandanum. Stórútgerðin lét jafnvel eftir sér að hæðast að því sem smá- bátaeigendur sögðu og spurðu opin- berlega hvort ekki væri rétt að hverfa aftur til ára og segla. Nokkrum árum síðar birtust á heimasíðu LÍÚ myndir af segl- knúnum togurum/fraktskipum. Batnandi mönnum er best að lifa Alla tíð síðan 1985 hefur Lands- samband smábátaeigenda bent á að umhverfisáhrif veiðarfæra eigi að vega þungt þegar kemur að ákvörð- unum um hvernig eigi að verja fiskimiðin. Eiga það að vera þeir sem nota þung botndregin veið- arfæri eða þeir sem leggja streng á bólum eða renna sökkum á slóða? Stjórnvöld hafa hingað til þagað óþægilega þunnu hljóði. Sjálfur hélt ég, greinilega í barnslegri trú, að stjórnvöld vildu láta gjörðir fylgja orð- um í umhverfisumræðunni. T.d. að togveiðisvæði á landgrunninu yrðu smám saman minnkuð, ekki í ein- hverjum æðibunugangi – en alla- vega dregin saman. Staðreynd dagsins er öðru nær. Á sama tíma og allt snýst um loftslagið þá virðist engu skipta að verið er að stækka togsvæði stórra togara innan 12 mílna landhelginnar – landhelgi smábátanna. Ef hlutunum yrði snú- ið við, þ.e. litið á fiskimiðin sem loftslagið, mætti þá búast við því að þungar vinnuvélar með tröllstórar díselvélar yrðu ekki bara heimilaðar á helstu umferðaræðum landsins, heldur hvatt til aukningar? Orð og gjörðir verða að fara sam- an svo mark sé á takandi. Það er ekki raunin á Íslandi. Á sama tíma og stórum togveiðiskipum er hleypt inn á veiðisvæði nálægt landi leitast stjórnvöld við að draga úr veiði- heimildum smábátanna, þeirra sem nota þau veiðarfæri sem minnstri röskun valda í umhverfi hafsins. Það er kominn tími til að stjórn- völd rökstyðji þessar ákvarðanir. Eftir Arthur Bogason » Á sama tíma og stórum togveiðiskip- um er hleypt inn á veiði- svæði nálægt landi leit- ast stjórnvöld við að draga úr veiðiheim- ildum smábátanna. Arthur Bogason Höfundur er formaður Landssambands smábátaeigenda. arthur@smabatar.is Orð og gjörðir verða að fara saman 19.12. 2020 birtist grein í Morgunblaðinu undir heitinu „Íslam – raunverulegu Med- ínuárin“. Greinin er eft- ir imaminn Mansoor Ahmad Malik. Í raun er nokkuð ótryggt að fjalla um „raunverulegu med- ínuárin“, þar sem sú hefð múslíma, sem að þeim hnígur, byggist á munnlegum frá- sögnum sem gengu mann fram af manni og var ekki raðað endanlega saman í hvort heldur Kóraninn eða Ha- dith fyrr en löngu eftir þær opinber- anir, atburði, orð, boðun og gerðir sem um er fjallað. Þolinmæði og umburðarlyndi Eitt það sem höfundur greinarinnar tekur til er „þolinmæði og umburð- arlyndi“ spámanns íslams og nefnir til vers 2:257 (í þýðingu Helga Hálfdan- arsonar – HH): „Engum skal þröngvað til trúar. Hin rétta leið hefur verið greind frá villu. Sá sem afneitar hjátrú og setur traust sitt á Allah, hefur fund- ið þá handfestu sem aldrei mun bresta. Allah heyrir allt og veit allt.“ Og einnig vers 4:138 (þýð. HH): „Eitt er víst um þá, sem ekki trúa, og ganga af trú sinni, taka trú að nýju, en afneita henni öðru sinni og eflast í vantrú. Þeim mun Allah hvorki fyrirgefa né beina á rétta braut.“ Reyndar sleppir ímaminn hluta beggja versanna. Í versi 4:89 (þýð. HH) segir: „Þeir óska þess, að þér gerist vantrúa, sem þeir sjálfir, til þess að þar verði jafnt á komið. Vingist því ekki við neinn þeirra fyrr en þeir hafa flúið að heiman fyrir málstað Allah. Hverfi þeir frá yður, þá grípið þá og drepið, hvar sem þér finnið þá.“ Um vantrúaða almennt segir í versi 8:12 (þýð. HH): „Ég mun varpa skelfingu í hjörtu vantrúaðra. Háls- höggvið þá og fingurhöggvið.“ Einnig má nefna Hadith-inn Buk- hari 52:260 (þýð. höf.): „Spámaðurinn sagði, ef einhver (múslími) kastar trú sinni, drepið hann.‘“ Gyðingar Höfundur greinarinnar segir að það sé „algjör fjarstæða að íslam og músl- ímar hati gyðinga“. Spámaðurinn gerði það ekki framan af, enda taldi hann sig síðasta spá- manninn og arftaka þeirra spámanna sem fram höfðu komið á meðal Gyðinga – og þar á meðal Jesú Krists, sem múslímar telja næstan á undan hinum endanlega spámanni sínum. Því leit spámaðurinn svo á, að Allah væri einn- ig Guð Gyðinga og að þeir mundu taka honum sem slíkum. Þetta kemur fram í ýmsum versum og þar á meðal í 2:40 (þýð. HH): „Ó, þér börn Ísraels, minn- ist náðar minnar (Allahs), sem ég hef auðsýnt yður og haldið sáttmálann við Mig; þá mun ég halda sáttmálann við yður. Tignið Mig einan.“ Í ljós kom svo sem í Medínu að Gyð- ingarnir tregðuðust við að ganga spá- manninum á hönd. Spámaðurinn tók að líta svo á, að „fólk bókarinnar“ (Gyðingar og kristnir) væri vert reiði Allahs, eins og fram kemur í versum 5:60-61 (þýð. HH): „Þú skalt segja: Ó, þér menn bókarinnar, leggið þér hatur á oss fyrir það eitt, að vér trúum á Al- lah og það, sem hann hefur opinberað oss og öðrum á undan oss, eða vegna þess, að flestir eruð þér illvirkjar.‘ / Þú skalt segja: Get ég boðað yður nokkuð verra en refsingu Allah?‘ Þeir sem Al- lah hefur formælt í reiði sinni og um- breytt í apa og svín, þeir sem dýrka Hinn Vonda, þeir eru illa komnir, því þeir hafa villst langt af réttri braut.“ Fleira mætti til tína um apa og svín, þegar ræðir um „fólk bókarinnar“, ekki síst úr orðum ímama samtímans bæði í ræðu og riti. Að lokum: Í Hadith-num Sahih Muslim 2922 segir (þýð. höf.): „Abu Huraira sagði sendiboða Allahs hafa sagt: Hinir hinstu tímar renna ekki upp nema múslímar berjist gegn Gyð- ingum og múslímarnir drepi þá þar til Gyðingarnir fela sig bak við stein eða tré og steinninn eða tréð segði: músl- ími, eða þjónn Allahs, það er Gyðingur á bak við mig; komdu og dreptu hann; en tréð Gharqad segir ekki frá, því það er tré Gyðinga.“ Íslam – nokkur vers Eftir Hauk Ágústsson »Nokkur vers úr Kór- aninum og Hadith. Haukur Ágústsson Höfundur er fv. kennari.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.