Morgunblaðið - 29.12.2020, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 29.12.2020, Blaðsíða 24
„Þetta er afskaplega mikil bar- átta í óperuheiminum. Mörg þúsund söngvarar eru að reyna að fá at- vinnu og mikil samkeppni um þessi tiltölulega fáu störf. Ég byrja að starfa í Evrópu þegar járntjaldið féll 1989-90 og þá koma þar margir frábærir söngvarar frá Austur- Evrópu og samkeppnin verður enn harðari.“ Viðar rifjar upp þegar hann heimsótti Kristin Sigmundsson í Þýskalandi en einnig kom hann reglulega heim til Íslands til að syngja hjá Þjóðleikhúsinu, Íslensku óperunni, Sinfóníuhljómsveit Ís- lands og á ýmsum tónleikum. Á ferli sínum hefur Viðar komið fram í óperuhúsum eins og í Ríkisóper- unni í Berlín, Bonn, Frankfurt, Stuttgart, Wiesbaden, Dortmund, Þjóðaróperunni í Vínarborg, Prag, Tel Aviv og Seoul í Suður-Kóreu svo einhver séu nefnd. V iðar Gunnarsson fæddist í Óðinsvéum í Dan- mörku 29. desember 1950. „Faðir minn var þar við nám en þegar ég var fimm ára flutti fjölskyldan til Reykjavíkur og tveimur árum síðar til Ólafsvíkur.“ Það var afskaplega gott að alast upp í Ólafsvík og mikið frelsi.“ Við- ar gekk í skóla í Ólafsvík en fór síð- an í Gaggó Vest í Reykjavík og það- an í MR þar sem hann útskrifaðist 1972. „Það var gaman í MR og skemmtilegt að núna er bekkurinn farinn að hittast reglulega í kaffi og rifja upp gamla tíma.“ Viðar hóf nám í HÍ, en fór svo að vinna ýmis störf, kenndi í Árbæjarskóla og vann sem lögreglumaður í Reykja- vík og síðan í fjögur ár hjá Rík- isútgáfu námsbóka, síðar Náms- gagnastofnun. Viðar söng með Pólýfónkórnum frá 1972 og síðar Kór Langholts- kirkju um margra ára skeið. Þá var hann kominn með fjölskyldu og tvö börn. „Þegar maður er í svona áhugamennsku er maður mikið frá fjölskyldunni því mest er unnið á kvöldin og um helgar.“ Árið 1977 hóf Viðar nám í Söng- skólanum í Reykjavík og lauk áfangaprófi frá skólanum 1981 og þá hélt fjölskyldan til Stokkhólms, en þar hafði Viðar komist í sam- band við prófessor við tónlist- arháskólann. Fjölskyldan var þar í þrjú ár og kom heim 1984. „Ég sótti prívat tíma hjá þessum prófessor, en var þarna sem stúdent, áhyggju- laus, og síðan komum við heim.“ Viðar var ráðinn til starfa hjá bóka- útgáfunni Vöku og strax eftir að heim kom byrjaði hann að syngja hjá Íslensku óperunni og einnig hjá Þjóðleikhúsinu. Viðar söng mörg hlutverk þar eða þar til hann ákvað að reyna fyrir sér erlendis. Hann fór í prufusöng til Vínar í Aust- urríki til þess að syngja hjá Kamm- eróperunni og var ráðinn til að syngja hlutverk æðstaprestsins Sa- rastró í Töfraflautunni. Þetta var árið 1990. Eftir það hefur Viðar starfað sem óperusöngvari í Evrópu, aðallega í Wiesbaden í Þýskalandi, á leið sinni til Bremerhaven þar sem hann átti að syngja prufusöng bæði í Bremerhaven og Osló, en þá var samningi hans í Vínarborg að ljúka. „Fyrir hálfgerða tilviljun fer ég og syng fyrir þá í óperunni í Wiesba- den og þeim leist ansi vel á mig. Síðan fer ég til Bremerhaven og syng þar og fer þaðan til Osló þar sem ég söng í Norsku óperunni. Þegar ég er á flugvellinum að fara heim til Íslands fæ ég skilaboð frá Kristni um að snúa við. Taskan var rifin úr íslensku vélinni og ég fór til Þýskalands og strax daginn eftir er ég kominn á æfingu og syng í sýn- ingunni um kvöldið. Þetta var Don Giovanni eftir Mozart og þetta gekk svo vel að ég var ráðinn á staðnum og var í Wiesbaden næstu fimm ár- in.“ Viðar hefur á sínum ferli sungið flestöll helstu bassahlutverk óperu- bókmenntanna en þau munu vera í kringum 90 talsins. Eftir að Viðar flutti heim frá Þýskalandi árið 2011 hefur hann verið mjög virkur í sönglífi landans og hefur m.a. tekið reglulega þátt í uppfærslum Ís- lensku óperunnar í Hörpu, en nú nýverið tók hann þátt í frumflutn- ingi á óperunni Ragnheiði eftir Gunnar Þórðarson en þar fór hann Viðar Gunnarsson óperusöngvari - 70 ára Barnabörnin Hér eru Guðbjörg og Viðar með öll barnabörnin. Sungið flest bassahlutverk óperunnar Listahátíð Leah Frey-Rabine og Viðar í óperunni Niflungahringnum eftir Richard Wagner sem sýnd var á Listahátíð árið 1994 í Þjóðleikhúsinu. Wolf- gang Wagner, sonarsonur tónskáldsins, var viðstaddur á frumsýningunni. Afinn Hér er Viðar með barnabarni sínu, Bjarna Þór, á góðri stund. 24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 2020 Óskum viðskiptavinum okkar gleðilegs árs og friðar með þökk fyrir viðskiptin á árinu. Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is 40 ára Svanlaug ólst upp í Skipholtinu, sem henni fannst vera sveitin sín. Hún hefur búið nokkrum sinnum erlendis en býr núna í Reykjavík. Hún er framkvæmdastjóri og eigandi OsteoStrong á Íslandi. Helstu áhugamál hennar eru söngur, leikhús og tangó sem hún stundar af miklum krafti. Maki: Örn Helgason, f. 1976, eigandi OsteoStrong á Íslandi. Börn: Ísgerður, f. 2010 og Starkaður, f. 2013. Foreldrar: Elfa Eyþórsdóttir, f. 1952, sérfræðingur í forsætisráðuneytinu, og Jóhann B. Loftsson, f. 1950, sálfræð- ingur. Svanlaug Jóhannsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Gefðu þér tíma til að huga að því hvernig þú getur bætt samskipti þín við aðra í fjölskyldunni. Veltu málunum fyrir þér áður en þú lætur til skarar skríða. 20. apríl - 20. maí  Naut Smáheimur ákvarðana þinna endur- speglar raunverulegan heim framtíðar þinn- ar. Láttu öfund annarra sem vind um eyru þjóta því þinn tími er kominn. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Fljótlega kynnist þú persónu sem getur lagt þér lið með ýmsum hætti. Mundu að hlutirnir gerast ekki sjálfkrafa og þú þarft að hafa fyrir þeim. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þetta verður góður dagur í faðmi fjölskyldunnar, ef þú gefur þér tíma til þess. Netið geymir alls konar fróðleik og bókin er við höndina. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Fyrir mánuði sástu þig þar sem þú ert í dag. Mundu að markmiðasetning er stór hluti af velgengni þinni. Ekki fara í kringum hlutina. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú ert í góðu skapi í dag. Nú fer ástandið batnandi. Skapandi störf henta þér best, en það veistu líklega innst inni. Einhver kemur þér á óvart. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú ert bæði skrýtnari og skemmtilegri en flestir álíta þig vera við fyrstu kynni. Taktu þér tak, annars áttu á hættu að verða umsvifalaust dæmd/ur sem tækifærissinni. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Í dag ættir þú að reyna að verja tíma með góðum vinum. Skyggnstu lengra og reyndu að sjá hvernig hlutirnir verða eftir nokkra mánuði. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú ættir að líta yfir farinn veg í dag og velta því fyrir þér hvar þú viljir vera eftir 5 ár. Hin gamalkunna aðferð að for- gangsraða gerir vandamálin meðfærilegri. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það skiptir engu máli hvernig viðrar hið ytra ef þið gætið þess að hafa sól í sinni. Láttu áhyggjurnar ekki leika lausum hala. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Með örlítilli þolinmæði og smá hugkvæmni átt þú að geta fellt alla hluta saman þannig að úr verði heil mynd. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er sjálfsagt að hlaupa undir bagga með öðrum, þegar það er hægt. Njóttu þess að vera með góðu fólki. 30 ára Snædís ólst upp í Arizona, Ísafirði og á Akureyri en býr núna í Reykjavík. Snædís er grafískur hönnuður hjá Smart- media. Helstu áhuga- mál hennar eru allt sem viðkemur myndlist og hönnun og síðan útivist. „Amma mín málaði mikið og þaðan kemur áhuginn og myndmennt var alltaf uppáhaldsfagið.“ Snædís lærði hönnun í London og lauk BA-prófi í myndlist frá Listaháskólanum. Maki: Sven Karlson, f. 1992, er að ljúka lögfræðinámi. Foreldrar: Anna María Malmquist, f. 1966, iðjuþjálfi á Akureyri og Einar Ólafs- son, f. 1964, arkitekt í Reykjavík. Snædís Malmquist Einarsdóttir Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.