Lögmannablaðið - 2018, Síða 16
16 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 02/18
HLUTVERK
ALÞINGIS VIÐ SKIPUN DÓMARA
Í einni af málstofunum lagadags var fjallað um fyrirkomulag varðandi skipun
dómara hér á landi og aðkomu framkvæmdarvaldsins og Alþingis að slíkri skipun.
Framsögumenn voru prófessorarnir Björg Thorarensen og Ragnhildur Helgadóttir og
í panil sátu Ingibjörg Þorsteinsdóttir formaður Dómarafélags Íslands og Reimar
Pétursson þáverandi formaður Lögmannafélags Íslands. Málstofustjóri var Benedikt
Bogason hæstaréttardómari.
Hlutlæg sjónarmið
Ragnhildur Helgadóttir tók fyrst til máls og fjallaði um
þýðingu reglna um skipun dómara, alþjóðlegar reglur
eða viðmið um skipun dómara og hvernig þær reglur eða
viðmið horfa við því kerfi sem er við lýði hér á landi. Fjallaði
hún í því sambandi m.a. um 6. gr. mannréttindasáttmála
Evrópu og tilmæli ráðherranefndar Evrópuráðsins frá 1994
um sjálfstæði, skilvirkni og hlutverk dómenda. Vísaði hún
til þeirrar reglu í tilmælunum að skipun dómara eigi að
byggja á hlutlægum sjónarmiðum og verðleikum og að í
þeim löndum þar sem gert væri ráð fyrir að dómarar væru
skipaðir af ríkisstjórn eða einstökum ráðherrum bæri að
tryggja að tilhögun skipunarferlisins væri gagnsæ og óháð
í framkvæmd. Þá fjallaði Ragnhildur um fyrirmæli um
skipun dómara í Sáttmála dómenda í Evrópu frá júlí 1998
þar sem mælt er fyrir um að sérstöku stjórnvaldi, sem sé
óháð handhöfum framkvæmdar- og löggjafarvalds, skuli
falið að taka ákvarðanir um skipun dómara. Að síðustu
F.v. Benedikt Bogason, Björg Thorarensen, Ragnhildur Helgadóttir, Reimar Pétursson og Ingibjörg Þorsteinsdóttir.