Málfríður - 15.03.1987, Blaðsíða 17
Fréttir
Aðalfundur STÍL
Aðalfundur STÍL var haldinn 6.
nóvember 1986 í húsakynnum
þýska bókasafnsins. Fundurinn var
allvel sóttur. Dagskráin var í hefð-
bundnu formi. í skýrslu formanns
kom m.a. fram að stjórnin hefur
unnið að því að kynna tilvist sam-
takanna bæði hér heima og erlend-
is, og erum við komin í náið sam-
starf við sambærileg samtök á
Norðurlöndum. Benti hún á að
þegar væri komið í ljós hversu
mikilvægt væri að hafa sterk sam-
tök að baki þar sem þær raddir sem
draga vildu úr tungumálakennslu
heyrðust æ oftar hér á landi á sama
tíma og önnur lönd, t.d. Norður-
lönd, væru að reyna að auka tungu-
málakennslu vegna mikilvægis
hennar fyrir atvinnulífið. — Enn
fremur var skýrt frá því að STÍL
hygðist halda námskeið/náms-
stefnu annað hvert ár og stefndi að
því að það yrði sem oftast haldið
utan Reykjavíkur.
Vonast hafði verið eftir að hægt
yrði að stofna „Aðfara“ félag
tungumálakennara sem kenna
önnur mál en dönsku, ensku,
frönsku og þýsku en enginn fulltrúi
þeirra hafði samband við stjórnina
svo það verður að bíða enn um hríð
en STÍL hefur mikinn áhuga á að fá
þá til liðs við sig.
Reikningar STÍL og Málfríðar
voru lagðir fram og samþykktir og
ljóst er að fjárhagur beggja er
þröngur.
Að fundarstörfum loknum tóku
menn upp léttara hjal yfir ljúffeng-
um veitingum að hætti franskra.
Stjórnin vill að lokum þakka
forstöðumanni þýska bókasafnsins,
Dr. Coletta Burling fyrir afnot af
þessu vistlega húsnæði.
Námstefna
á Laugarvatni
Stjórn STÍL vill vekja athygli á
námsstefnu sem fyrirhugað er að
halda að Laugarvatni um miðjan
september. Aðalefni námsstefnunn-
ar verður „Bókmenntir í tungu-
málakennslu". Fyrirlesari verður
erlendur.
Við hvetjum alla tungumála-
kennara til að fjölmenna á þessa
fyrstu námsstefnu sem STIL stend-
ur fyrir. Nánari upplýsingar verða
sendar félagsmönnum.
Með kveðju
stjórnin.
Oröuveitingar
Það er Málfríði mikil ánægja að
geta tiikynnt um nýja orðuhafa úr
hópi tungumálakennara, en orðu-
veitingarnar áttu sér stað á sl. vetri.
Á kvennafrídeginum, þann 24.
okt. 1986 sæmdi sendiherra Dan-
merkur á íslandi, herra Hans
Andreas Djurhuus, Guðrúnu Hall-
dórsdóttur, skólastjóra Námsflokka
Reykjavíkur, riddarakrossi Danne-
brog-orðunnar fyrir störf að mál-
efnum í þágu dönskukennslu og
störf að félagsmálum dönskukenn-
ara.
Þann 26. nóv. 1986 sæmdi sendi-
herra Frakklands á íslandi, herra
Yves Mas, tvo frönskukennara,
Herdísi Vigfúsdóttur, formann FFÍ,
og Sigríði Magnúsdóttur, kennara í
MR, orðunni „Les Palmes Acadé-
miques“, sem menntamálaráðherra
Frakka veitir fyrir störf í þágu
franskrar menningar.
Er þessum félagsmönnum óskað
innilega til hamingju með heiður-
inn.
MEIMNIIMGARFERÐIR TIL KÍIMA í JÚLÍ OG OKTÓBER. KÍKIÐ VIÐ OG
FÁIÐ SÉRPRENTAÐA ÁÆTLUIM
17