Málfríður - 15.03.1987, Síða 25
Frá félagi enskukennara
Félag enskukennara á íslandi —
FEKÍ — var stofnað árið 1969.
Aðalhvatamaður að stofnun þess
og fyrsti formaður var Heimir Ás-
kelsson. Félagsmenn eru nú um
140.
Núverandi stjórn skipa: Auður
Torfadóttir, formaður, Kennarahá-
skóla íslands, Ingi Viðar Árnason,
varaformaður, Hagaskóla, Kolbrún
Valdimarsdóttir, gjaldkeri, Fjöl-
brautaskólanum Breiðholti, Guð-
rún Jónsdóttir, ritari Hagaskóla og
Björn Ingi Finsen, meðstjórnandi,
Fjölbrautaskólanum á Akranesi.
Fundir eru að jafnaði haldnir
einu sinni í mánuði (oftast síðasta
laugardag hvers mánaðar) á tíma-
bilinu frá september til apríl. Þar
eru tekin fyrir málefni er snerta
enskukennslu eða annað sem teng-
ist áhugasviði enskukennara.
Félagið hefur gengist fyrir nám-
skeiðum, ýmist eitt sér eða í sam-
vinnu við aðra. Mikill áhugi er á að
koma námskeiðsmálum í fastari
skorður en hingað til hefur verið.
Þetta á einkum við framhaldsskól-
ann, en fjárveitingar til endur-
menntunar þar hafa verið mjög
skornar við nögl og við þær aðstæð-
ur hefur verið erfitt að gera lang-
tímaáætlanir eins og nauðsynlegt
er. Félagið vill berjast fyrir því að
félagsmenn eigi kost á námskeiðum
sér að kostnaðarlausu með reglu-
legu millibili.
Félagið hefur verið aðili að al-
þjóðasamtökum enskukennara —
IATEFL —frá 1974 ogá nú fulltrúa
í stjórn samtakanna. Félagsmenn
geta fengið einstaklingsaðild að
IATEFL og fá þá tímarit samtak-
anna og geta auk þess fengið með
afslætti áskrift að öllum helstu
tímaritum um enskukennslu sem
gefin eru út í Bretlandi. Árlega
gangast samtökin fyrir veglegri fjög-
urra daga ráðstefnu þar sem boðið
er upp á mikla fjölbreytni og úrvals
fyrirlesara. Félagið hefur átt full-
trúa á ráðstefnunum undanfarin ár.
Samtökin hafa greitt uppihalds-
kostnað á ráðstefnum fyrir einn fé-
lagsmann. Því miður hefur félagið
enn ekki bolmagn til að veita neina
verulega styrki, en ferðastyrki er
hægt að sækja um til starfsmennt-
unarsjóða stéttarfélaganna. Nú er
verið að endurskoða starfsemi
IATEFL og er þess að vænta að
þjónusta við aðildarfélögin verið
aukin.
Menningarstofnun Bandaríkj-
anna hefur verið félaginu hliðholl,
hefur m.a. gengist fyrir námskeið-
um og skipulagði í samvinnu við fé-
lagið námskeið í Bandaríkjunum
sumarið 1978. Nú er kominn tími
til að athuga hvort ekki sé hægt að
efna til annars slíks námskeiðs.
Menningarstofnunin sendir öllum
félagsmönnum tímaritið English
Teaching Forum.
The British Council hefur á und-
anförnum árum sent hingað leið-
beinendur á námskeið og hafa einn-
ig gefið gott safn handbóka um
enskukennslu. Bókum þessum hef-
ur verið komið fyrir í bókasafni
Kennaraháskóla íslands sem er öll-
um opið.
Félagið er opið öllum sem kenna
ensku og ef einhver sem þetta les
hefur áhuga á að gerast félagi, getur
hann sent nafn sitt, heimilisfang og
nafn skóla til:
Félags enskukennara
Pósthólf 7122
127 Reykjavík
Enskukennarar athugið!
Munið námskeiðið í Norwich í sumar.
Skráning er á aðalskrifstofu Háskólans, sími 25088,
en nánari upplýsingar veittar á skrifstofu
endurmenntunarstjóra í síma 23712 og 687664.
25