Málfríður - 15.03.1987, Síða 27
Torsdag den 12/1: Alle gár i
skole om formiddagen. Om efter-
middagen ekskursionsopgaver efter
forud valgte interesser (kunst,
natur, industri m.v.). Om aftenen
festmiddag pá skolen for lærere,
elever og forældre. Overnatning i
hjemmene.
Fredag den 13/2: Alle samles i
skolen om formiddagen. Tog og
bustur til Helsingor, Kronborg
m.m. En kort tur over Sundet.
Eftermiddagen fri i Helsingor eller
Kobenhavn. ,,Hjeml0se“ elever
overnatter pá skolen.
Lordag den 14/2: Afrejse fra
Kastrup ca. kl. 12. Ankomst til
Keflavík ved 5-tiden.
Það hefur gefist vel að hafa ís-
lensku og erlendu nemendurna
saman á ákveðnum stað fyrst til að
þeir geti kynnst, en síðan fari þeir
heim með gestgjöfunum og búi á
einkaheimilum. Það er ekki aðeins
ódýr lausn heldur einnig mikilvæg
reynsla fyrir nemendur að verða að
standa sig og tala erlenda málið.
Auk þess læra þeir mikið um siði og
venjur fólks á þennan hátt. Það er
hreint ótrúlegt hvað nemendur geta
lært mikið á einni viku í slíkri ferð
og oft er það upphafið að vináttu-
tengslum sem endast lengi.
Þegar heim er komið skrifa nem-
endur skýrslur, dagbækur eða halda
myndakvöld fyrir foreldra og aðra
nemendur skólans. Þessi þáttur er
ómissanþi ef þetta á að nefnast
námsferð en ekki bara skemmti-
ferð.
Áhrif nemendaferða
Ferð nemenda til annars lands
hefur hvetjandi áhrif langt út fyrir
þann hóp sem verður þeirrar
ánægju aðnjótandi að fara í ferðina.
Öll sú jákvæða umræða sem fer
fram milli foreldra, nemenda og
kennara er mikil auglýsing fyrir
námsgreinina í skólanum og eykur
vinsældir hennar. Það stendur oft
tungumálanámi fyrir þrifum að
nemendur nota það ekki fyrir utan
skólastofuna. í nemendaheimsókn-
um sjá þeir að þeir geta notað er-
lenda málið sem tæki til samskipta
við annað fólk. Eins hefur það mjög
hvetjandi áhrif í tungumálanáminu
að fá erlenda gesti hingað. Við get-
um með ánægju tekið á móti þeir
nemendum sem vilja koma hingað
enda þarf ekki að hvetja íslendinga
til gestrisni.
Sigurlín Sveinbjarnardóttir
er námsstjóri í dönsku
SEIGUR ERTU!
Þú veist sem er að Sadofoss framleiðir öll þau kítti og þéttiefni
sem þú hugsanlega þarft á að halda, þ.á.m. Rubberseal 1K
- öruggasta þéttiefnið fyrir íslenska veðráttu hvar sem er.