Málfríður - 15.03.1987, Page 30
Lög fyrir samtök kennara erlendra mála
á Islandi
Heiti samtakanna
1. gr.
Samtökin heita: Samtök tungu-
málakennara á íslandi — STÍL.
Heimili þeirra og varnarþing er í
Reykjavík.
Markmið
2. gr.
Markmið samtakanna er:
1) að efla samstöðu og faglega sam-
vinnu félaga tungumálakennara
2) að gefa út málgagn og gangast
fyrir ráðstefnum, námskeiðum
og umræðufundum
3) að standa vörð um menntun
tungumálakennara og gæta þess
að hún verði ætíð í samræmi við
kröfurtímans
4) að hafa stefnumótandi áhrif á
kennslu erlendra mála í íslensk-
um skólum
5) að stuðla að aukinni samvinnu
tungumálakennara á hinum
ýmsu skólastigum sem og sam-
vinnu við móðurmálskennara
6) að vera tengiliður við aðila er
gæta hagsmuna tungumálakenn-
ara
7) að efla tengsl við félög og stofn-
anir, innanlands og utan, sem á
einhvern hátt tengjast starfssviði
kennara erlendra mála
8) að koma fram fyrir hönd félag-
anna í málum sem varða þau
sameiginlega.
Aðild
3-gr.
Rétt til aðildar hafa félög kenn-
ara í erlendum málum. Þeir mála-
kennarar sem ekki hafa stofnað
með sér félag í sinni grein, en óska
eftir aðild að samtökunum, eiga
kost á að gerast félagar í ,,Aðfara“,
en skipulag þess félags skal vera hið
sama og annarra aðildarfélaga.
Málgagn
4. gr.
Samtökin gefa út tímarit um
málakennslu, Málfríði. Allir full-
gildir félagsmenn samtakanna fá
tímaritið sent. í ritnefnd Málfríðar
eiga sæti 1 —2 fulltrúar frá hverju
aðildarfélagi.
Skipulag
5. gr.
Akvörðunar- og framkvæmda-
vald er í höndum stjórnar. Þó skal
bera öll meiri háttar mál undir
stjórnir einstakra félaga. Stjórn
STÍL skipa formenn þeirra aðildar-
félaga sem hafa 35 meðlimi eða
fleiri ásamt einum fulltrúa til við-
bótar frá hverju þessara félaga.
Önnur aðildarfélög hafa heimild til
að skipa einn áheyrnarfulltrúa í
stjórn STÍL.
Stjórn
6. gr.
Stjórn samtakanna skal skipuð
formanni, varaformanni, ritara,
gjaldkera og meðstjórnendum.
Félögin skulu skiptast á um að til-
nefna formann. Við tilnefningu
hans skal farið eftir stafrófsröð fé-
laga. Að öðru leyti skiptir stjórnin
með sér verkum. Formenn aðildar-
félaganna eiga sæti í stjórn STÍL
svo lengi sem þeir eru formenn síns
félags. Kjörtímabil annarra stjórn-
armanna er minnst eitt ár, frá ein-
um aðalfundi STÍL til þess næsta, og
skal enginn sitja lengur í stjórn en 6
ár í senn. Einfaldur meiri hluti at-
kvæða ræður úrslitum á stjórnar-
fundum. Stjórnarfundur hefur vald
til að taka ákvarðanir (nema í meiri
háttar málum, sbr. 5. gr.) séu a.m.k.
% hlutar atkvæðisbærra stjórnar-
manna viðstaddir.
7. gr.
Formaður boðar stjórnarfundi
eftir þörfum, að jafnaði eigi sjaldn-
ar en þrisvar á ári. Stjórnarfund
skal boða ef tveir stjórnarmenn
óska og skal hann haldinn innan
hálfs mánaðar frá því er óskin var
lögð fram.
Aðalfundur
8. gr.
Aðalfund samtakanna skal halda
í októbermánuði ár hvert. Rétt til
setu á aðalfundi eiga allir félagar
hinna ýmsu aðildarfélaga. Til aðal-
fundar skal boða með minnst viku
fyrirvara og geta dagskrár. Aðal-
fundur er löglegur ef löglega er til
hans boðað. Á dagskrá aðalfundar
skulu m.a. vera eftirtaldir liðir:
1) Formaður flytur skýrslu stjórnar
og gjaldkeri leggur fram endur-
skoðaða reikninga samtakanna.
2) Stutt skýrsla aðildarfélaga.
3) Skýrsla ritnefndar Málfríðar.
4) Árgjald næsta árs ákveðið og
jafnframt hlutur Málfríðar af því
gjaldi.
5) Lagabreytingar.
6) Kosning tveggja endurskoðenda.
7) Önnurmál.
Fjármál
9. gr.
Aðildarfélögin greiða samtökun-
um árgjald í hlutfalli við fjölda fé-
lagsmanna. Stjórn samtakanna
leggur tillögu um árgjöld fyrir aðal-
fund. Árgjöldin ásamt endurskoð-
uðu félagatali skulu hafa borist
stjórninni eigi síðar en 30. septem-
ber ár hvert. Reikningsár samtak-
anna er frá 1. október til 30. sept-
ember.
10. gr.
Verði samtökin lögð niður skulu
eignir þeirra og skuldir skiptast á
milli aðildarfélaga í réttu hlutfalli
við félagafjölda þeirra.
Lagabreytingar
11. gr.
Lögum þessum verður ekki
breytt nema á aðalfundi og þarf ein-
faldan meiri hluta greiddra atkvæða
til breytinga. Tillögur um laga-
breytingar skulu hafa borist stjórn
samtakanna fyrir 20. september.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
30