Málfríður - 15.03.1987, Blaðsíða 30

Málfríður - 15.03.1987, Blaðsíða 30
Lög fyrir samtök kennara erlendra mála á Islandi Heiti samtakanna 1. gr. Samtökin heita: Samtök tungu- málakennara á íslandi — STÍL. Heimili þeirra og varnarþing er í Reykjavík. Markmið 2. gr. Markmið samtakanna er: 1) að efla samstöðu og faglega sam- vinnu félaga tungumálakennara 2) að gefa út málgagn og gangast fyrir ráðstefnum, námskeiðum og umræðufundum 3) að standa vörð um menntun tungumálakennara og gæta þess að hún verði ætíð í samræmi við kröfurtímans 4) að hafa stefnumótandi áhrif á kennslu erlendra mála í íslensk- um skólum 5) að stuðla að aukinni samvinnu tungumálakennara á hinum ýmsu skólastigum sem og sam- vinnu við móðurmálskennara 6) að vera tengiliður við aðila er gæta hagsmuna tungumálakenn- ara 7) að efla tengsl við félög og stofn- anir, innanlands og utan, sem á einhvern hátt tengjast starfssviði kennara erlendra mála 8) að koma fram fyrir hönd félag- anna í málum sem varða þau sameiginlega. Aðild 3-gr. Rétt til aðildar hafa félög kenn- ara í erlendum málum. Þeir mála- kennarar sem ekki hafa stofnað með sér félag í sinni grein, en óska eftir aðild að samtökunum, eiga kost á að gerast félagar í ,,Aðfara“, en skipulag þess félags skal vera hið sama og annarra aðildarfélaga. Málgagn 4. gr. Samtökin gefa út tímarit um málakennslu, Málfríði. Allir full- gildir félagsmenn samtakanna fá tímaritið sent. í ritnefnd Málfríðar eiga sæti 1 —2 fulltrúar frá hverju aðildarfélagi. Skipulag 5. gr. Akvörðunar- og framkvæmda- vald er í höndum stjórnar. Þó skal bera öll meiri háttar mál undir stjórnir einstakra félaga. Stjórn STÍL skipa formenn þeirra aðildar- félaga sem hafa 35 meðlimi eða fleiri ásamt einum fulltrúa til við- bótar frá hverju þessara félaga. Önnur aðildarfélög hafa heimild til að skipa einn áheyrnarfulltrúa í stjórn STÍL. Stjórn 6. gr. Stjórn samtakanna skal skipuð formanni, varaformanni, ritara, gjaldkera og meðstjórnendum. Félögin skulu skiptast á um að til- nefna formann. Við tilnefningu hans skal farið eftir stafrófsröð fé- laga. Að öðru leyti skiptir stjórnin með sér verkum. Formenn aðildar- félaganna eiga sæti í stjórn STÍL svo lengi sem þeir eru formenn síns félags. Kjörtímabil annarra stjórn- armanna er minnst eitt ár, frá ein- um aðalfundi STÍL til þess næsta, og skal enginn sitja lengur í stjórn en 6 ár í senn. Einfaldur meiri hluti at- kvæða ræður úrslitum á stjórnar- fundum. Stjórnarfundur hefur vald til að taka ákvarðanir (nema í meiri háttar málum, sbr. 5. gr.) séu a.m.k. % hlutar atkvæðisbærra stjórnar- manna viðstaddir. 7. gr. Formaður boðar stjórnarfundi eftir þörfum, að jafnaði eigi sjaldn- ar en þrisvar á ári. Stjórnarfund skal boða ef tveir stjórnarmenn óska og skal hann haldinn innan hálfs mánaðar frá því er óskin var lögð fram. Aðalfundur 8. gr. Aðalfund samtakanna skal halda í októbermánuði ár hvert. Rétt til setu á aðalfundi eiga allir félagar hinna ýmsu aðildarfélaga. Til aðal- fundar skal boða með minnst viku fyrirvara og geta dagskrár. Aðal- fundur er löglegur ef löglega er til hans boðað. Á dagskrá aðalfundar skulu m.a. vera eftirtaldir liðir: 1) Formaður flytur skýrslu stjórnar og gjaldkeri leggur fram endur- skoðaða reikninga samtakanna. 2) Stutt skýrsla aðildarfélaga. 3) Skýrsla ritnefndar Málfríðar. 4) Árgjald næsta árs ákveðið og jafnframt hlutur Málfríðar af því gjaldi. 5) Lagabreytingar. 6) Kosning tveggja endurskoðenda. 7) Önnurmál. Fjármál 9. gr. Aðildarfélögin greiða samtökun- um árgjald í hlutfalli við fjölda fé- lagsmanna. Stjórn samtakanna leggur tillögu um árgjöld fyrir aðal- fund. Árgjöldin ásamt endurskoð- uðu félagatali skulu hafa borist stjórninni eigi síðar en 30. septem- ber ár hvert. Reikningsár samtak- anna er frá 1. október til 30. sept- ember. 10. gr. Verði samtökin lögð niður skulu eignir þeirra og skuldir skiptast á milli aðildarfélaga í réttu hlutfalli við félagafjölda þeirra. Lagabreytingar 11. gr. Lögum þessum verður ekki breytt nema á aðalfundi og þarf ein- faldan meiri hluta greiddra atkvæða til breytinga. Tillögur um laga- breytingar skulu hafa borist stjórn samtakanna fyrir 20. september. Lög þessi öðlast þegar gildi. 30

x

Málfríður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.