Málfríður - 15.09.2002, Qupperneq 26

Málfríður - 15.09.2002, Qupperneq 26
Meginmarkmið Stofnunar Vig- dísar Finnboga- dóttur er að efla rannsóknir á fræðasviði sínu og vera vett- vangur þróunar- starfs og upp- lýstrar umræðu um tungumál, tungumálanám og menningar- fræði. Green-Vánttinen ogTaina Kaivola lektor- ar við Helsinki háskóla um nýja rannsókn á sænskukennslu í Finnlandi. Hinn 5. nóv- ember s.l. flutti Miyako Þórðarson, prestur heyrnarlausra fyrirlesturinn: Hvernig er að vera Japani á Islandi? 18. nóvember var á dagskrá fyrirlestur JúHan D’Arcys, dósents í enskum bókmenntum, „Aðfæra mörkin“ Iþróttabókmenntir, hvað er það? Hinn 22. nóvember fjallaði Michael Svendsen Ped- ersen, lektor við Háskólann í Hróarskeldu um þá umræðu, sem farið hefur fram í Danmörku að undanförnu, um inntak tungumálanáms. Fyrirlesturinn nefndist: Sprogfagenes faglighed. Glimt af en aktuel diskussion i Danmark. Loks mun Hólmfríð- ur Garðarsdóttir, aðjúnkt í spænsku flytja fyrirlestur um evrópsk samstarfsverkefhi á tungumálasviðinu. Fyrirlesturinn verður fluttur 2. desember og ber yfirskriftina: Tungumálakennsla sem grundvöllur samvinnu og samkenndar í fjöltyngdri og fjöhnenningar- íegri Evrópu. Loks ber að geta þess, að mál- stofur um málvísindi eru haldnar að jafn- aði vikulega á kennslutíma. Upplýsingar um málstofurnar er að finna á heimasíðu stofnunarinnar. Samstarf við tungumálakennara StofnunVigdísar Finnbogadóttur er mikið í mun að stuðla að sem bestu samstarfi við tungumálakennara í landinu og því eru allar ábendingar um efni fyrirlestra og hugsanleg samstarfsverkefni vel þegnar. Stofnunin mun kappkosta að koma upp- lýsingum til tungumálakennara um það sem helst er á döfinni hjá stofnuninni. Unnið er að því að koma upp póstlistum eftir tungumálagreinum svo hægt sé að senda upplýsingar eftir því sem við á beint til tungumálakennara. A heimasíðu stofn- unarinnar er jafnframt að finna upplýsing- ar um það sem er á döfinni. Slóðin er: http: / / www. vigdis. hi. is Fagráð-verkefnisstjóri Fagráð fer með stjórn Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur, en það er skipað 5 full- trúum. Fagráð er kosið á ársfundi stofnun- arinnar til tveggja ára í senn. Eftirtaldir að- ilar eiga nú sæti í fagráði: Auður Hauks- dóttir, forstöðumaður, Oddný G. Sverris- dóttir, varaforstöðumaður, Gauti Krist- mannsson, aðjúnkt, Margrét Jónsdóttir, lektor og Matthew J. Whelpton, lektor. Verkefnisstjóri stofhunarinnar er Guðný G. Guðlaugsdóttir (gug@hi.is). Kynningarstarf Fagráð StofnunarVigdísar Finnbogadóttur vinnur nú að kynningarátaki bæði innan lands og utan á starfsemi og framtíðarsýn stofnunarinnar. A næstunni mun fara fram víðtækt kynningarstarf erlendis og er markmiðið að efla akademísk tengsl og leita eftir hðsinni þeirra sem leggja vilja stofnuninni hð. Stefnt er að því að koma á rannsóknasjóði Stofnunar Vigdísar Finn- bogadóttur í því skyni að stórefla tungu- málarannsóknir og renna styrkum stoðum undir starfsemi stofnunarinnar að öðru leyti. Fyrsta kynningin á stofnuninni er- lendis mun fara fram í Japan í nóvember n.k. og mun frú Vigdís Finnbogadóttir og forstöðumaður stofnunarinnar taka þátt í kynningunni í góðu samstarfi við send- herra Islands í Japan hr. Ingimund Sigfús- son. Fyrirhugað er að stofnunin verði kynnt í Danmörku, Frakklandi, Kanada Spáni og Þýskalandi á næstu misserum. 26

x

Málfríður

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.