Málfríður - 15.09.2002, Qupperneq 31

Málfríður - 15.09.2002, Qupperneq 31
máls hlýtur þannig að taka mið af því að auka skilning, skynjun og jafnvel nautn, að koma nemandanum inn í orðræðuna, inn í veröld tungumálsins, bjóða honum í hús skáldsins þar sem steinarnir tala. Og þá skiptir reyndar ekki máli hvort menn tala íslensku, ensku, frönsku, táknmál eða ann- að mál. Sigurður Ingólfsson. Hagnýta hornið ★ Hagnýta hornið ★ Hagnýta hornið Heimsþing alþjóðasamtaka tungu- málakennara Athygli tungumálakennara er vakin á heimsþingi alþjóðasamtaka tungumála- kennara (FIPLV), sem STÍL er aðili að. Það verður haldið í Rand Afrikaans Uni- versity, Jóhannesarborg, Suður-Afríku, 2,- 5.júlí næstkomandi. Yfirskriftin er: Identity And Creativity In Language Education. Fyrsta skráning stend- ur yfir fram í janúar 2003. Skipuleggjend- ur eru Anna Coetzee (aec@rau.ac.za) og Wilhelm van Rensburg (wajvr@educ- ur.rau.ac.za). Hægt er að nálgast umsókn- areyðublöð á: http://general.rau.ac.za/fiplv ★ ★ ★ Tungumálamiðstöðin í Graz European Centre for Modern Languages (ECML) Hlutverk Tungumálamiðstöðvarinnar í Graz er að efla og styðja við nám og kennslu í tungumálum í Evrópu. Starfsemi tungumálamiðstöðvarinnar felst m.a. í skipulagningu námskeiða eða vinnustofa (workshops) í Graz og víðar. Einnig er á vegum stofnunarinnar unnið að margvís- legum þróunar- og rannsóknarverkefnum á sviði tungumálanáms og tungumála- kennslu í tengslum við vinnustofur eða námskeið. Aðildarlönd geta almennt sent einn þátttakanda á hvert námskeið (vinnu- stofu) sér að kostnaðarlausu. Island gerðist aðili að Tungumálamið- stöðinni í Graz (ECML) hinn 1. janúar 1998 og er eitt 32 aðildarlanda. Tungu- málamiðstöðin er stofnun á vegum Evr- ópuráðsins og starfar á grundvelli sérstaks samkomulags við það. Miðstöðin var stofnuð árið 1994 að frumkvæði Austur- ríkis og Hollands. Nánari upplýsingar um hlutverk og starfsemi Tungumálamiðstöðvarinnar í Graz er að finna á heimasíðu hennar: www.ecml.at Einnig má þar finna dag- skrá, skýrslur frá vinnustofum og upplýs- ingar um útgefið efni og rannsóknir. ★ ★ ★ Frönskukennarar athugið! Vefur með fjölda gagnlegra slóða fýrir nemendur í frönsku: http://perso.wanadoo.fr/fle~ sitographie ★ ★ ★ Enskukennarar athugið! www.discoveryschool.com er síða þar sem þú getur útbúið þitt eigið kennsluefni við hæfi svo sem krossgátur, stafarugl, orðaleit og margt margt fleira. Það kostar ekki neitt að nýta sér þessa síðu en hún eykur fjölbreytnina í kennslunni. english-to-go.com er síða þar sem þú færð tilbúnar greinar fyrir ýmis getustig. Þessi síða er lokuð en þú getur gerst áskrifandi að henni á auðveldan hátt. 31

x

Málfríður

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.