Bæjarins besta - 09.12.1992, Qupperneq 1
gL FLUGLEIDIR ÍSAFJARÐARFLUGVELLI © 3000 3400 • S 3410 ATH! Á meðan á affermingu véla stendur er símsvari á. ÖU hljómtœki, heimilistœki og Kf sjónvörp á gamla genginu. , STIGA sleðar ájólalWoði' ^hólastíg 6 0 7326
ÓHÁÐ
FRÉTTABLAÐ
/
A
VESTFJÖRÐUM
AÐILIAÐ
SAMTÖKUM BÆJAR- OG
HÉRAÐSFRÉTTABLAÐA
MIÐVIKUDAGUR
9. DESEMBER 1992
49. TBL. • 9. ÁRG
Verðkr. 150,-
• GylliríS.ÚtgerðarfélagFlateyrarhf.,eiganditogaranshefurseltskipiðtilaðminnka • Húsnæði Hjálms hf. á Flateyri.
skuldir fyrirtækisins og er áætlað að hann fari frá Flateyri um áramót.
Útgerðarfélag Flateyrar hf:
Gyllir ÍS seldur til að grynnka á skuldum
Bolungarvík:
Lífæðin
í loftiö
-sjá bls. 4
Vestfirðir:
- skuldir fyrirtækisins ásamt skuldum Hjálms hf. á fimmta hundrað milljónir
ÚTGERÐARFÉLAG Flat-
eyrar hf. á Flateyri hefur
samkvæmt heimildum
blaðsins selt togara sinn Gylli
ÍS og hyggst kaupa í staðinn
Iínubát sem anna á hráefnis-
þörf fyrirtækisins ásamt línu-
bátnum Vísi sem lagt hefur
upp hjá Hjálmi hf. Ástæða
sölunnar er samkvæmt
heimildum blaðsins, mikil
skuldasöfnun en heildar-
skuldir Útgerðarfélags Flat-
eyrar hf. og Hjálms hf. munu
vera hátt í fimm hundruð
milljónir króna.
Ekki hefur fengist staðfest
hvert Gyllir hefur verið seldur
né heldur hvert söluverð hans
er, en áætlað söluverð ásamt
2.000 tonna þorskígildiskvóta
mun veranálægt 300 milljónum
króna. Þeirforsvarsmenn fyrir-
tækisins sem blaðið hafði
samband við vörðust allra
frétta en viðurkenndu að fyrir-
tækið ætti í rekstrarörðug-
leikum líkt og önnur sjávarút-
vegsfyrirtæki hér á landi. Ekki
náðist í framkvæmdastjóra
fyrirtækisins Einar Odd
Kristjánsson þar sem hann er
staddur í Reykjavík en
samkvæmt heimildum
blaðsins hefur fyrirtækið farið
út í miklar fjárfestingar vegna
fyrirhugaðar skelvinnslu og
m.a. keypt skelfiskbátinn Villa
Magg IS.
Heimildarmaður blaðsins
sagði að fyrirtækið skuldaði
mikið en það væri ekki verr
statt en mörg önnur fyrirtæki í
sjávarútvegi. Hann sagði
ennfremur að lítið sem ekkert
yrði um uppsagnir hjá fyrir-
tækinu, þrátt fyrir þessar
breytingar, því skelfiskvinnslan
þyrfti aukinn mannskap og ættu
því allir sem nú starfa hjá
Hjálmi hf. og Útgerðarfélaginu
að fá starf þar eða hjá frysti-
húsinu.
-5.
Sorpmálin í
brennidepli
- sjá bls. 8
ísafjörður:
Ný kirkja
vígð 1994?
- sjá bls. 2
Bolungarvík:
Spjallað við
Magnús
Hávarðar
-sjá bls. 13
Jarðgöng:
Framkvæmdir
á áætlun
- sjá baksíðu
Fjórðungssjúkrahúsið á ísafirði:
• Margrét og Sigríður með frændurna nýfæddu.
Fyrsta ísfirska glasabarnið
SAGT var frá þvi í síðustu viku að iyrsta glasabarnið sem fæðst hefði á Fjórðungssjúkrahúsinu væri komið í
heiminn. Stutt er á milli stórra verka því 6. desember fæddist fyrsta ísfírska glasabarnið. Það var drengur sem Margrét
Ósk Jónsdóttir og Sævar Óskarsson eiga. Hann fæddist 10 dögum fyrir timann, var 2985 g og 49 cm. Daginn áður 5.
desember eignuðust þau Sigríður Helena Smáradóttir og Hermann Óskarsson dreng sem var 4800 g og 53 cm. Það
merkilega er að hann fæddist einnig 10 dögum fyrir tímann og að þessir litlu sveinar eru bræðrasynir. Nú eru komin
97 börn á sjúkrahúsinu og stefnir hraðbyr í fæðingarmet. _
Jólabókasalan:
Jólabóka-
vinsældalistinn
Jólin nálgast og ísfirðingar
svo og aðrir Vestfirðingar eru
farnir að huga að jólagjöfum.
Bækur eru nú sem endranær
vinsælar jólagjafir. Við
höfðum samband við Bóka-
verslun Jónasar Tómassonar á
Isafirði til að forvitnast um
hvaða bækur væru vinsælastar
fyrir þessi jól. Vinsælda-
könnunin cr gerð um síöustu
helgi en síðan þá hefur mikið
verið verslað af bókum svo
listinn gæti hafa hliðrast til.
1. Alltaf til í slaginn 2. Hjá
Báru 3. Seld 4. Rósumál 5. Bak
við bláu augun 6. Ó fyrir
framan 7. Dansað í háloftunum
8. Ásgeir Ásgeirsson.
RITSTJÓRN S 4560 ■ FAX E 4564 - AUGLÝSINGAR OG ÁSKRIFT S 4560