Bæjarins besta - 09.12.1992, Blaðsíða 12
BÆJARINS BESTA' Miðvikudagur 9. Desember 1992
1 2
kynningar
oq (lujtamif
TEXTI: ATLI VIGFÚSSON
TEIKNINGAR. HÚLMFBlÐUB BJARTMARSDÓTTIR
Ponni og fuglamir er glæsi-
Ieg íslensk barnabók um lífs-
baráttu fuglanna í íslenskri
náttúru. Skemmtilegur texti
Atla Vigfússonar og vandaðar
litateikningar Hólmfríðar
Bjartmarsdóttur færa náttúru
landsins inn í barnaherbergið.
Einn fagran vordag gengur
drengurinn Ponni niður að
vatninu og gefur sig á tal við
fuglana sem segja honurn frá
lífi sínu og aðsteðjandi vanda-
málum. Drengurinn tekur
virkan þátt í að vernda var-
stöðvarnar fyrir mink og ref.
Þetta er hugljúf bók sem fræðir
börnin um líf fuglannaá lifandi
og skemmtilegan hátt.
Rebbi fjallarefur
SKJALDBORG hefur sent
frá sér bókina ;;Rebbi
fjalalrefur” eftir Helga
Kristjánsson og með
teikningum Róberts Schmidt.
HelgiKristjánssonfjallarhér
í söguformi um óblíða Iífs-
baráttu íslenska fjallarefsins.
Grenjaskyttur sjá til þess að
Rebbi fjallarefurmissirforeldra
sina ungur og þarf að bjarga
sér á eigin spýtur. Eins og segir
í bókinni: „Gamli refurinn er
mesti dugnaðarforkur og
hygginn. Hún er líka drjúg hún
lágfóta litla eftir að hún fór að
yfirgefa yrðlingana til veiða.
Hjónin eru samlynd og ráða
góðu svæði. Þríryrðlingar eru
mórauðir og einn verður
hvítur. Hann er langstærstur,
enda eftirlæti gamla refsins.
Þar að auki er hann frekur og
við systkini sín.”
é wmf$§ —
. - mL. Á
Á fik lik. W k'
Á A m W Á ■
/ Mú./ k
tt m wm
Sagan um Svan
Skjaldborg hefur sent frá
sér bókina „Sagan um Svan”
eftir Anders Jacobsson og
Sören Olsson, höfunda hinna
vinsælu bóka um Bert og dag-
bækurnar hans.
Svan er í fyrsta bekki í
skólanum. Hann er nú þegar
dálítið kvennagull. En það er
leyndarmál. Ef strákamir sem
Svanur þekkir kæmust að því
mundi hann deyja af smán.
Sagan um Svan er ætluð yngri
lesendunum. Fjörið og kímnin
er hvort veggja á sínum stað.
Svanur er sjö ára og ævintýri
hans í skólanum eru engu Iík.
Þetta er bók fyrir yngri
prakkara.
Dætur regnbogans
Það er vissara
að panta...
• Snitturnar
• Samlokurnar
• Langlokurnar
eða
• Hamborgarana
rnð nokkrum fyrimra, sérstaklega um helgar.
jSSÍ / Hafið þiðséð
Eigum allskonar / ÚFV&Hð Sif
lótí skóinn / konfektinu?
m
HAMRABORG HF.
HAFNARSTRÆTI 7 • SIMI 3166
SKJALDBORG hefur sent
frá sér bókina „Dætur
regnbogans” eftir Birgittu H.
Halldórsdóttur.
Dætur regnbogans heitir
nýjasta spennubók hún vetnsku
skáldkonunnarBirgittu H. Hall-
dórsdóttur. I þessari bók leiðir
Birgitta lesendur sína aftur í
aldir. Aðal söguhetjan,
Margrét er nauðug gefin sýslu-
manninum aðeins 16 ára að
aldri. Sagan lýsir baráttu
hennar við örlögin og ástina.
Dularfullt morð er framið á
prestsetrinu og hinn grimmi og
lostafulli böðull, Blóðugi
Bergur, kemur við sögu ásamt
Andrew, myndarlegum
Englendingi sem kemur
hjörtum kvennanna til að slá
hraðar.
Þessi nýjasta bók hinnar
vinsælu skáldkonu er hlaðin
spennu, dulúð og rómantík frá
upphafi til enda og lesandinn
leggur hana ekki frá sér fyrr en
að lokinni síðustu blaðsíðu.
Bækur bamanna
um dýrín
SKJALDBORG hefur sent
frá sér bækurnar „Bók
barnanna um dýrin” og „Bók
barnanna um fjölskyldur
dýranna” eftir Angelu Sayer
Rixon með teikningum eftir
Doreen McGuinnes.
Bækurnar eru lifandi og
skemmtilegar og ætlaðar til
að fræðabörnin um fjölbreyti-
leika dýralífsins á jörðinni.
Dýrunum og lifnaðarháttum
þeirra er lýst og teiknaðar lit-
myndir af 100 dýrum eru í
hvorri bók. Þessar bækur vekja
fögnuð allra barna sem hafa
áhuga á dýrum.
Horft til lands
SKJALDBORG hefursent
frá sér bókina „Horft til
lands” eftir Þorstein Stefáns-
son.
Þorsteinn er skáld og rit-
höfundur og var borinn og
barnfæddur árið 1912 að
Nesi í Loðmundarfirði austur,
en sá fjörður er nú kominn í
eyði. Lífsbaráttan í Loð-
mundarfirði var hörð í upp-
hafi aldar eins og víðast hvar í
dreifðum byggðum Islands og
oftskammtmilli lífsogdauða.
Ohjákvæmilegasettulífskjörin
í uppeldinu sitt mark á líf þessa
fólks sem kynntist þessari
baráttu, jafnvel þótt því tækist
að hefja sig yfir erfiðleikana
og sjá þá síðar á ævinni frá
öðru sjónarhorni. Þorsteinn
fluttist ungur til Danmerkurog
býr þar enn.
FULLIiUGAR Á
FIMBULSLÓÐUM
SVIIW SlVIliNOSSON
Fullhugar á
fimbulslóðum
FRÓÐI hefur sent frá sér
bókina „Fullhugar á
fimbulslóðum” - þættir úr
Grænlandsfluginu eftir Svein
Sæmundsson.
Bókin hefur að geyma frá-
sagnir af merkum þætti
íslenskrar flugsögu. Um langt
árabil hafa Islendingar stundað
flug til Grænlands og áttu þar
með rikan þátt í að rjúfa
einangrun þessa granna okkar í
vestri. Oft voru aóstæður í
Grænlandsfluginu ótrúlega
erfiðar, ekki sist í sjúkrafluginu
þegar teflt var á tæpasta vað
enda oft líf að veði.
Sveinn Sæmundsson hefur
ritað margar bækur. Hann er
þrautkunnugur því efni sem
hann fjallar um í bókinni enda
var hann um langt árabi 1 blaða-
fulltrúi Flugfélags Islands og
síðar Flugleiða.
Saga EM í
knattspyrnu
FRÓÐI hefur sent frá sér
bókina „Saga Evrópukeppni
landsliðaíknattspyrnu”eftir
Sigmund Ó. Steinarsson
blaðamann.
Evrópukeppni landslióa í
knattspymu hefur nú farið fram
alls níu sinnum. Keppnin hófst
árið 1958 og fyrsta úrslita-
keppnin fór fram í Frakklandi
árið 1960. Síðast fór úrslita-
keppnin fram í Svíþjóðá liðnu
sumri og lyktaði þá með ó-
væntum og eftirminnilegum
sigri Dana sem komust
„Bakdyramegin” inn í úrslita-
keppnina.
Höfundur bókarinnar Sig-
mundur Ó. Steinarsson, á að
baki langan starfsferil sem
blaðamaður. Hann hefuráður
sent frá sér nokkrar bækur, m.a.
sögu heimsmeistarakeppninnar
í knattspyrnu sem kom út árið
1990 og fékk þá mjög góðar
viðtökur.
FRÓÐI hefur sent frá sér
bókina „Lalli ljósastaur”
eftir Þorgrím Þráinsson en
þetta er fyrsta barnabók
höfundar sem er kunnur fy rir
unglingabækur sínar.
Aðalsöguhetja bókarinnar,
Lalli ljósastaur, er ellefu ára,
ósköp venjulegur strákur, sem
tekur þátt í prakkarastrikum
með félögum sínum og vinum.
Veröldhansbreytistsíðan allt
í einu þegar hann tekur að
stækka og verður rúmir þrír
metrar á hæð. Það er hreint
ekki svo auðvelt m.a. vegna
þess að það er ekkert auðvelt
að fá skó númer 49 og föt á
slíkan risa eru tæpast til.
BÆJARINS BESTA
Jólablað BB
kemur út
mánudaginn
21. desember
nœstkomandi.
Skilafrestur
auglýsinga er til
hádegis
miðvikudaginn
16. desember.