Bæjarins besta - 09.12.1992, Qupperneq 4
4
BÆJARINS BESTA ■ Miðvikudagur 9. Desember 1992
Óháð vikublað
á Vestfjörðum,
Útgefandi:
H-prent hf.
Sólgötu 9,
400 ísafjörður
8 94-4560
i 94-4564.
Ritstjóri:
Sigurjón J.
Sigurðsson
8 4277 &
985-25362.
Ábyr gð armenn:
Sigurjón J.
Sigurðsson og
Halldór
Sveinbjörnsson
8 4101 8e
985-31062.
Blaðamaður:
Margrét Björk
Arnardóttir
8 3675.
Útgáfudagur:
Miðvikudagur.
Prentvinnsla:
H-prent hf.
Bæjarins besta
er aðili að
samtökum
bæjar- og
héraðsfrétta-
blaða.
Eftirprentun,
hljóðritun,
notkun !yós-
mynda og
annars efnis er
óheimil nema
heimilda sé
getið.
Tónlistarskóli ísafjaröar:
Jólatónleikar á Isa-
firði og í Súðavík
Á VEGUM Tónlistarskóla
ísafjarðar verða í þessari
viku haldnir sex jólatón-
leikar.
Mánudagskvöldið 7. des-
ember sl. héldu „öldungar”
skólansLitlujól þar semleikið
var á hljóðfæri og notið
veitinga sem einn nemandinn
kom með.
I Súðavík verða jólatón-
leikar á fimmtudagskvöldið
10. desember kl. 20.00. Tón-
leikum nemenda verður slegið
saman við jólahátíð Grunn-
skólans og er dagskráin sam-
felld með tónlistar- og söng-
atriðum, upplestri, söngleik og
jólagríni.
Jólatónleikar á ísafirði
verða haldnir í hátíðasal
Grunnskóla Isafjarðar sem hér
segir:
Föstudagskvöldið 11. des.
kl. 20.30. Laugardag 12. des.
kl. 17.00. Sunnudag 13. des.
kl. 15.00 og sunnudag 13. des.
kl. 17.00. 130 mismunandi
dagskráratriði eru á tón-
leikunum fjórum og er ætlunin
að hverjir tónleikar verði
rúmur klukkutími að lengd.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill. -fima.
• Félagarnir Jón Axel og Hjalti.
Hlutavelta:
Leikskólinn í
Holti naut góðs af
TVEIR vaskir ungir sveinar sem heita Jón Axe! og Hjalti
héldu hlutaveltu í Grunnskólanum í Holti í Önundarfirði 8.
nóvember sl.
Aðsókn var mikil og seldist allt upp enda mikið um góða
muni og engin núll. Ágóðinn af hlutaveltunni sem var 8.000 kr.
var veittur til leikfangakaupa fyrir leikskólann í Holti og var að
sjálfsögðu vel þeginn.
-ma.
Bolungarvík:
Lífæðin
í loftið
•ný útvarpsstöð tekur til starfa
LÍFÆÐIN FM 101 fór í loftið í Bolungarvík sl.
fimmtudag. Forsvarsmaður þessarar stöðvar er
Þórður Vagnsson sem jafnframt er útvarpsstjóri.
Útsendingartími er hugsaður frá 20 til 24 á virkum
dögum til að byrja með en lengur um helgar.
Dagskrá stöðvarinnar
verður fjölbreytt og skemmti-
Ieg. Auk þess efnis sem starfs-
menn stöðvarinnar eru sjálfir
með má nefna að ætlunin er
að grunnskólanemendur sjái
um dagskrána á laugardögum
milli kl. 13 og 17. Leikfélagi
Bolungarvíkur hefur verið út-
hlutaður tími á sunnudögum
og svona mætti lengi telja
Til að auka enn á fjöl-
breytnina gefst þeim sem á-
huga hafa kostur á að leigja sér
tíma til útsendingar og munu
tæknimenn stöðvarinnar að-
stoða við útsendingu. Tíminn
kostar 1500 kr. Rekstur
stöðvarinnar er að mestu
greiddur með styrkjum frá
fyrirtækjum svo og með
auglýsingum.
Bryddað verður upp á þeirri
nýbreytni að í stað auglýsingar
gefst fyrirtækjum kostur á að
fá kynningu á fyrirtækinu og
• Þórður Vagnsson,
útvarpsstjóri Lífæðar-
innar.
starfsemi þess og munu þá for-
svarsmenn fyrirtækisins vera í
fararbroddi. Þórður vildi beina
því til þeirra sem áhuga hefðu
á að styrkja stöðina ýmist með
auglýsingum eða öðrum hætti
væri það velkomið og vel
þegið.
-ma.
ísafjörður:
sýnir í Slunkaríki
ÍSFIRÐINGURINN
Syala Sigurleifsdóttir mynd-
listarmaður opnar sýningu
á verkum sínum í Slunkaríki
laugardaginn 12. desember
nk. og mun sýningin standa
út desembermánuð eða til
31. desember nk.
Verkin á sýningunni er
unnin þannig að svart-hvítar
ljósmyndir eru stækkaðar og
litaðar með olíulitum. Hvert
verk samanstendur af fleiri
cn einni ljósmynd og eru
sumarljósmyndannanáttúru-
myndir, ættaðar héðan að
vestan.
Svala er fædd á ísafirði
árið 1950.Húnermyndlistar-
menntuð í Reykjavík, Osló,
Kaupmannahöfn, Denver og
New York og hefur sýnt ein
og tekið þátt í samsýningum
um árabil. Um Ijósmyndir
sínar hefur Svala látið fara
frá sér eftirfarandi orð: „I
stangveiði er þaö augna-
blikið sem er algerlega af-
gerandi og eins er mikilvægi
þess í tjósmýndun. Þvt stað-
hæfamargiraðeinaleiðin til
að læra ljósmyndun sé að
stunda stangveiði. Ef svo er
þá hlaut ég mína menntun í
ljósmyndun á þremur
stöðum; Bæjarbryggjunni,
Edinborgarbryggjunni og
Dokkubryggjunni sem
neðribæjarpúki á Isafirói.
Eg lærði ekki bara um
mikilvægi augnabliksins við
að húkka fiska heldur líka
um fagurfræði f iska og fugla.
Þótt ég vinni líka með Ijós-
myndir af fólki, og máli með
olíulitum á striga ýmislegt,
þá er eins og fuglar og fiskar
séu mér mikilvægari en aðrar
skepnur sköpunarinnar. Er
sennilega enn svona mikill
neöribæjarpúki t mér.” _s/y
Leiðarinn:
Elítan
Jólabókaútgáfan ber ekki með sér
samdráttareinkennin, semtröllríðaþjóðfélaginu. Þvert
á móti hafa útgefendur færst í aukana. Islensk
bókatíðindi 1992 eru blaðsíðufleiri og litskrúðugri en
nokkru sinni fyrr.
Nýir höfundar skeiða fram á ritvöllinn; rykið dustað
af þeim gömlu. Fjölbreyttar myndir og orðavaðall
þekja glansandi hlífðarkápur. Líkt og straumþung elfur
flæöa tímamótaverkin hvert af öðru yfir markaðstorgin.
Svo segja útgefendur að minnsta kosti. Margir metrar
af skrautskjölum hafa bæst í safn bókaþjóðarinnar.
Bækur eru vinsælar til gjafa. Þess vegna telst það
viðburður ef bók kemur út á öðrum árstíma en fyrir jól,
þegar gjafabylgjan í tilefni hátíðarinnar skellur yfir. Þó
ekki væri nema af þessum sökum einum, er ofur eðlilegt
að margar bókanna sjái vart meira en dagsins ljós og
drukkni síðan í flóðinu mikla. Aðrar ná að fljóta. Oftar
en ekki bjargast þær á mætti auglýsingarinnar.
Hin síðari ár hafa fáeinar bækur hlotið náð fyrir
augum elítunnar ár hvert og verið tilnefndar til
bókmenntaverðlauna á þeim tíma þegar söluvertíðin
stendur sem hæst. Þetta sölutrikkhefur mælst misjaíhlega
fyrir og víst er um það, að sjaldan hafa farið saman
útnefning og afrakstur.
Afhending bókmenntaverðlaunanna sjálfra bíður
aftur á móti fram yfir áramót uns bókamarkaðamir, þar
sem tímamótaverkin frá árinu áður fást á kvartvirði,
opna salarkynnin.
Þessa dagana verður ekki skrúfað frá útvarpi eða
dagblaði flett án þess að í eyrum glymji eða fyrir augu
beri harmakvein elítunnar yfir þeirri ósvinnu stjóm valda
aö ætla að skattleggja bókaútgáfu til jafns við aðrar
listgreinar eins og til dæmis tónlist. Af orðum elítunnar
má ætla að þar með leggist bókaútgáfa af á íslandi.
Menning þjóðarinnar líði undir lok og innan tíðar
verði svo komið fyrir bókaþjóðinni víðfrægu að hún
þekki ekki munin á bókþrykki og vídeóspólu.
Hvað sem líður skattlagningu á bækur eða ekki þá
er matið sem opinberast í harmagráti elítunnar móðgun
við íslenska alþýðu. íslensk alþýðuheimili hafa í
gegnum aldir aldrei látið þrengingar aftra sér frá þ ví að
verða sér úti um bók svo fremi að hún þyki þess virði
að eignast hana.
Skoðanakannanir sína að enda þótt afstaða
alþýðunnar og elítunnar til bókmennta fari saman í
sumum tilfellum þáer himinn og haf þar á milli í öðrum.
Það hlýtur að vekja undrun þegar skáld eins og Tómas
Guðmundsson kemst ekki á blað meðal bestu skálda
þjóðarinnar, að mati elítunnar, og Davíð Stefánsson er
langt niöri í rassi! Að því ógleymdu aó Passíusálmamir,
þjóósöngurinn og allur skáldskapur Einars Ben eru
leiðinlegustu og ofmetnuðustu verk sem rituð hafa
verið á íslenska tungu eftir því sem þessir sjálfskipuðu
menningarvitar telja.
Menn geta svo velt því fyrir sér hvort er hættulegra
íslenskri tungu nokkurra krónu hækkun á bókum eða
ítroðsla af því tagi, sem hér hefur verið drepið á, í
æðstu menntastofnunum landsins.
s.h.