Bæjarins besta - 09.12.1992, Side 6
6
BÆJARINS BESTA • Miðvikudagur 9. Desember 1992
Frá S.V.F.I:
Varasamur skófatnaður barna
SLYSAVARNAFELAGI
Islands hefur borist ábending
af varasömum kulda-
stígvélum barna frá starfs-
fólki leikskóla.
Um er að ræða kuldastígvél
með sóla úr TVC-plasti. Við
nánari athugun kemur í ljós að
plastsólinn harðnar í frosti og
verða þessi kuldastígvél mun
hálli en aðrir sólar sem inni-
halda gúmmíblöndu. Sá at-
burður gerðist í síðustu viku
að 4 ára stúlka lærbrotnaði og
má rekja slysið til þess skó-
fatnaðar sem hún var í þegar
slysið gerðist.
Slysavarnafélag íslands vill
koma þeim tilmælum til
foreldra og forráðamanna
barna að vanda val á skó-
fatnaði barna og hafa í huga
að í þeim leynist ekki slysa-
gildrur. Nánari upplýsingar
veitir Herdís L. Storgaard í
síma 91-627000. -s/f
FRAMHALDSSKOLI VESTFJARÐA
PÓSTHÓLF 97 - 400 ÍSAFIRÐI
FUNDUR:
Þarfir atvinnulífs fyrir
starfsnámsbrautir
Iframhaldi afráöstefnu 28. nóv. sl. veróur
haldinn fundur um þetta sama efni í 9.
kennslustofu á neóri hæó í bóknámshúsi
Framhaldsskóla Vestfjarða næstkomandi
fimmtudagskvöld 10. desemberkl. 20.00.
Allt áhugafólk velkomió.
Skólameistari.
J i
II* Hn
• Þingeyrarkirkja.
| Kirkja:
Til sölu
Til sölu er Ford Escort 1600L, 3ja dyra,
árgerð 1985. Ódýr og góóur bíll.
4 ný nagladekk fylgja.
Upplýsingar gefur Halldór í síma
4560 eöa 4101 í matartímum.
Askrifendur
að Bæjarins Tbesta,
sem fá blaðið sent í pósti athugið!
Áskriftir utan Vestfjarða* verða með nýju fyrirkomulagi eftir
áramót. I því felst að þar sem blaðið er nú selt, auk verulegrar
hækkunar póstburðargjalda, að áskriftargjöld koma til með að hækka
frá því sem var er áskrifendur greiddu einungis burðargjald á sex
mánaða fresti. Hér eftir greiðast þær áskriftir mánaðarlega.
Nú verður áskriftargjald innanlands kr. 150,- pr. eintak sé sendur
gíróseðill fyrir gjaldinu en sé skuldfært á greiðslukort er gjaldið kr.
135,- pr. eintak.
Áskriftargjald fyrir erlendar áskriftir hækkar einnig verulega,
aðallega vegna hækkaðra burðargjalda. Nánari upplýsingar um
áskriftargjöld erlendis fást á afgreiðslu blaðsins.
Vegna alls þessa hefur verið ákveðið að allir þeir sem hafa verið í
áskrift utan Vestfjarða skuli endurnýja áskrift sína með símtali eða
bréflega fyrir áramót. Þeir sem gera það ekki falla sjálfkrafa út úr
áskriftarkerfi blaðsins. Slminn er 94-4560 og faxnúmerið er 94-4564.
Nauðsynlegt er að með beiðni urn áskrift fylgi kennitala og
símanúmer áskrifanda.
* ítrekað er að ofangreint gildir um alla þá sem hafa fengið
blaðið sent í pósti. Þeir sem fá blaðið póstsent til staða á
Vestfjörðum þar sem það er ekki borið út þurfa einnig að
endurnýja áskrift sína.
BÆJARINS BESTA
Fundur um sameiningu sveitafélaganna:
Reynslusveitar
félög mikilvæg
FUNDUR um sameiningu
sveitafélaganna var haldinn
sl. þriðjudag. Ekki var
neinnar niðurstöðu að
vænta af fundinum heldur
var meginefni hans að ky nna
aðilum sveitarfélaganna
áfangaskýrslusveitarfélaga-
nefndar sem ber nafnið
„Aukið hlutverk sveitar-
félaga.” Formaður nefnd-
arinnar Sigfús Jónsson fór í
gegnum skýrsluna og kynnti
hana fundarmönnum.
I henni kemur m.a. fram
að ekki er gert ráð fyrir að
sameiningtakigildi fyrren 1.
janúar 1998 að undan-
gengnum kosningum og
skoðanakönnunum meðal
íbúanna. í skýrslunni eru
gerðar tillögur um umdæmi,
verkaskipíingu ríkis og
sveitarfélaga, tekjustofna,
reynslusveitarfélög og að-
gerðir ríkisvaldsins. 1
skýrslunni kemur fram að
stofnun reynslusveitarfélaga
sé mikilvæg leið til að efla
sveitarstjómarstigiöáíslandi.
Þau sveitarfélög sem vilja
gegna stöðu reynslusveitar-
félaga í 4 ár frá 1994-1998,
verða að leggja inn umsókn
þess efnis.
Hlutverk reynslusveitar-
félaga er m.a. að taka við
nýjum verkefnum, þau hljóta
meira frelsi í ákvarðanatöku,
geri tilraunir með nýtt
rekstrarfyrirkom ulag og þar
fram eftir götunum.
Fundurinnáþriðjudaginn var
önnur tilraun til fundarhalda
um þessi mál og hvorki nú né
áðurkomustfulltrúarsveitar-
félagannahinum megin heiða
á fundinn sökum færðar, þar
sem hann var ekki haldinn á
mokstursdegi. -ma_
Aðventu-
samkomur
Aðventusamkomur í
Þingeyrar- og Holtspresta-
kalli verða eins og hér segir:
Miðvikudaginn 9. desember
áMýrum kl. 21.00 Sunnudaginn
13. desember á Þingeyri Mið-
vikudaginn 16. desember á
Flateyri kl. 21.00 Sunnudaginn
20. desember í Holti kl. 15.00
Á dagskrá verður meðal
annars kórsöngur og einsöngur,
talað orð og fermingarbörn
munu aðstoða. Sr. Gunnar
Björnsson. _ma
Bolungarvík:
Vélvirkinn með um-
boð fyrir Merkúr hf.
FRÁ OG með 1.
desember síðastliðnum
mun Vélvirkinn sf. Ilafnar-
götu 8 í Bolungarvík sjá um
sölu- og þjónustuumhoð á
Vestfjörðum fyrir fyrir-
tækið Merkúr hf. í Reykja-
vík.
Merkúrhf. flyturínn vélar
pgtæki s.s. Yamaha vélsleða,
mótorhjói og utanborðs-
mótora. Þá má nefna báta-
vélar, rafstöðvar, dælur og
smá-vinnutæki frá Yanmar
auk þungavinnuvéla frá
Aveling Barford ogHyundai.
Til að byrja með mun Vél-
virkinn leggja höfuðáherslu
á Yamaha vélsleðana, enda
er vetur að ganga í garð og
sala á vélsleðum að fara af
stað og verðursýningarsleði
á staðnum.
s/f
Félag opinberra starfsmanna á Vestfjörðum:
Mótmælir aðför að launafólki
FUNDUR Félags opinberra
starfsmanna á Vestfjörðum
var haldinn 27. nóvember sl.
Fundurinn mótmælti harð-
lega þeirri aðför að launa-
fólki sem felst í áformum ríkis-
valdsins um að flytja skatta
af atvinnurckendum yfir á
launafólk.
I þessu tilfelli er sérstaklega
bent á fyrirhugaðan 14%
virðisaukaskatt á húshitun í
landinu. í fréttabréfi frá
félaginu segir að skattur þessi
geri ýmsar byggóir í landinu,
sem nota innlcndan orkugjafa,
nær óbyggilegar. „Þrátt fyrir
það, að byggðir þessar skili
þjóðarbúinu hvað mestum
tekjum.“
J - mn
Vilt þú fá fréttir úr heimahögum?
- Eru búferlaflutningarframundan?
Hvernig væri að gerast áskrifandi að bæjar- og/eða héraðsfréttablaði?
Skagablaóid
Akranes og nágrenni
Vikublað, fimmtudaga. Póstáskr. kr. 150 á
tbl. S: 93-12261, 93-11397 fax: 93-13297
FJflRÐflR
ptetumm
Hafnarfjörður og nágrenni
VikublaO, fimmtudaga. Póstáskr. kr. 11(1 á
tbl. S: 91-651945, 91-651745 fax: 91-650745
rrn
I
Vestmannaeyjar
Vikublað, Finimtudaga. Póstáskr. kr. 3.400 á
ári.S: 98-11210 fax: 98-11293
Suðurnes
Víkurfrcttir VikublaO, nmmtudaga. I’óstáskr. kr. 3.300 a
ári. S: 92-14717, 92-15717 fax: 92-12777
RU5TRI
Austurlandskjördæmi
VikublaO, fimintudaga. Póstáskr. kr. 380 a
mán. S: 97-11984 fax: 97-12284
B.-EjARINSBESTA
Vestfirðir
VikublaO, mifl-
vikudaga.
S: 94-4560,
94-4570
fax: 94-4564
Eystra-
horn
A-Skafta-
fellssýsla
Vikubl. Fimmtd.
Póstáskr. kr. 105
átbl.
S: 97-81505,
fax: 97-81821
(Pósth. Hiifn)
Norðurland vestra
VikublaO, miflvikudaga. Póstáskr. kr. 110 a
tbl. S: 95-35757, 95-36703, fax: 95-36162
BORGFIRÐINGUR
Borgarnes og Borgarfjörður
HálfsmánaOarl. fimmtudaga. Póstáskr. kr.
1.500 bálft ár. S: 93-71312 fax: 93-72012
Vestmannaeyjar
VikublaO, fóstudaga. Póstáskr. (ireiflsla a
flutningsgj. S: 98-11500 fax: 98-11075
kurUaðið
Húsavík og nágrenrii
VikublaO, fimmtiidaga. l’óstáskr. 120 kr. a tbl.
S: 96-41780 fax: 96-42211
1 U 1; I Vik,"i:
Olafsfjörður
r’ikublafl, fimmludaga. Póstáskr. kr. 140 átbl.
96-62558, 96-62370, fax: 96-62630
Dalvík og nágrenni
\ ikublafl, fimmtudaga. Póstaskr. kr. 500 a
inánuOi. S: 96-61476, fa.x: 96-61099
Austurland
VikublaO, miflvikudaga. Póstaskr. kr. 1.050
ársfjórOI. s: 97-71750, 97-71571 fax: 97-71756
Austurland
Samtök bæjar- og héraðsf r átta b laða