Bæjarins besta - 09.12.1992, Page 10
1 0
BÆJARINS BESIA • Miðvikudagur 9. Desember 1992
Bóka-
kynningar
FRÓÐI hf. hefur sent frá
sér bókina „Rósumál” eftir
Jónínu Leósdóttur, blaða-
mann og rithöfund. Bókin
fjallar um líf og störf Rósu
Ingólfsdóttur, sem löngu er
landsþekkt sem skemmti-
kraftur og listamaður. Hún
er einnig þekkt fy rir að segja
skoðanir sínar á mönnum og
málefnum umbúðalaust.
Rósa Ingólfsdóttir segir í
bókinni frá æsku sinni og upp-
vexti í Reykjavík. Það var á
hinum frægu Bítlaárum þegar
strákar gengu í támjóum skóm
og stelpurnar voru með
„túberað” hár og lögðu allt í
sölurnar til þess að tolla í
tískunni. A sumrin stunduðu
allir unglingar sem vettlingi
gátu valdið ýmis störf og Rósa
var m.a. gengilbeina norður í
hinni rómantísku Mývatns-
sveit.
Rósa greinir einnig frá
störfum sínum hjá Sjónvarpinu
og koma þar m.a. hinar frægu
„dillibossaauglýsingar”hennar
við sögu. Rósa segir ekki
aðeins frá ævi sinni, störfum
og ástum í bókinni. I stuttum
milliköflum milli aðalkafla
bókarinnar rekur hún skoðanir
sínar á öllu milli himins og
jarðar og þá ekki síst á jafn-
réttismálum og samskiptum
kynjanna. Og þar talar hún
ekkert rósamál.
Puntrófur og
pottormar
Puntrófur og pottormar
nefnist barnabók sem útgáfu-
fyrirtækið Fróði hf. hefur
nú gefið út. Bókin er eftir
Helgu Möller og er þetta
hennar fyrsta bók.
Puntrófur og pottormar
fjallar um ósköp venjulega
krakka og ævintýri þeirra;
stelpur, sem finnst gaman að
leika sér í mömmuleik,
drullumalla og hengja á sig
perlufestar þegar þær fara í af-
mæli, og stráka sem fara í
indíánaleik og fótbolta.
Þegar Lísa, sem er aðalsögu-
hetja bókarinnar, fer í sumar-
bústað með frænku sinni
kynnist hún pottormum sem
finnst í meira lagi gaman að
stríða stelpu úr Reykjavík og
gefa henni m.a. kræsingar sem
fáir hafa prófað. Og það gerist
margt á einu sumri. Það er t.d.
hægt að trúlofast þótt maður
sé ungur og ef ekki er farið
varlega geta sumir leikir endað
á slysadeildinni.
Bak við bláu augun
FRÓÐI hf. hefur gefið út
unglingabókina „Bak við
bláu augun” eftir Þorgrím
Þráinsson. Þetta er fjórða
unglingabók Þorgríms en
áður hafa komið út
Di^utn mar^t ^aÍde^t tiijóiatj/ja^a, t.d. lin
D^^j,Uau.t^ íox, á wrðifirá ír. 6.290, -
í&ðurlansía fjrá ír. 1 .490,- sat/n náttftatnað otj/
maiyitfá/ra affadd&tj/um otj/tj/óðum o-örum.
AthoLpið/ Dpifi iau.ýarc/aý tiií/18.
Zerið wiirOmin.
bækurnar „Með fiðring í
tánum”, „Tár, bros og
takkaskór” og „Mitt er þitt”
og hafa þær bækur fengið
mjög góðar viðtökur, bæði
hjá gagnrýnendum og les-
endum.
Allar hafa bækurnar orðið
metsölubækur og hlaut Þor-
grímur m.a. Barna- og
unglingaverðlaun Reykja-
víkurborgar árið 1990 og
Menningarverðlaun Visa nú í
ár. Bókin „Bak við bláu augun”
fjallar um núnema í mennta-
skóla. Það reynast töluverð
viðbrigði fyrir flesta
unglingana þegar menntaskóla-
námið hefst og þeir takanámið
misjafnlega alvarlega.
Unglingamireru afskaplegaó-
líkir en flestir hafa þeir
margvísleg áhugamál og eru í
meira lagi uppátektarsamir.
§vamFÍkwí§
HUGSAÐUPPHÁTT
Svavar Gests
hugsar upphátt
FRÓÐI hf. hefur sent frá
sér bókina „Hugsað upphátt”
eftir Svavar Gests og er um
að ræða æviminningar hins
kunna skemmtikrafts og út-
varpsmanns sem hann hefur
sjálfur skráð.
I upphafi bókarinnar segir
S vavar frá viðbrögðum sínum
þegar hann situr fyrir framan
lækni og fær úrskurð um að
hann sé meó krabbamein.
„Svitinn spratt útáandliti mínu
og hugurinn þaut með
eldingarhraða yfir allt ævi-
skeið mitt,” segir hann í
bókinni.
Svavar hefur frá mörgu að
segja. í upphafi bókarinnar
rekur hann erfið æskuár sín frá
því honum var komið í fóstur
hjá fólki, sem honum leið iila
hjá, uns hann komst til fóstur-
foreldra sem sýndu honum
mikla ástúð og umhyggju.
Svavar var um tíma einn um-
svifamesti hljómplötuút-
gefandi landsins og rekur hann
þau störf í bókinni auk þess
sem hann segir frá tónlistar-
ferli sínum, þátttöku sinni í
félagsmálum en Svavar hefur
m.a. átt sæti í alþjóðastjórn
Lionshrey fingarinnar og einnig
hefur hann verið mjög virkur í
félagsstörfum tónlistarmanna.
S vavar Gests er þekktur fy rir
leiftrandi frásagnarhátt sinn og
það að sjá spaugiiegar hlið-
amar á lífinu og kemur það vel
fram í bókinni.
Furðuflug
FRÓÐI hf. hefur gefið út
bókina „Furðuflug” eftir
bandaríska rithöfundinn
Stephen King. Bókina, sem
nefnist „The Langoliers” á
frummálinu, þýddu þeir Karl
Birgisson og Guðni
Jóhannesson. Þetta er
áttunda bókin eftir Stephen
King sem út kemur á íslensku.
Stephen King er tvímæla-
laust einn vinsælasti spennu-
sagnahöfundur í heimi um
þessar mundir og bækur hans
seljast jafnan í risavöxnum upp-
lögum og eru á metsölulistum
viku eftir viku þegar þær koma
út. Kvikmyndir hafa verið
gerðar eftir mörgum sagna
hans og má minna á sem dæmi
myndina Duld, sem nýlega var
sýnd á Stöð 2 og Óskarsverð-
launamyndina Eymd sem sýnd
var hérlendis eigi alls fyrir
löngu.
FRÓÐI hf. hefur gefið út
bókina „Út í hönd” eftir
dönsku skáldkonuna
Synnöve Söe og er í íslenskri
þýðingu Steinars J. Lúðvíks-
sonar. I>etta er önnur bók
Söe sem kemur út á íslensku
en í fyrra gaf Fróði út bókina
„í tætlum”.
Sunnöve Söe er tæplega
þrítug. Þegar fyrsta bók hennar
kom út í Danmörku fyrri
nokkrum árum vakti hún gífur-
lega athygli og seldist í stærra
upplagi en títt er um bækur
þarlendis. Bókin „Út í hönd”,
sem heitir á frummálinu „No
Credit” varð einnig metsölu-
bók og hefur verið þýdd á mörg
tungumál.
Sögusvið bókarinnar er lítið
veitingahús í New York þar
sem lífið gengur sinn vana-
gang en eigi að síður er
veitingahúsið heimurinn í
hnotskurn. Aðalsöguhetjan er
gengilbeinan Coco sem
dreymir um að verða leikkona.
Inn í hversdagsleika veitinga-
hússins kemur síðan ungur,
heimilislaus drengur sem
fólkið, og þá ekki síst Coco,
tekur miklu ástfóstri við. Hann
tengist fólkinu sterkum til-
finningaböndum og opnar því
sýn til þeirrar nöturlegu
veraldar sem hann lifir í.
Taugastríðið
FRÓÐI hf. hefur sent frá
sér bókina „Taugastríðið”
eftir breska rithöfundinn
Ruth Rendell í íslenskri
þýðingu Jónínu Leósdóttur.
Þetta er önnur skáldsagan
eftir Ruth sem kemur út á
íslensku en Fróði hf. gaf út
bókina „Dauðadúkkan” í
fyrra.
Ruth Rendell er einnig
kunnasti spennusagnahöfundur
Breta og hefur henni verið líkt
við hinn fræga höfund Agöthu
Christie. Fjölmargir kvik-
myndir og sjónvarpsmyndir
hafa verið gerðar eftir sögum
hennar og hafa m.a. verið
sýndar í íslensku sjónvarps-
stöðvunum.
Mamma ég var
kosinn
ÖRN og Örlygur hf. hefur
sent frá sér bókina „Mamma
ég var kosinn - pólitíska
reynslusögu”eftirGuðmund
Einarsson fyrrverandi
alþingismann.
Guómundur Einarsson
þekkir veröld stjórnmála af
eigin reynslu sem fyrrum
alþingismaður, þingflokks-