Bæjarins besta - 09.12.1992, Side 13
RÆJARINS BESTA ■ Miövikudagur 9. Desember 1992
13
Magnús Hávarðarson í léttu spjalli:
„Við eigum fullt af
hæfileikaríku fólki“
MAGNÚS Hávarðarson heitir viðmælandi blaðsins. Hann
er eigandi Víkurbæjar sem er skemmtistaður í Bolungarvík
og einnig hefur hann verið iðinn við gítarinn í gegnum
tíðina. Blaðið vildi forvitnast örlítið meira um
tónlistarmanninn Magnús, hvað væri á seyði í Bolungarvík
og hvað Bolvíkingar gerðu sér til skemmtunar um jólin.
Fyrst var hann spurður hvað væri um að vcra hjá honum á
næstunni.
,,Það verður heilmikið að
gerast á næstunni. Næstu helgi
á ég von á hljómsveitinni X-
rated með Richard Scobie í
fararbroddi.Þeirverðahjámér
á föstudagskvöldið með dans-
leik. Föstudaginn 18.desember
byrjaégmeðjólaglögg og 19.
desember á að reyna að skapa
smá jólastemmingu með við-
stöddum.
Hátindurdesembermánaðar
verður svokölluð Skamm-
degisgleði. Við reyndum þetta
í fyrra og tókst mjög vel til.
Við höfðum samband við fólk
sem við vissum að kynni að
spila og syngja, ýmist þekkta
eða óþekkta listamenn, og því
boðið að vera með. Þátttaka
var mjög góð og húsið fullt á
sýningunni sjálfri. Við á-
kváðum að endurtaka leikinn
og á annan í jólum verður
önnur sýning.
Ég vil benda fólki sem hefur
áhuga á að vera með hvort
sem það vill syngja, spila, fara
með ljóð eða hvað sem það
vill gera, á að hafi samband
við mig sem fyrst. A ára-
mótunum ætlar B.GFlokkur-
inn að halda uppi fjörinu og
fljótlega eftir áramótin hef ég
hugsað mér að koma upp fyrir-
tækjakeppni í karaoke.
Skipulagningin er ekki komin
á hreint en þetta verður allt
auglýst síðar. Einhvern tíma á
næstunni ætla ég að gefa fólki
kost á að fá sjálft sig tekið upp
í karaoke. Það hefur mikið
verið spurt hvort þetta sé hægt
og ég ætla að verða við þessum
óskum. Hvað viðkemur
rekstrinum sjálfum er þetta
mjög sveiflukennt en í heildina
litið gengur þetta alveg ágæt-
lega. Launin eru að vísu ekki
mjög há en viðunandi.”
- Hvað viltu segja um
skemmtanalíf á Vestfjörðum?
„Ég myndi segja að breiddin
í skemmtanalífinu á Vest-
fjörðum hafi aukist gífurlega á
síðustu árum. A Isafirði eru
dansleikir, á Vagninum á Flat-
eyri er mikið um lifandi tón-
list, ég er með karaoke, pöbba
og dansleiki svo það er af nógu
að taka. Fjölbreytnin jókst
einnig mjög mikið með
sýningunni í Hnífsdal „Bara
Gaman.” Ég tel að með því
höfum vió Vestfirðingar sýnt
það og sannað að við þurfum
ekki að fara til Reykjavíkur til
að fá skemmtanafíkn okkar
fullnægt. Það er alltaf nóg um
að vera hér.”
- Er tónlistarlífið í Víkinni
blómlegt?
„Já ég myndi segja það. Ný-
lega var stofnað dansband í
Víkinni, Víkurbandiö. Með-
limir bandsins eru nokkrir al-
kunnir Bolvíkingar meðal
annarra Olafur Kristjánsson
bæjarstóri og Jónmundur
Kjartansson aðstoðaryfir-
lögregluþjónn. Hljómsveitin
spilar blandaða danstónlist og
virðist ætla að ganga vel. Það
var verið að fara af stað með
nýja útvarpsstöð í Víkinni og
ég vil nota tækifærið og óska
Þórði Vagnssyni og öðrum
Bolvíkingum til hamingju með
þetta skemmtilega framtak.”
- Hvað með tónlistar-
manninn Magnús Hávarðar-
son, hvað er hann að bralla
þessa dagana?
„Ég er alltaf að reyna að
leggja þetta á hilluna en ég
byrja alltaf aftur. Ég var alltaf
í hljómsveitum hérna einu
sinni, hætti í nokkra mánuði,
byrjaði aftur og þannig hefur
þetta gengið. Gítarinn lokkar
mann alltaf til sín aftur svo
það er erfitt að hætta. Eg hef
gert svolítið af því aö spila á
pöbbnum í Víkinni og hef
fengið með mér fólk eins og
Pálínu Vagns og Kalla Hall-
gríms og það hefur lukkast
ágætlega. Núna er ég með-
limurí Víkurbandinu svoþetta
loðir við mann. Ég er mikill
blúsáhugamaður og er mjög
hrifinn af þessu áhugafélagi
sem var verið að stofna um
djass- og blústónlist. Ég vona
að félagið eigi eftir að skila
góðum árangri og verði öllum
til gagns og gamans. Ég hef
hlustað lítið á djass en þar
sem ég leigi á neðri hæðinni
hjá Olafi bæjarstjóra kemst ég
ekki hjá því að heyra djass
þegar gripið er í píanóið og
það er besta reynsla mín af
djassi. Það er mjög gaman að
heyra tekið í hljóðfæri af besta
djassara Bolungarvíkur.
Að lokum vil ég segja við
Vestfirðinga að það hefur sýnt
sig trekk í trekk fyrst á Skamm-
degisgleðinni hjá mér í fyrra
og svo Hnífsdalsskemmtunin
núna að við eigum fullt af
hæfileikaríku fólki sem hægt
er að virkja. Ég tel það sér-
staklega mikilvægt að virkja
unga fólkið sem er duglegt og
hefur vilja til að spila og gera
það vel. Ég vil endilega gefa
fólki tækifæri á að koma fram
og vil að fólk hafi samband
við mig ef það vill reyna með
sér á tónlistarsviðinu. Ég er
alltaf tilbúinn í viðræður,”
sagði Magnús að lokum í
spjalli við blaðið.
-ma.
Opinn fundur með lögreglustjóra á Flateyri:
Almenningur er augu
og eyru löggæslunnar
MANUDAGS-
KVÖLDIÐ 7. des-
ember síðastliðinn
boðaði Kiwanis-
klúbburinn I>orfinnur
á Flateyri til opins
borgarafundar um
fíkniefnavandann og
löggæslumál á Flateyri.
Frummælendur á
fundinum voru þeir
Ólafur Helgi Kjart-
ansson, lögreglustjóri
og Hlynur Snorrason lög-
reglufulltrúi.
Gísli Valtýsson forseti
Ki wanisklúbbsins setti fundinn
og Guðmundur Hagalínsson
kynnti gestina en auk frum-
mælendanna voru þeir Jón-
mundur Kjartansson yfirlög-
regluþjónn og Guðmundur
Fylkisson lögreglumaðuráísa-
firði gestir fundarins. Olafur
Helgi hóf mál sitt á því að
tíunda hin ýmsu störf lög-
reglunnar og benti á að
símsvari lögreglunnar hefði
verið lítið notaður, hvort sem
það væri til góðs eða ills.
Hlynur Snorrason kynnti og
sýndi hin ýmsu tól og tæki
fíkniefnanotenda og útskýrði
fyrir fundarmönnum hin ýmsu
einkenni samfara fíkniefna-
notkun.
Ýmsar fyrirspumir komu úr
sal að lokinni framsögu þeirra
Olafs Helga og Hlyns. Meðal
annars um ráðningu héraðs-
lögreglumanns og hver starfs-
skilyrði væru. Olafur Helgi
svaraói því til að illa gengi að
fá nokkurn til verksins, og að-
staða væri fyrir hendi en launin
lág. Þá var spurt hvernig og
hvar viðskipti með fíkniefni
færu fram. Hlynur fræddi
fundarmenn um að aðkomu-
leiðirnar væru með öllu móti
og viðskiptin færu fram nánast
hvar sem er, og því þyrfti fólk
að vera á varðbergi, hvar sem
það væri statt.
Um framtíðarskipan lög-
gæslu á staðnum taldi Ólafur
Helgi fullvíst að með tilkomu
jarðganganna myndi allt
breytast til batnaðar og mun
auðveldara yrði að eiga við
löggæslu, bæði vestan heiðar
jafntsemíBolungarvíkoghvort
sem um væri að ræða sumar
sem vetur.
Talsverðar umræður urðu
um atburði og blaðaskrif
undanfarinnaviknaogvarJón-
mundur Kjartansson yfirlög-
regluþjónn spurðu um hvert
væri raunverulegt ástand áFlat-
eyri í dag. Hann taldi að öll
umræða væri til góðs ef hún
færi ekki úr böndunum eins og
var eftir skotárásina sem var á
staðnum fyrir stuttu. Jón-
mundur taldi ástandið orðum
aukið og væri gott í dag. Einnig
sagði hann samstarf við
skemmtanahaldara og allan
almenning væri í góðu lagi, en
allstaðar væri hægt að finna
svarta sauði sem ítrekað
útveguðu lögreglunni atvinnu.
Fyrirspurn kom úr sal um
hvort lögreglan sinnti vel for-
vörnum t.d. varðandi ölvunar
og hraðaksturs en lægi ekki í
leyni til að taka fólk. Jón-
mundur sagðist ekki biðja sína
menn að liggja í leyni en það
væri í góðu lagi, því það væru
ökumenn sem taka áhættuna
með því að aka í óökufæru
ástandi.
í lok fundarins hvatti Bjöm
Hafberg skólastjóri foreldra
til að gefa börnum og
unglingum meiri tíma og
athygli því það væri sú for-
vörn sem sem best væri að
framkvæma. Var gestum loks
þökkuð heimsóknin og voru
allir á einu máli um að
fundurinn hefði verið vel
heppnaður og aukió gagn-
kvæman skilning löggæslunnar
og almennings sem Guð-
mundur Fylkisson lögreglu-
maður sagði vera augu og eyru
löggæslunnar.
fyrirjó&n!
Ef Gjafavörur úr „brassi"
Ef Silfur-Plett kertastjakar
Verð frá kr. 790,- stellið
Jólaóróar
Verð frá kr. 490,-
/ I \
•
SccttccceCsup, A
6/./S-/8' J LÆm>) t)
Hafnarstræti 9 • ísafjörður • Sími 4722