Fréttabréf frá Biskupsstofu - 15.08.1976, Page 4
4.
FERMIHGARNAiMSKEIÐ í KALL6RÍMSKIRKJU 16. OG 17. SEPTEHBER
Eins og kynnt var á prestastefnunni í sumar, veröur haldið
námskeið um ferminguna og fermingarundirbúning fyrir guðfræðinga
og guðfræðinema í september. Að því standa Æskulýðsstarf og
Menntamálanefnd þjóðkirkjunnar.
Norrænir fermingarleiðtogar gera grein fyrir markmiði fermingar-
undirbúningsins og helstu vandamálum hans. Þá verða kynntar
félagsfræðilegar kannanir, sem þeir hafa gert á afstöðu fermingar-
barnsins til Guðs, guðþjónustunnar, bænar og andakta, skólans,
vina,tómstunda o.s.frv. Síðari daginn verður kynning á hjálpar-
gögnum við fermingarundirbúning og sýnt hvernig beri að nota þau.
Þá gefst þátttakendum kostur á að "líta inn í tíma'1 x fermingar-
undirbúningi.
Þar sem tími er naumur til stefnu, þurfa væntanlegir þátttakendur
að tilkynna þátttöku nú þegar, annaðhvort skrifa strax, en þó
helst hringja til skrifstofu æskulýðsfulltrúa.
Þátttökugjald er ekkert. Veittir veröa tíu fararstyrkir, hver
að upphæð kr. 5.000,- fyrir þá sem koma lengst að (Vestfjörðum,
Norðurlandi, Austfjörðum). Að öðru leyti verða þátttakendur að
sjá um sig sjálfir hvað varðar fæði og húsnæði.
Þess má geta að lokum að nýja fermingarbókin "Líf með Jesú"
verður væntanlega til sýnis á námskeiðinu, en höfundur hennar
Jan Carlquist er annar fulltrúi Svía á námskeiðinu.