Fréttabréf frá Biskupsstofu - 15.08.1976, Síða 6
6.
HÖNDIN, FRÉTTABRÉF HJALPARSTOFNUNAR KIRKJUNNAR 3. TLB. KOMIÐ ÚT
í júlímánuði s.l. kom út 3. tlb. fréttabréfs Hjálparstofnunar
kirkjunnar HÖNDIN, en sem kunnugt er er áformað að gefa út slíkt
fréttabréf ársfjórðungslega til gefenda stofnunarinnar. Frétta-
bréfið er prentað í dagblaðsformi í Blaðaprenti h.f. og gefið út
x 10.000 eintökum sem send eru skv. spjaldskrá stofnunarinnar um
land allt.
Hjálparstofnun kirkjunnar hefur á bessu ári einkum beitt sér
fyrir tveimur ólíkum verkefnum,annars vegar að afla stofnuninni
fastra gefenda, og hins vegar að vekja athygli á þörfum vangef-
inna barna í landinu.
í fréttabréfinu kemur fram að hundruð nýrra styrktarmanna hafi
bæzt stofnuninni á þessu ári og nemi framlög þeirra hundruðum
þúsunda á ári. í fréttabréfinu er enn haldið áfram að minna á
þarfir þroskaheftra barna, og í því skyni eru m.a. viðtöl við
tvo ráðherra, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra og mennta-
málaráðherra. Þá er viðtal við Torfa Tómasson framkvæmdastjóra
Styrktarfélags vangefinna og einnig sagðar stuttar fréttir frá
þróunarlöndum og helstu verkefnum á því sviði.
Þess má að lokum geta í þessu sambandi að ráðgerð er önnur fjár-
söfnun á hausti komanda ásamt Öllum þeim er að söfnuninni í
fórnarviku stóðu, til sama málefnis, en í fórnarviku söfnuðust
um 5 milljónir króna til þroskaheftra barna. Eru helst uppi
áform um byggingu sérstaks afþreyingarheimilis fyrir vangefna,
en nánar verður frá því skýrt síðar.
ÞJÓÐRÆKNISBÚÐIR
NÚ í sumar dvöldust hér 8 ungmenni frá Vesturheimi í boði æsku-
lýðsstarfs kirkjunnar. Dvöldu þau nokkra daga í Reykjavxk,
heimsóttu forseta íslands, biskup og ferðuðust um Suðurlandið og
voru yfir helgi í Skálholti. Seinni hluta júlímánaðar störfuðu
þau svo við að snyrta að umhverfi Stórutjarnarskóla, þar sem þau
höfðu aðsetur þá daga. Um helgina 25. júlí tóku þau þátt í æsku-
lýðsmóti á Vestmannsvatni. Þá hafði Landvernd boðið aðstöðu í
Skaftafelli og voru þau þar í viku í vinnubúðum ásamt nokkrum
íslenskum unglingum. Þær voru auglýstar sérstaklega í blöðum og
útvarpi fyrir unglinga á aldrinum 16-20 ára og var merkilegt að