Fréttabréf frá Biskupsstofu - 15.08.1976, Page 7

Fréttabréf frá Biskupsstofu - 15.08.1976, Page 7
7 . ekki skyldu fleiri umsóknir berast en raun bar vitni. Að vxsu var ekkert kaup greitt og kann það að hafa sín áhrif og tíminn e.t.v. stuttur. En engu að síður hefur með Skaftafelli opnast nýr möguleiki fyrir vinnubúðir á vegum æskulýðsstarfsins. Sr. Ingólfur Guðmundsson sá algerlega um þessar þjóðræknisbúðir og var með unglingunum allan tímann sem þau dvöldu hór. SUMARBuÐIR Sumarið nú var aö ýmsu leyti óhagstætt hvað varðar sumarbúðir. Er þar fyrst aö nefna, að þær voru aðeins starfræktar á tveim stöðum þ.e. á Vestmannsvatni og í Skálholti. í ár fellu þær niður á Eiðum v.b.a. þar var verið að gera við skólahúsnæðið, sem þær hafa fengið aðstöðu í á undanförnum árum. Var það baga- legt fyrir starf kirkjunnar á Austurlandi, en um leið hófst merkur áfangi þar eystra, þar eð nú var hafist handa við að reysa sumarbúðir í Prestavík við Eiðavatn, en x skógargirðingunni þar hefur Prestafélag Austurlanus fengið mjög glæsilegt svæði fyrir kirkjulega miðstöð. Þegar hefur verið steyptur grunnur að 500 m þrískiptu húsi sem vonandi rís sem fyrst. Vegna breyttra aðstæðna voru heldur ekki starfræktar sumarbúðir að Holti í Önundarf irði, en þar hafa þær verið ir.Crg undanfarin sumur. Vonandi verður það hle stutt, þar sem um er að ræða mikilvægt starf á Vestfjörðum. Aðsókn að sumarbúðunum í Skálholti var með minna móti, en virðist alltaf vera jafn mikil fyrir norðan. 1 rauninni er villandi að tala um sumarbúðir, því eins og menn vita fer ýmis önnur starfsemi fram innan veggja húsanna á Vest- mannsvatni og í Skálholti. Þannig var haldið æskulýðsmót nyrðra í sumar, blindir og aldraðir voru þar í vikutíma, og nú þessa dagana er þar samvera fyrir presta og prestsfrúr. Þá hafa sumar- búðirnar verið nýttar fyrir fermingarbarnamót og fleira af slíku tagi. Væri því e.t.v. rlttara að tala um kirkjulegar miðstöðvar, enda þótt nýting á húsnæði sl mest fyrir sumarbúðastarf. SUNNUDAGSPÖSTURINN Fyrir veturinn er væntanlegur þriðji árgangur (III-röð) af Sunnu- dagspóstinum.og eru þeir sem hafa hug á að nota hann við sunnu- dagsskólastarfið í vetur beðnir að hafa strax samband við æskulýðsskrifstofuna. Þeir sem ekki hafa notað "póstinn" við

x

Fréttabréf frá Biskupsstofu

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf frá Biskupsstofu
https://timarit.is/publication/1506

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.