Fréttabréf frá Biskupsstofu - 15.08.1976, Qupperneq 11

Fréttabréf frá Biskupsstofu - 15.08.1976, Qupperneq 11
11. hvaða sálrænar breytingar eiga sér stað, á hvern hátt má hjálpa honum að ná aftur jafnvægi, hvað segir kristin trú um dauða og sorg. Síðan gat sr. Tomas helstu líkamlegra og sálrænna einkenna hins syrgjandi skv. könnun sem gerð var í Bandarxkjunum á 100 einstaklingum. Þau fyrri voru einkum þau að viðkomandi á erfitt með andardrátt, fær vöðvalömun, meltingartruflanir og lystarleysi. Sálrænu einkenni nins syrgjandi voru skv. könnuninni aðallega þau að hinn syrgjandi er bundinn við mynd hins látna, hefur sektar- tilfinningu, framandi framkoma, reiði og eða örvænting gegn Guði o.þ.h., óróleiki, taugaspenna, viðkvæmni, neitun á raunveruleik- anum. Sr. Tómas ræddi þá ýmis ráð sem að gagni mættu koma, en lagði höfuð áherslu á hlutverk prestsins að hjálpa syrgjandi að vinna sig sjálfan í gegnum þá sálrænu truflun sem nefnd er sorg. Þá ræddi hann hvað kristin trú hefði að segja syrgjendum. Truin hjálpar syrgjanda aö horfast í augu við raunveruleikann. Hún mælir ekki gegn sorgartjáningu. Kristin trú, persónulega reynd og skilin, hefur alltaf andlegt lækningagildi á hæsta. stigi. Þess vegna er allt starf kirkjunnar, boðun fagnaðarerindisins fyrirbyggjandi starf og mikilvægur undirbúningur hverjum og einum sem mætir sorginni og dauðanum. Esra Pétursson flutti erindiö: "Sálgæsla prests frá sjónarmiði læknis1'. Verður sxðar greint frá því. Á prestastefnunni flutti og sr. Björn Jónsson erindi um "íslensk safnaðarblöð. Rakti hann útgáfu þessara blaða í tímaröð, en þau hafa reyndar fæst orðið langlíf, enda oftast verið einstaklings- framtak. Frumkvöðull þessarar útgáfustarfsemi Valdimar V. Snævarr, sem gaf út fyrsta safnaðarblaöið áriö 1937 (eða 1938) á Noröfirði. Sr. Jón Kr. ísfeld, sem lengst af var sóknarprestur á Bíldudal, mun í sambandi við útgáfumál safnaöarblaðs vera hvað mikilvirkastur allt til þessa dags. Að lokum hvatti sr. Björn sóknarpresta til þess að gera tilraun í einhveri roynd með slíka útgáfustarfsemi í söfnuðunum. Sé hún unnin af einlægum huga, þá fylgir henni ótvíræc blessun, sagði sr. Björn að endingu. Sr. Jón Einarsson greindi frá störfum starfsháttanefndar og lagði fram nokkra greinargerð uro stcrf hennar enda þótt hún lyki ekki störfum fyrr en á næsta ári. Óskaði hann eindregið eftir viðbrögðum manna við þessari greinargerð, þegar þeir hefðu kynnt sér hana. Er því hér m.eð skorað á viðkomandi að verða við þessum tilmælum.

x

Fréttabréf frá Biskupsstofu

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf frá Biskupsstofu
https://timarit.is/publication/1506

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.