Fréttabréf frá Biskupsstofu - 15.08.1976, Page 13

Fréttabréf frá Biskupsstofu - 15.08.1976, Page 13
13. UHSÖKKIR UM AUGLÝST PRESTAKðLL Hinn 6. ágúst s.l. var annað prestsembættið við Dómkirkjupresta- kall x Reykjavík auglýst laust til umsóknar með umsóknarfresti til 27. ágúst. Tvær umsóknir bárust, frá þeim sr. Hannesi Guðmundssyni, sóknarpresti, Fellsmúla, og sr. Hjalta Guömundssyni sóknarpresti, Stykkishólmi. Þá hefur verið auglýst laust til umsóknar annað prestsembættið við Háteigsprestakall x Reykjavík. Umsækjendur eru þrxr, sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir, fyrrv. sóknarprestur, Súgandafirði, sr. Magnús Guðjónsson, fríkirkjuprestur,Hafnarfirði, og sr. Tómas Sveinsson, sóknarprestur, Sauðárkróki. Engar umsóknir bárust um þrjú prestsembætti, sem auglýst voru nýverið laus til umsóknar, en það voru Hólaprestakall í Skaga- fjarðarprófastsdæmi, Siglufjarðarprestakall í Eyjafjarðarprófasts dæmi og embætti farprests. Þá hefur Vallanesprestakall í Múlaprófastsdæmi verið auglýst laust til umsóknar, og er umsóknarfrestur til 20. september n.k. Staða aðstoðaræskulýðsfulltrúa var auglýst laust til umsóknar með umsóknarfresti til 1. ágúst. Tvær umsóknir bárust um starfið frá Ragnari Snæ Karlssyni,Reykjavík og Stínu Gísladóttur, kennara, Hafnarfirði. Stína Gísladóttir hefur verið ráðin til starfsins frá 15. ágúst að telja. NÝR ÆSKULÝÐSFULLTRÚI Hinn 1. ágúst s.l. tók sr. Þorvaldur Karl Helgason við starfi æskulýðsfulltrúa bjóðkirkjunnar. Sr. Þorvaldur Karl er fæddur í’ Reykjavík 9. apríl 1950 , sonur hjónanna Gunnþóru Kristmundsdóttur og Helga Þorlákssonar, skólastjóra. Sr. Þorvaldur lauk embættisprófi í guðfræði við H.I. vorið 1975 og tók þá vígslu sem farprestur. S.l. ár hefur hann þjónað Vallarnesprestakalli í fjarveru sr. Gunnars Kristjánssonar.

x

Fréttabréf frá Biskupsstofu

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf frá Biskupsstofu
https://timarit.is/publication/1506

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.