Fréttabréf frá Biskupsstofu - 15.08.1976, Side 15
efst eru á baugi í hverju landi fyrir sig og sameiginleg í
öllum þessum löndum, þaö eru: Skírnin og skírnarfræðslan og
samband ríkis og kirkju. Hvert þessara mála birta vanda
Norrænu kirkjnanna í hnotskurn. Auk þessa var tekin upp umræða
um samvinnu Norðurlandanna í helgisiðamálum, og um gagnkvæman
rétt til prestsþjónustu innan norrænna kirkna. Þar er ákveðin
lagasetning í hverju landanna til hindrunar og auk þess hvað
varðar íslendinga og Finna, tungumálaörðugleikar. Ungur
finnskur biskup Paa vo Kortekaugas frá Knopio flutti stórmerkt
erindi um frelsi mannsins x nútímaþjóðfélagi.
Fundargestir sátu kvöldverðarboð í Hallgrímskirkju og Neskirkju
x boði safnaðanna og auk þess sátu þeir boð forseta íslands og
borgarstjórans í Reykjavík. A föstudeginum var haldið í skoðunar
ferð til Þingvalla, þar sem kirkjumálaráðherra hélt hádegisverðar
boð, en þaðan var haldið að Gullfoss og Geysi og lcks til
Skálholts, þar sem fundinum var formlega slitið með guösþjónustu
í kirkjunni. Aö kvöldi þessa dags var síðan snæddur kvöldverður
í Lýðháskólanum í Skálholti. Það kom fram á blaðamannafundi með
biskupunum að þeir væru sérlega ánægðir með allan undirbúning og
framkvæmd fundarins og rómuðu þeir gestrisni og vinaþel, sem þeim
hafði mætt hér á landi. Biskuparnir héldu síðan hver til síns
heima sunnudaginn 8. ágúst.